Beint í efni
Til baka í yfirlit

Skóla­garð­ar­n­ir opna 3.júní

Skólagarðarnir í Kópavogi opna fimmtudaginn 3. júní og er skemmtilegt sumar framundan hjá þátttakendum.

Skólagarðar í Kópavogi
Skólagarðar í Kópavogi eru á tveimur stöðum, Víðigrund og Dalvegi.

Skólagarðarnir í Kópavogi opna fimmtudaginn 3. júní og er skemmtilegt sumar framundan hjá þátttakendum.

Í ár verður starfsemin með aðeins breyttu sniði þar sem lögð verður meiri áhersla á ævintýri samhliða ræktuninni sjálfri. Auk vinnunnar í görðunum verða meðal annars haldnir leikjadagar, málingasmiðjur og grillveislur yfir sumarið.

Skólagarðarnir í Kópavogi eru á tveimur stöðum, Víðigrund og Dalvegi. Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6 til 13 ára og fá þau kartöfluútsæði, plöntur og fræ ásamt leiðsögn við ræktun algengustu matjurta. Skráning í garðana fer fram í gegnum Sportabler.

"Við hlökkum til að taka á móti krökkunum í sumar og eiga með þeim góðar stundir í skólagörðunum," segir Svavar Ólafur Pétursson verkefnastjóri.