Beint í efni
Til baka í yfirlit

Græna­tún lok­að vegna mal­biksfram­kvæmda föstu­dag 28. ág­úst

Föstudaginn 28. ágúst frá kl. 9:00 er fyrirhugað að fræsa Grænatún milli gatnamóta við Ástún og gatnamóta þar sem Kjarrhólmi, Vallhólmi og Álfatún mætast - að gatnamótunum meðtöldum. Áætlað er að framkvæmdum verður lokið um kl. 14:00. Útbúnar verða eftirfarandi bráðabirgðahjáleiðir:

  • Fram hjá framkvæmdasvæði á gatnamótum Kjarrhólma, Vallhólma og Álfatúns
  • Inn í hverfið frá Smiðjuvegi (gul gata) og um Hvannhólma
  • Út úr hverfinu eftir Vallhólma og inn á Smiðjuveg (grá gata)

Aðkoma að íbúðarhúsum við Grænatún og Bæjartún verður verulega skert á meðan framkvæmdum stendur og mælst er til að íbúar í þessum götum íhugi að leggja bílum sínum utan við framkvæmdasvæðið ef kostur er til að forða meiri óþægindum en þurfa að vera.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.