Beint í efni
Til baka í yfirlit

Skemmti­leg dag­skrá í haust­fríi í Kópa­vogi

Skemmtileg dagskrá verður á Bókasafni Kópavogs og í Gerðarsafni í tilefni af vetrarfríi. Hrekkjavökuföndur og hryllingssögustund, bókamerkjasmiðja og búnin

Það verður hrekkjavökubragur á dagskrá haustfrís í Kópavogi.
Það verður hrekkjavökubragur á dagskrá haustfrís í Kópavogi.

Skemmtileg dagskrá á Bókasafni Kópavogs og í Gerðarsafni í tilefni af vetrarfríi í Kópavogi 26. og 27. október.

Hrekkjavökuföndur og hryllingssögustund, bókamerkjasmiðja og búningaskiptimarkaður, krakkajazz og krakkaleiðsögn. Öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir og aðgangur ókeypis.

Dagskrá

Fimmtudagur 26.október

Bókasafn Kópavogs kl. 11 - Bókamerkjasmiðja Litrík og leikandi, skrýtin og skemmtileg. Búum saman til bókamerki úr pappírsbroti.

Bókasafn Kópavogs kl. 12:15 - Fjölskyldujazz Hádegistónleikar fyrir forvitna jazzunnendur á öllum aldri í samstarfi við söngdeild Tónlistarskóla FÍH. Á þessum tónleikum flytja þær Gunnur Arndís, Ragnheiður Silja og Rán Ragnarsdóttir fjölbreytt úrval laga sem öll fjölskyldan getur notið.

Bókasafn Kópavogs kl. 13 - Hrekkjavökuskraut Beinagrind, leðurblaka, könguló og afturganga! Stórskemmtileg hrekkjavökusmiðja.

Lindasafn kl. 13 - Hrekkjavökuperl Notaleg perlustund á Lindasafni þar sem ímyndunaraflið fær að leika lausum hala.

Gerðarsafn kl. 14 - Krakkaleiðsögn um Skúlptúr/Skúlptúr og listsmiðja með Erni Alexander Ámundasyni

Föstudagur 27.október

Bókasafn Kópavogs kl. 10:30 - Hryllingssögustund

Bókasafn Kópavogs kl. 11.oo - Hrekkjavökuperl Notaleg perlustund þar sem ímyndunaraflið fær að leika lausum hala.

Gerðarsafn kl. 13 - Listsmiðja með Selmu Hreggviðsdóttu r

Laugadagur 28.október

Bókasafn Kópavogs kl. 11:30 - Hrekkjavökubókamerki

Náttúrufræðistofa Kópavogs kl. 13:00 - Kolasmiðja Ýmsar tilraunir verða gerðar með kol og hnoðleður til að dýpka tilfinninguna fyrir ljósi og skugga.

Á Bókasafni Kópavogs, aðalsafni og Lindasafni verður hægt að leita uppi alls konar skrímsli og óvættir í geggjuðum ratleik. Búningaskiptimarkaður á aðalsafni.

Ókeypis er á sýningar í Gerðarsafni fyrir fullorðin í fylgd með börn í haustfríi.