Tæknin nýtt í velferðarþjónustu
Mánudaginn 23. maí sl. undirrituðu Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdarstjóri Memaxi efh. áskriftarsamn

Mánudaginn 23. maí síðastliðinn undirrituðu Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdarstjóri Memaxi efh. áskriftarsamning um notkun Memaxi á heimilum fatlaðs fólks í Kópavogi.
Memaxi er tæknilausn sem einfaldar og leysir margvísleg samskipta-, skráningar- og skipulagsmál í velferðarþjónustu, skjólstæðingum, aðstandendum og starfsfólki til heilla. Lausnin er notuð víða um land í þjónustu við aldraða og fatlaða. Velferðarsvið Kópavogs hóf innleiðingu á þessari tækni á heimili fatlaðs fólks í byrjun árs 2021 og nú hafa þrjú heimili innleitt eða eru að innleiða þessa tækni, fyrir samtals 23 íbúa.
"Innleiðing memaxi er í samræmi við stefnu sviðsins um markvissa nýtingu tæknilausna meðal annars við veitingu einstaklingsbundinnar þjónustu og til að auka öryggi persónuupplýsinga. Velferðarsvið fagnar þessum áfanga við innleiðingu á velferðartækni á heimilum fatlaðs fólks í Kópavogi og fagnar áframhaldandi samstarfi við Memaxi," segir Sigrún Þórarinsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs Kópavogsbæjar.
"Nálgun velferðarsviðs Kópavogsbæjar á innleiðingu Memaxi hefur verið til fyrirmyndar og eftirbreytni. Öflugt og áhugasamt starfsfólk velferðarsviðs hefur fengið tíma og næði til að læra á kerfið og einbeita sér að breyttum verkferlum og yfirfærslu skráninga á pappír yfir í stafrænt form. Upplýsingatæknideild og persónuverndarfulltrúi hafa tekið þátt frá upphafi og þannig stutt dyggilega við innleiðinguna. Kópavogsbær hefur tekið velferðartækni föstum tökum með skýra sýn á framþróun og umbætur. Kópavogsbær er öflugur samstarfsaðili Memaxi og beinir sjónum að þeim mikilvæga virðisauka sem hlýst af notkun Memaxi, auknum gæðum í þjónustunni, öryggi upplýsinga, fjárhagslegum ávinningi og persónumiðaðri þjónustu við íbúa. Hlökkum við hjá Memaxi til áframhaldandi samstarfs og þróunar ásamt því að tengja Memaxi við önnur hugbúnaðarkerfi í rekstri bæjarins," segir Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri Memaxi.


