Beint í efni
Til baka í yfirlit

Upp­lýs­inga­fund­ur vegna fram­kvæmda á Trað­ar­reit vest­ari

Kópavogsbær býður íbúum til upplýsingafundar 17. nóvember. vegna jarðvinnu á Traðarreit vestari sem hefst á næstunni.

Upplýsingafundur vegna Traðarreits vestari fer fram 17.nóvember kl. 16.00.
Upplýsingafundur vegna Traðarreits vestari fer fram 17.nóvember kl. 16.00.

Jarðvinna á Traðarreit vestari hefst á næstunni. Af því tilefni býður Kópavogsbær íbúum til upplýsingafundar þriðjudaginn 17. nóvember kl. 16:00 í matsal Kópavogsskóla, Digranesvegi 35 (áður 15).

Á fundinum verður farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir, framvindu verksins og næstu skref.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í streymi á vef Kópavogsbæjar.

Upplýsingar og fréttir um uppbyggingu í miðbæ Kópavogs má jafnframt finna á midbaer.kopavogur.is.