Snjómokstur og sorphirða
Öll tæki hafa verið úti í snjómokstri síðan 3.30 í morgun, þriðjudaginn 27. desember. Sorphirða gengur hægar vegna færðarinnar.

Öll tæki hafa verið úti í snjómokstri síðan 3.30 í morgun. Sorphirða gengur hægar vegna færðarinnar og er aðeins á eftir áætlun. Minnt er á að moka vel frá tunnum svo vel gangi að hirða sorpið.
20 tæki hafa sinnt mokstri á götum og stígum frá því í nótt. Unnið er eftir skipulagi um snjómokstur og byrjað á stofnbrautum, tengibrautum og stígum í forgangi.
Vinsamlegast sendið ábendingar á ábendingagátt Kópavogsbæjar .


