Til baka í yfirlit
Miðjan óskar eftir stuðningsfjölskyldum
Miðjan - miðstöð stuðnings- og stoðþjónustu Kópavogsbæjar óskar eftir stuðningsfjölskyldum fyrir börn. Hlutverk stuðningsfjölskyldu er að taka barn tímabundið inn á heimili sitt og veita því öruggt, hlýlegt og styðjandi umhverfi. Þannig fær barnið jákvæða tilbreytingu og fjölskyldan mikilvægan stuðning í daglegu lífi.
Um er að ræða stuðning allt frá 2 - 6 sólarhringum á mánuði, eftir þörfum hvers barns og fjölskyldu þess.
Frekari upplýsingar veitir Tara Lind Jónsdóttir, teymisstjóri barna- og fjölskyldna á netfanginu midjan@kopavogur.is