Beint í efni
Til baka í yfirlit

Verð­ur þú bæj­ar­lista­mað­ur Kópa­vogs 2024?

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um næsta bæjarlistamann og koma einungis þeir einstaklingar til greina sem eiga lögh

Salurinn er meðal menningarhúsa Kópavogsbæjar.
Salurinn er meðal menningarhúsa Kópavogsbæjar.

Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum eða ábendingum um næsta bæjarlistamann og koma einungis þeir einstaklingar til greina sem eiga lögheimili í Kópavogi. Sá sem verður fyrir valinu tekur þátt í að efla áhuga á list og listsköpun meðal bæjarbúa m.a með viðburði þar sem hans listsköpun er höfð í heiðri.

Ráðið fer yfir umsóknir og ábendingar þar sem fram skulu koma helstu upplýsingar um viðkomandi, nám- og starfsferil og hugmyndir um með hvaða móti listamaðurinn hyggst auðga lista- og menningarlíf bæjarbúa. Styrkupphæð bæjarlistamanns Kópavogs er 1,5 milljónir króna.

Reglur um tilnefningu og starfshætti

Tekið er á móti umsóknum og ábendingum fyrir 16.apríl á netfangið menning@kopavogur.is