Opið lengur í Salalaug á sunnudögum
Frá og með 19. júlí og til 27. september 2026 verður opnunartími Salalaugar lengdur á sunnudögum til kl. 22:00.

Með þessari breytingu gefst íbúum og öðrum gestum aukið svigrúm til sundiðkunar og útivistar á sunnudagskvöldum yfir sumarið.
“Við erum að svara ákalli bæjarbúa um að lengja opnunartíma sundlauga um helgar. Við byrjum á annarri sundlauginni til að byrja með þar sem hér er um tilraunaverkefni að ræða í sumar. Þá er verið að skipuleggja miðnæturopnun í Kópavogslaug í ágúst. Ef vel tekst til þá að sjálfsögðu stefnum við að því að hafa lengri helgaropnun í báðum sundlaugum. Við lítum sem svo á að með þessu séum við að styðja lýðheilsu bæjarbúa og auka aðgengi að okkar frábæru sundlaugum,”
segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.
Breytingin er í samræmi við ákvörðun bæjarins um að bregðast við aukinni eftirspurn eftir lengri opnun sundlauga og auka þjónustu við íbúa með tilraunaverkefni í sumar.
Við hvetjum gesti til að nýta sér aukinn opnunartíma og njóta aðstöðunnar í Salalaug.
Sjáumst í sundi í sumar!


