Samstarf við Lionsklúbb Kópavogs um endurbætur á Hlöðunni
Kópavogsbær og Lionsklúbbur Kópavogs hyggja á samstarf um endurbætur og viðhald á véla- og verkfærahúsinu sem stendur við Kópavogstún 14 og gengur undir nafninu Hlaðan.

Kópavogsbær og Lionsklúbbur Kópavogs hyggja á samstarf um endurbætur og viðhald á véla- og verkfærahúsinu sem stendur við Kópavogstún 14 og gengur undir nafninu Hlaðan.
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Orri Hlöðversson formaður bæjarráðs hittu þá Einar Bollason, Ómar Þorsteinsson og Pál Beck frá Lionsklúbbnum við Hlöðuna á dögunum. Hlaðan er hluti af gamla Kópavogsbúinu en Lionsklúbburinn sá um endurgerð tveggja íbúða í því sem voru teknar í notkun árið 2024.
Fram kemur í viljayfirlýsingu um samstarfið að um sé að ræða nauðsynlegar endurbætur og viðhald á Hlöðunni, bæði að innan og utan, svosem endurnýjun innréttinga, veggklæðninga og glugga.
Lionsklúbburinn mun annast framkvæmdirnar en Kópavogsbær skuldbinda sig til að veita nauðsynlega samvinnu og ráðgjöf eftir því sem við á.
Viljayfirlýsingin var lögð fram í bæjarráði fimmtudaginn 7.maí og samþykkt einróma.


