Lokunartilkynning: hluti Dalvegar lokaður mánudaginn 13. júlí frá 9.00 - 16.00.
Mánudaginn 13. júlí frá kl. 9,00 til 16.00 verður hluti Dalvegar (akrein vestur => austur) lokaður vegna malbiksframkvæmda (fræsing).
Hjáleiðir eru um Digranesveg, Hlíðarhjalla og Reykjanesbraut á meðan framkvæmdum stendur. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.
Beðist er velvirðingar á hvað tilkynningin kemur seint, en röðun framkvæmda breyttist vegna rigningarspá.