Vetrarhátíð í Kópavogi 2024
Forvitnileg og fjörug dagskrá verður á Vetrarhátíð í Kópavogi en hátíðin samanstendur af Safnanótt, Sundlaugakvöldi og ljósalist ásamt ótal viðburðum og sý

Forvitnileg og fjörug dagskrá verður á Vetrarhátíð í Kópavogi en hátíðin samanstendur af Safnanótt, Sundlaugakvöldi og ljósalist ásamt ótal viðburðum og sýningum þar sem fjöldi listafólks tekur þátt í að skapa rafmagnað andrúmsloft í Kópavogi.
Vatnaballett og varðveislurými, lúðurþeytarar og ljóðagjörningar, stjörnuskoðun og spádómar, silent diskó, Sigga Kling og miðausturlensk músíkveisla svo bara fátt eitt sé talið. Listamaðurinn Eygló Harðardóttir sýnir nýtt ljóslistaverk sitt, Sviðsmyndir, sem gert er sérstaklega fyrir Vetrarhátíð í Kópavogi og varpað verður á Kópavogskirkju bæði föstudags- og laugardagskvöld frá 19:30 - 24:00.
Fjölbreytt og litrík dagskrá sem nærir og kætir í Bókasafni Kópavogs, Gerðarsafni, Náttúrufræðistofu Kópavogs, Salnum, Molanum, í sýningarými Y við Hamraborg, Hljóðbókasafni, Kópavogskirkju og Sundlaug Kópavogs. Ókeypis er i sund á Sundlauganótt og í öll söfn á Safnanótt. Frír aðgangur á alla viðburði og öll hjartanlega velkomin á alla viðburði svo lengi sem húsrúm leyfir.
Fimmtudagur 1. febrúar
Sundlaug Kópavogs Opið til 22:00
18:00 - 18:30 Töframaðurinn Einar Aron Einar Aron er einn yngsti töframaður landsins en hefur þrátt fyrir það komið víða við og skapað sér nafn sem eftirsóttur töframaður, bæði meðal barna og fullorðinna. 18:30 - 18:50 Skólahljómsveit Kópavogs Sprellfjörug lagasyrpa með lúðurþeyturum framtíðarinnar. 20:00 - 21:00 Sundballetthópurinn Eilífðin Mynsturæfingar, samhæfing, klisjur, hlátur, frábær tónlist og gleði. Við lærum þvottavélina, lærum krókódílatæknina, síldartorfuna og sitthvað fleira. Sundballethópurinn Eilífðin eru systurnar Margrét Erla Maack, fjöllistadís og Vigdís Perla Maack, sviðslistakona.
Föstudagur 2. febrúar
Bókasafn Kópavogs Opið til 23:00
18:00 - 18:30 Ljóðagjörningur (2. hæð) Eyrún Ósk Jónsdóttir flytur ljóð úr ljóðabók sinni „Úr svartnættinu miðju skín ljós“ við trommuundirleik Akeem Richards sem spilar á afrískar trommur. 18:00 - 20:00 Stjörnumerkjaperl og stjörnumerkjabarmmerki (3. hæð) Hvaða stjörnumerki ertu? Hrútur, vatnsberi, fiskur eða naut? Komum saman og perlum okkar eigið stjörnumerki eða búum til flott stjörnumerkjabarmmerki á Safnanótt . 19:00 - 22:00 Silent diskó (2. hæð) Bókasafnið breytist í hljóðlátan næturklúbb á Safnanótt þegar boðið verður upp á Silent diskó á annarri hæð safnsins. 21:00 - 21:30 Síðkvöldstónleikar með Margréti Eir (2. hæð) Ljúfar útsetningar á kunnum popplögum úr öllum áttum, nýjum og gömlum. Börkur Hrafn Birgisson leikur á gítar . 21:00 - 23:00 Sigga Kling á Safnanótt Spákonan og gleðigjafinn Sigga Kling verður á vappi um Bókasafn Kópavogs á Safnanótt, kíkir í kristalskúluna og miðlar til gesta af sinni alkunnu visku. 22:00 - 23:00 Kvöldstund með Bergþóru Snæbjörnsdóttur og Braga Páli (2. hæð) Bergþóra og Bragi Páll rithöfundar spjalla um lífið og listina og lesa úr skáldsögum sínum Duft og Kjöt.
Gerðarsafn Opið til 23:00
18:00 - 18:45 Venjulegir staðir / Joe Keys og Haraldur Jónsson á Safnanótt Haraldur Jónsson og Joe Keys veita innsýn í verk sín á sýningunni Venjulegir staðir í Gerðarsafni 20:00 - 23:00 Leiðsögn og innsýn í Moltu, þverfaglega innsetningu 21:30 - 22:00 Innlit í varðveislurými Gerðarsafns Hulinn heimur varðveislurýmisins afhjúpaður gestum á Safnanótt Ókeypis á allar sýningar í Gerðarsafni á Safnanótt
Hljóðabókasafn Íslands (v. Digranesveg 5) Opið frá 18 - 22
19:30 - 19:45 Lúðrasveit verkalýðsins blæs í baráttulúðra 20:30 - 21:00 Nemendur úr framhaldsbraut Klassíska listdansskólans sýna frumsamið verk. Innblásturinn er tekinn frá hversdagslegum hreyfingum, atburðum og stöðum.
Komið og prófið að lesa inn sögur úr ótrúlegu ímyndunarafli gervigreindarinnar, sjáið atvinnulesara að störfum eða lærið fluguhnýtingar. Öll velkomin!
Kópavogskirkja
18:30 - 24:00 Sviðsmyndir. Nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur. Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju.
Molinn - menningarhús ungmenna v. Hábraut 2
21:00 - 23:00 Tilraunakvöld listamanna Tónlistafólk, uppistandarar, dansarar og myndlistamenn stíga á svið og sýna áhorfendum brot af fjölbreyttum verkum í vinnslu.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
18:00 - 23:00 Náttúrubingó um Borgarholtið Hver er þessi umtalaði vetrarbúningur náttúrunnar? Hvað er hægt að skoða þegar hún sefur, ef hún gerir það nokkurn tímann?Náttúrubingó með vetrarþema. Falleg baverðlaun fyrir heppna bingóspilara. 18:45 - 19:00 Lúðrasveit verkalýðsins Eldhress lagasyrpa með einni skemmtilegustu lúðrasveit landsins. 19:00 - 20:00 Stjörnuskoðun með Stjörnu-Sævari Skyggnst verður upp í himininn á Safnanótt, spáð í stjörnur og Júpíter skoðaður í gegnum sjónauka ef veður leyfir.
Salurinn
20:00 - 21:00 Layali Fairuz | Nætur Fairuz Líbanska söngkonan Fairuz er dýrkuð og dáð víða um heim. Hér hljómar hrífandi tónlist Fairuz í flutningi einvala hóps tónlistarfólks og gestasöngvara.
y-gallerý
17:00 - 19:00 Opnun á sýningu Bjarna Þórs Péturssonar
Laugardagur 3. febrúar
Gerðarsafn
15:00 -16:00 Gerðarverðlaunin Lifandi tónlist í flutningi Davíðs Þórs Jónssonar. Nýr handhafi Gerðarverðlauna tekur á móti viðurkenningu.
Kópavogskirkja
18:30 - 24:00 Sviðsmyndir. Nýtt ljóslistaverk eftir Eygló Harðardóttur Verkið Sviðsmyndir er vídeóverk sem leggst eins og gegnsæ himna á Kópavogskirkju.


