Beint í efni
Til baka í yfirlit

Rós­irnar skarta sínu feg­ursta í ág­úst

Á þessum tíma árs skarta rósir sínu fegursta. Í tilefni þess var rósaskoðunarganga í Trjásafninu í Meltungu haldin fimmtudag 8. ágúst. Gangan var skipulögð

Friðrik Baldursson var með kynningu á garðinum.
Friðrik Baldursson var með kynningu á garðinum.

Á þessum tíma árs skarta rósir sínu fegursta. Í tilefni þess var rósaskoðunarganga í Trjásafninu í Meltungu haldin fimmtudag 8. ágúst. Gangan var skipulögð í samstarfi við Rósaklúbb Garðyrkjufélags Íslands en Vilhjálmur Lúðvíksson og Friðrik Baldursson voru með kynningu á garðinum.

Rósagarðurinn er einn þeirra garða sem tilheyra trjásafninu í Meltungu sem má finna austarlega í Fossvogsdal. Garðurinn er samstarfsverkefni Kópavogsbæjar og Garðyrkjufélags Íslands og var gerður árið 2016 en samanstóð þá einungis af norrænu rósayrki.

Á árunum 2018 - 2019 var síðan haldið áfram með gerð tveggja nýrra rósagarða í tengslum við norræna garðinn; annan með kanadískum rósum sem reynst hafa vel hér á landi og hinn með rósum af blönduðum uppruna sem virðast geta þrifist vel í íslensku loftslagi.

Rósaskoðunargangan var vel sótt af bæði félögum Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Kópavogsbúum og fróðlegt var að hlýða á kynningu Friðriks og Vilhjálms á meðan rósailmur fyllti vitin.