Beint í efni
Til baka í yfirlit

Vel sótt upp­skeru­há­tíð í Saln­um

Uppskeruhátíð Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi fór fram í Salnum fimmtudaginn 17. ágúst

Ásdís Kritsjánsdóttir, bæjarstjóri, setti hátíðina formlega.
Ásdís Kritsjánsdóttir, bæjarstjóri, setti hátíðina formlega.

Uppskeruhátíð Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi fór fram í Salnum fimmtudaginn 17. ágúst. Í ár er 18. sumarið sem ungt listafólk starfar á vegum Kópavogsbæjar í skapandi verkefnum. Verkefnin í ár voru 17 talsins en að baki þeim stóðu 25 ungir listamenn.

Hátíðin var vel sótt og var þetta í fyrsta skipti sem listafólki Skapandi Sumarstarfa gafst að sýna afrakstur sumarsins í Salnum. Listamannabásum var komið fyrir í forsalnum þar sem gestir gátu skoðað bækur og skúlptúra og horft á vídjóverk.

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, setti hátíðina formlega en dagskráin stóð yfir frá 17-19. Sýningin hófst á ljúfum djasstónum hljómsveitarinnar Slagsmál og lauk með trylltum danstakti tónlistartvíeykisins Hreyfingar . Meðal atriða sem komu fram var brot úr leikriti Kötlu Yamagata og Gríms Smára, brot úr stuttmyndinni Lundur eftir Magnús Thorlacius og nýtt uppistand flutt af Ingu Steinunni.