Vegglist um allan Kópavog
Á hverju sumri starfar vegglistahópur á vegum Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi við að skreyta veggi bæjarins. Í sumar voru ekki einungis veggir málaðir heldur teygði listin sig upp tröppurnar á himnastiganum svokallaða.

Vegglistahópurinn 2026 samanstóð af fjóru ungu listafólki á aldrinum 19-24 ára en það voru þau Agnes Marí Gunnarsdóttir, Baldur Thor Aðalbjarnarson, Birkir Blær Gylfason og Freyja Stígsdóttir. Leiðbeinandi þeirra var Arnór Kári Egilsson.

“Það gekk rosalega vel að mála í sumar! Það var ótrúlegt að fylgjast með stökkbreytingunni sem átti sér stað á svona stuttum tíma. Þau voru öll að mála vegglistaverk í fyrsta sinn, ekkert þeirra hafði notað spreybrúsa áður. Óx þeim ásmegin varðandi sjálfstæð vinnubrögð og að kynnast tækjum og tólum sem við notum í vegglistinni. Eftir það tvístraðist hópurinn út í öll horn Kópavogsbæjar og fóru þau að tækla sitt eigið, persónulega, meistaraverk!,”
segir Arnór Kári Egilsson, leiðbeinandi vegglistahópsins.

Eftirfarandi vegglistaverk má meðal annars finna í Hamraborg, undirgöngunum við Bókasafn Kópavogs, Kórahverfi, og við himnastigann í Kópavogsdal.

Hópurinn heldur úti síðu á instagram undir nafninu @vegglist þar sem fá má frekari innsýn í starf sumarsins.


