Salaskóli 25 ára
Salaskóli fagnaði 25 ára afmæli sínu föstudaginn 11.september með afmælishátíð og opnu húsi. Nemendur, foreldrar, kennarar og starfsfólk komu saman auk annarra gesta og áttu góða stund.

Salaskóli fagnaði 25 ára afmæli sínu föstudaginn 11.september með afmælishátíð og opnu húsi. Nemendur, foreldrar, kennarar og starfsfólk og gestir áttu góða stund.
Kristín Sigurðardóttir skólastjóri ávarpaði gesti og sungið var undir stjórn Atla Dagur Stefánsson tónlistarkennara skólans. Þá ávarpaði Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri gesti og færði skólanum blóm og gjöf frá Kópavogsbæ sem skólastjóri tók við fyrir hönd skólans.

Á opnu húsi í skólanum gátu gestir skoðað hin ýmsu verkefni sem bryddað hefur verið upp á í skólanum í tilefni afmælisins. Þar má nefna listaverk sem samanstendur af 500 flísum sem nemendur skólans máluðu fugla á, hver nemenda málaði einn fugl.
Einnig var sett upp merki skólans unnið úr þæfðum kúlum, þar sem allir nemendur lögðu hönd á plóg. Þá er saga skólans rakin með tímalínu, en aðeins 70 nemendur voru í skólanum fyrsta árið. Skólinn stækkaði svo jafnt og þétt eftir því sem hverfið byggðist og voru nemendur orðnir um 500 nokkrum árum síðar og eru enn.

Þá er yngsta stigið að vinna að þemaverkefni tengdu laginu Eitt af blómunum, eftir Benna Hemm Hemm og Pál Óskar og má sjá afraksturinn á vegg skólans.


