Beint í efni
Til baka í yfirlit

Treyju­dag­ur­inn hald­inn í fyrsta sinn

Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi, 4.september en hann er tileinkaður börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Treyjudagurinn 2026.
Treyjudagurinn 2026.

Treyjudagurinn var haldinn í fyrsta skipti á Íslandi, 4.september en hann er tileinkaður börnum sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Styrktarfélagið Börn með krabbamein stóð fyrir deginum til að vekja athygli á málefninu.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði. Þegar barn greinist breytist lífið á augabragði, bæði fyrir barnið og fjölskyldu þess.

Starfsfólk Kópavogsbæjar tók þátt og klæddist í uppáhaldstreyjunni sinni til þess að sýna samstöðu og styðja við mikilvægt málefni.

Treyjudagurinn 2026.
Treyjudagurinn 2026.