Vel gengur að innleiða símafrí í grunnskólum Kópavogs
Vel gengur að innleiða sáttmála um símafrí í grunnskólum Kópavogs samkvæmt stöðumati sem unnið var meðal skólastjórnenda bæjarins.

Vel gengur að innleiða sáttmála um símafrí í grunnskólum Kópavogs samkvæmt stöðumati sem unnið var meðal skólastjórnenda bæjarins. Niðurstöðurnar sýna að mikill meirihluti nemenda fylgir reglum um símafrí, framkvæmdin hefur gengið vel og fá vandamál hafa komið upp.
Markmið símafrísins er að skapa öruggt og félagslega sterkt skóla- og frístundaumhverfi þar sem nemendur fá aukið tækifæri til að einbeita sér að námi, samskiptum og vellíðan. Skólastjórnendur lýsa almennt jákvæðri reynslu af breytingunni og telja nemendur hafa aðlagast nýju fyrirkomulagi vel.
Fram kemur í stöðumatinu að samvinna við nemendur, kynning fyrir foreldra og markviss afþreying í frímínútum hafi auðveldað innleiðingu. Í mörgum skólum hefur verið fjárfest í afþreyingu á borð við spil, borðtennis og billjarð til að styðja við skjálausar frímínútur.
„Við lítum á innleiðingu símafrís sem sameiginlegt verkefni skólasamfélagsins og það er ánægjulegt að sjá hversu vel nemendur, starfsfólk og foreldrar hafa tekið þátt. Við sjáum að skýr samskipti, samvinna við nemendur og fjölbreytt afþreying skipta miklu máli fyrir árangurinn. Í samráði við nemendur munum vð svo bæta við tækifærum til fjölbreyttrar afþreyingar. Líkt og við aðrar breytingar hafa komið upp einstaka áskoranir, þær eru þó takmarkaðar og almennt gengur símafríið vel,” segir Kristín Sigurðardóttir skólastjóri Salaskóla.
Heildarmat og næstu skref
Heildarmynd stöðumatsins bendir til þess að símafrí hafi fest sig í sessi sem eðlilegur hluti skóla- og frístundastarfs í Kópavogi. Í skólum sem höfðu áður innleitt símalaust umhverfi hefur sameiginlegi sáttmálinn aukið samræmi milli skóla og styrkt þau viðmið sem fyrir voru.
Næstu skref í Kópavogi er að vinna úr þeim ábendingum sem hafa borist frá skólasamfélaginu. Þær helstu eru að tryggja geymslulausnir fyrir síma einkum á unglingastigi, efla afþreyingu enn frekar og fræða foreldra enn betur um notkun síma og símaúra á skólatíma.


