Beint í efni
Til baka í yfirlit

Upp­færsla á skóla­daga­töl­um 2026–2027

Uppfærðar útgáfur af skóladagatölunum eru nú aðgengilegar.

Uppfærðar útgáfur af skóladagatölunum eru nú aðgengilegar. Við yfirferð kom í ljós að Þorláksmessa hafði fyrir mistök verið merkt sem frídagur í sumum dagatölum. Jafnframt hefur nokkrum dögum sem vantaði í upphaflegar útgáfur verið bætt við.

Notendur sem hafa þegar sótt dagatöl fyrir skólaárið 2026–2027 þurfa að eyða fyrri útgáfu dagatalsins og sækja uppfærða útgáfu. Mælt er með að fylgja leiðbeiningum um uppsetningu dagatalanna.