Beint í efni
Til baka í yfirlit

Skóla­garðar í Kópa­vogi

Skólagarðar hafa verið reknir á vegum Kópavogsbæjar í rúm 50 ár.

Líf og fjör í Skólagörðum í Kópavogi.
Líf og fjör í Skólagörðum í Kópavogi.

Skólagarðar hafa verið reknir á vegum Kópavogsbæjar í rúm 50 ár.

Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6 til 13 ára. Þar fá þau útsæði, plöntur og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Leiðbeinendur og aðstoðarmenn starfa með börnunum, en auk ræktunarinnar er farið í leiki, skoðunarferðir, haldið íþróttamót, grillað og fleira skemmtilegt.

Skólagarðar eru á þremur stöðum í Kópavogi:

Við Dalveg Við Víðigrund í Fossvogsdal Við Arnarnesveg í gjánni á milli Sala - og Kórahverfis

Verð fyrir einn garð eru 5.700 kr.

Nánari upplýsingar og skráning í skólagarða er að finna á sumarvef.