Smíðavellir í Kópavogi
Smíðanámskeið stendur börnum og ungmennum til boða í sumar. Á smíðavellinum fá þátttakendur verkfæri, efni og aðstoð við smíði smáhluta og við kofasmíði. Í

Smíðanámskeið stendur börnum og ungmennum til boða í sumar. Á smíðavellinum fá þátttakendur verkfæri, efni og aðstoð við smíði smáhluta og við kofasmíði. Í lok hvers námskeiðs mega börnin fara heim með það sem þau smíða.

Námskeið á smíðavelli eru fyrir börn fædd 2012 - 2017 og eru fyrir hádegi fyrir 7 til 9 ára börn og eftir hádegi fyrir 10 til 12 ára. Smíðavöllurinn er við Smáraskóla, Dalsmára 1.

Fyrsta námskeið hófst 10. júní síðastliðinn en síðasta námskeiði mun ljúka 19. júlí.



