Beint í efni
Til baka í yfirlit

Tvær inn­rit­an­ir í leik­skóla Kópa­vogs í fyrsta sinn 2027

Á árinu 2027 verður innritað tvisvar í leikskóla Kópavogs, á vorönn og að hausti. Afar vel gekk að innrita börn haustið 2026 og í fyrsta sinn var börnum niður í 12 mánaða og eldri boðið leikskólapláss.

Leikskólinn Kópasteinn í Kópavogi.
Aukinn stöðugleiki í starfmannahaldi og bætt starfsumhverfi í leikskólum bæjarins í kjölfar innleiðingar Kópavogsmódelsins eru meginskýring þess að unnt verður að bjóða upp á innritun tvisvar á árinu 2027. Á myndinni má sjá leikskólann Kópastein.

Á árinu 2027 verður innritað tvisvar í leikskóla Kópavogs, á vorönn og að hausti. Markmiðið er að mæta betur þörfum barnafjölskyldna í bænum, nýta þau pláss sem losna yfir árið og bjóða yngri börnum pláss þegar aðstæður leyfa. Á næstunni verður opnað fyrir úthlutun á vorönn 2027 fyrir börn fædd á haustmánuðum 2025, allt niður í tólf mánaða að aldri.

Afar vel gekk að innrita börn haustið 2026 og í fyrsta sinn var börnum niður í 12 mánaða og eldri boðið leikskólapláss en alls voru innrituð 592 börn fædd í ágúst 2025 og fyrr. 29 börn voru áfram á biðlista, að ósk forsjáraðila, vegna óska um tiltekinn leikskóla.

„Með Kópavogsmódelinu höfum við náð frábærum árangri í að manna leikskóla bæjarins og stuðlað að stöðugleika í starfsmannahaldi. Þessi árangur skapar okkur jafnframt tækifæri nú til að mæta betur þörfum barnafjölskyldna, meðal annars með því að innrita í leikskóla tvisvar á ári og bjóða börnum frá 12 mánaða aldri leikskólapláss þegar aðstæður leyfa. Þetta er mikilvægur áfangi og jákvætt skref fyrir barnafjölskyldur í Kópavogi,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs

Þróun leikskólamála í Kópavogi gefur tilefni til bjartsýni um að áfram verði unnt að bjóða börnum leikskólavist frá allt að 12 mánaða aldri. Kópavogsbær er þannig á góðri leið með að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar. Úthlutun fyrir vorið 2027 verður sem fyrr háð mönnun, húsnæðisaðstæðum og rekstrarforsendum einstakra leikskóla.

Aukinn stöðugleiki í starfmannahaldi og bætt starfsumhverfi í leikskólum bæjarins í kjölfar innleiðingar Kópavogsmódelsins eru meginskýring þess að unnt verður að bjóða upp á innritun tvisvar á árinu 2027 en einnig hefur fjöldi barna í yngri árgöngum verið tiltölulega stöðugur, sem auðveldar skipulag og eykur möguleika sveitarfélagsins á að mæta þörfum fjölskyldna.