Beint í efni
Til baka í yfirlit

Tón­list og málörvun rædd á ráð­stefnu­degi leik­skóla

Starfsfólk leikskóla Kópavogs kom saman á ráðstefnudegi leikskólanna sem fram fór miðvikudaginn 11.nóvember í Barnaskóla Kársness. Þetta er í fyrsta sem efnt er til ráðstefnu fyrir allt starfsfólk á skipulagsdegi leikskólanna.

Tónlist, málörvun og faglegt samstarf voru til umfjöllunar á ráðstefnudegi leikskólanna.
Tónlist, málörvun og faglegt samstarf voru til umfjöllunar á ráðstefnudegi leikskólanna.
Starfsfólk leikskólanna fjölmennti.
Starfsfólk leikskólanna fjölmennti.

Tónlist, málörvun og faglegt samstarf voru til umfjöllunar í erindum og pallborði. Þá var nýr vefur, Krakkakúnst, tekinn formlega í notkun.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjar

stjóri setti ráðstefnuna og lagði í ávarpi sínu áherslu á mikilvægi samstarfs og þekkingarmiðlunar milli leikskólanna.

„Það er dýrmætt þegar starfsfólk leikskólanna kemur saman, deilir þekkingu og lærir hvert af öðru. Þannig byggjum við upp öflugt faglegt skólasamfélag og þróum starfið áfram fyrir börnin í Kópavogi,“ sagði Ásdís.

Ásdís Kristjánsdóttir á ráðstefnudegi leikskóla Kópavogs.
Ásdís Kristjánsdóttir á ráðstefnudegi leikskóla Kópavogs.

Á ráðstefnunni var sjónum beint að íslensku í skólastarfi og mikilvægi tónlistar í máltöku og þroska barna og fluttu þær dr. Sigríður Ólafsdóttir og dr. Helga Rut Guðmundsdóttir erindi um þau efni. Þá kynnti Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Urðarhóls vefinn Krakkakúst en á honum er safnað saman hagnýtum verkfærum og aðferðum sem styðja starfsfólk leikskóla við að nýta tónlist markvisst í málörvun og daglegu starfi með börnum.

Miðlun þekkingar og reynslu úr leikskólunum sjálfum var jafnframt stór þáttur dagsins, meðal annars í pallborðsumræðum starfsfólks úr leikskólum Kópavogs.

„Það er verðmætt að fá allt starfsfólkið okkar saman, skiptast á reynslusögum og eiga samtöl sem við náum ekki í amstri dagsins. Á svona degi deilum við líka hugmyndum , góðar hugmyndir eru iðulega kveikjan að næstu hugmynd. Í ár beindum við sjónum okkar saman að máltöku og orðaforða barna og getum nú við farið aftur inn í leikskólana með nýjar hugmyndir að leiðum til að efla tungumálið í leik, samskiptum og daglegum aðstæðum með börnunum," segir Sigrún Hulda Jónsdóttir, deildarstjóri leikskóladeildar.

Vigdís Másdóttir, kynningar- og markaðsstjóri, stýrði dagskrá ráðstefnunnar sem flutt var tvisvar yfir daginn vegna fjölda þátttakenda sem voru rúmlega 600 talsins.

Emilíana Torrini
Emilíana Torrini bæjarlistamaður söng á ráðstefnudeginum.

Deginum lauk með söng Emilíönu Torrini, bæjarlistamanns Kópavogs, og mæltist það afar vel fyrir hjá þátttakendum.

Hluti af markvissri þróunarvinnu

Áherslur ráðstefnunnar eiga rætur að rekja til þróunarvinnu undanfarinna ára og tengjast aðgerðaáætlun menntastefnu menntasviðs Kópavogsbæjar. Eitt verkefna hennar snýr að því að auka orðaforða barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn í gegnum tónlist.

Á undanförnum árum hefur meðal annars farið fram kortlagning og vinna að aðgerðum um tónlistarstarf fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára í Kópavogi. Að þeirri vinnu hafa komið fulltrúar leikskóla, grunnskóla, kórastarfs og Skólahljómsveitar Kópavogs.

Starfshópur vinnu um verkfærakistu leikskólanna
Starfshópur vinnu um verkfærakistu leikskólanna. Vefurinn Krakkakúnst er afrakstur vinnunnar.

Í tengslum við verkefnið var stofnaður starfshópur þvert á leikskóla sem hefur unnið að gerð verkfærakistu fyrir starfsfólk leikskóla. Markmiðið er að auðvelda starfsfólki að nýta tónlist og söng sem verkfæri til málörvunar, þátttöku og vellíðanar barna, ekki síst barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Vefurinn Krakkakúnst (krakkakunst.is) er afrakstur þeirrar vinnu.

Undirbúningur ráðstefnudagsins var jafnframt í höndum vinnuhóps sem vann saman að mótun dagskrár og skipulagi dagsins. Áhersla var lögð á að dagskráin endurspeglaði bæði faglega þekkingu og reynslu úr daglegu starfi leikskólanna.