Beint í efni
Til baka í yfirlit

Lok­un á Digra­nes­vegi milli Vall­ar­traðar og Digra­nes­heiði vegna mal­biksfram­kvæmda

Miðvikudaginn 12. ágúst verður Digranesvegur milli Vallatraðar og Digranesheiði lokaður vegna malbiksfræsinga milli kl. 9:00 og til um það bil 16:00.

Gert er fyrir að gatnamót Digranesvegar við Bröttubrekku opni þegar framkvæmdum þar er lokið kl. um það bil 11:00. Hjáleiðir eru um Hlíðarveg og Vogatungu og Álfhólsveg og Bröttubrekku frá kl. 11:00. Íbúar og gestir að húsum við Digranesveg 20-78 er bent á að nota bílastæði við MK og Kópavogsskóla á meðan framkvæmdum stendur.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.