Beint í efni
Til baka í yfirlit

Gerð göngu­stíga og bíla­plans við Kór­inn

Framkvæmdir við gerð göngustígs meðfram Vindakór 8-16 og bílaplans sunnan við Vindakór 10-16 eru hafnar.

Lagður verður göngustígur meðfram lóðarmörkum Vindakór 8-16 sem tengist við núverandi göngustíg við Vindakór 1-3 og göngustíga við Þingmannaleið. Bílaplan sem hjólhýsaeigendur hafa meðal annars nýtt sem geymslupláss fyrir vagna sína verður endurnýjað sem bílastæði sem ætluð eru fyrir mannmarga viðburði í Kórnum. Planið verður aðgangsstýrt og einungis opið þegar þörf verður á sökum viðburða í Kórnum. Bílastæðin sjálf verða með gegndræpu yfirborði en akleiðir malbikaðar. Inn- og útakstur af planinu verður miðja vegu milli Heimsenda og Vindakórs en ekki næst Vindakór eins og var áður. Gerðar verða ráðstafanir svo ekki verði hægt að aka yfir kanta og inn eða út af stæðinu. Gönguleiðir verða næst Vallakór og á miðju stæði. Hæðarmunur á milli Vindakórs og bílastæðis verður útfærður sem grasflái. Áætluð verklok eru fyrir 1. desember næstkomandi en verklok eru verulega háð því hvernig veðurfar í haust verður.