Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarstjórn - 1286. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
  • Sigrún Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Kolbeinn Reginsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Theódóra S Þorsteinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Bergljót Kristinsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 378. fundur frá 13.10.2023

Fundargerð í fjórum liðum.

Bæjarstjórn staðfestir með 10 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.

02

Bæjarráð - 3146. fundur frá 12.10.2023

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 3147. fundur frá 19.10.2023

Fundargerð í 18 liðum.

Lagt fram.

04

Forsætisnefnd - 216. fundur frá 19.10.2023

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

05

Lista- og menningarráð - 157. fundur frá 04.10.2023

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

06

Menntaráð - 120. fundur frá 17.10.2023

Fundargerð í 15 liðum.

Lagt fram.

07

Velferðarráð - 124. fundur frá 09.10.2023

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.

08

Skipulagsráð - 151. fundur frá 16.10.2023

Fundargerð í 18 liðum.

Lagt fram.


8.12 - 23092999 - Lækjarhjalli 42. Umsókn um lóðarstækkun.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 42 við Lækjarhjalla dags. 28. september 2023 um stækkun lóðarinnar til vesturs og uppsetningu veggjar með girðingu á lóðarmörkum.

Skipulagsráð hafnar framlagði umsókn.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.



8.13 - 2310810 - Geirland 1. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 30. september 2023 þar sem umsókn Kristjáns Bjarnasonar byggingarverkfræðings dags. 2. september 2023 um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Geirland er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um að staðsetja 27,7 m² smáhýsi á lóðinni.
Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 2. september 2023.

Skipulagsráð hafnar erindinu með 6 atkvæðum.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kolbeinn Reginsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 9 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginssonar.



8.15 - 23041422 - Þinghólsbraut 56. Kynning á byggingarleyfisumsókn

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 14. apríl 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Guðmunds Jónssonar byggingarfræðings dags. 15. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 56 við Þinghólsbraut er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir byggingu bílageymslu á vesturhluta lóðarinnar alls 63,5 m2 að flatarmáli.
Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og breytt 15. júlí 2023, uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og breytt 5. júní 2023, uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 15. nóvember 2022 og skráningartafla og afstöðumynd í mkv. 1:500 dags. 15. nóvember 2022.
Á fundi skipulagsráðs þann 21. ágúst 2023 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfið. Kynningartíma lauk 27. september, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.



8.16 - 23052182 - Silfursmári 12. Tillaga að breyttu deiliskipulagi.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Silfursmára dags. 10. júlí 2023 um breytingu á deiliskipulagi. Á lóðinni sem er óbyggð er heimilt að reisa skv. gildandi deiliskipulagi 1.927 m² atvinnuhúsnæði á fjórum hæðum ásamt kjallara og niðurgrafinni bílageymslu. Í breytingunni felst aukning byggingarmagns um 437 m² í 2.400 m², fjöldi bílastæða verði óbreyttur eða 55 í heildina. Stærð byggingarreits helst óbreytt.
Á fundi skipulagsráðs þann 17. júlí 2023 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 13. október 2023, engar athugasemdir bárust. Meðfylgjandi er kynningaruppdráttur dags. 14. ágúst 2023.

Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Kolbeinn Reginsson óskar eftir nafnakall við afgreiðslu málsins.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með eftirfarandi hætti:

Elísabet Berglind Sveinsdóttir sagði já
Ásdís Kristjánsdóttir sagði já
Orri V. Hlöðversson sagði já
Andri Steinn Hilmarsson sagði Já
Bergur Þorri Benjamínsson sagði já
Sigrún Hulda Jónsdóttir sagði já
Kolbeinn Reginsson sagði nei
Indriði I. Stefánsson sagði já
Einar Ö. Þorvarðarson sagði já
Hákon Gunnarsson sagði já

Fundarhlé hófst kl. 16:40, fundi fram haldið kl. 17:01



8.17 - 22114320 - Huldubraut 28. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju umsókn Páls Hjaltasonar arkitekts dags. 9. nóvember 2022 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 28 við Huldubraut um breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst að heimilt verði að nýta ósamþykktan kjallara undir húsinu alls 155,5 m² að stærð. Gert er ráð fyrir að setja nýjar tröppur á norðurhlið hússins til að tryggja aðra flóttaleið úr kjallaranum. Jafnframt er óskað eftir stækkun á svölum á norðurhlið og að útistigi verði frá svölum niður í garð. Byggingarmagn á lóðinni er 304,9 m², verður 463,6 m². Nýtingarhlutfall er 0,44 m², verður 0,67 m². Meðfylgjandi er skýringaruppdráttur í mkv. 1:500, 1:200 og 1:100 dags. 24. nóv. 2022. Á fundi skipulagsráðs 28. nóvember 2022 var afgreiðslu frestað. Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar 28. nóvember 2022.
Á fundi skipulagsráð 5. desember 2022 var erindið samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi yrði auglýst. Kynningaruppdráttur dags. 25. nóvember 2022. Kynningartíma lauk 19. september 2023, umsagnir og athugasemdir bárust. Á 150. fundi skipulagsráðs þann 2. október 2023 voru lagðar fram umsagnir og athugasemdir sem báurst á kynningartíma og erindinu var vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. október 2023.

Skipulagsráð samþykkir erindið.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.



8.5 - 23091454 - Dalsmári 13. Stækkun Tennishallar. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram uppfærð umsókn Former arkitekta dags. 11. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 13 við Dalsmára um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 10m frá núverandi lóðamörkum í austur, alls um 660 m² ásamt tillögu að viðbyggingu við núverandi hús á lóðinni alls um 1.800 m² að flatarmáli. Í uppfærðri umsókn er sótt um heimild fyrir veitingastað í flokki 2 í núverandi húsnæði á lóðinni.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:500 dags. 12. október 2023.

Hákon Gunnarsson ber upp tillögu um að afgreiðslu málsins verði frestað.

Skipulagsráð hafnar tillögu að frestun með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Theódóru S. Þorsteinsdóttur gegn atkvæði Hákonar Gunnarssonar.
Sveinn Gíslason og Kolbeinn Reginsson sátu hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Kolbeins Reginssonar gegn atkvæði Hákonar Gunnarssonar.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:
„Í erindi Tennishallarinnar um stækkun lóðar í Kópavogsdal og breytt deiliskipulag er verið að óska eftir stækkun innan landnotkunarsvæðis sem er samkvæmt Aðalskipulagi Kópavogsbæjar 2019-2040 skilgreint sem íþróttasvæði ÍÞ-4.
Á fundi bæjarráðs þann 28. september var skipaður starfshópur um skipulag Kópavogsdalsins og er íþróttasvæði ÍÞ-4 hluti af því svæði. Skipulag á íþróttasvæðinu ÍÞ-4 í Kópavogsdal hlýtur því að vera hluti af viðfangsefni þess sem starfshópurinn á að móta. Það getur ekki talist góð stjórnsýsla um skipulag Kópavogsdals að breyta um deiliskipulag á svæðinu á meðan starfshópurinn vinnur sitt verk og hefur ekki skilað af sér niðurstöðu.“
Hákon Gunnarsson

Bókun:
„Hinn 6. mars 2023 tóku allir nefndarmenn skipulagsráðs jákvætt í fyrirspurn Tennishallarinnar um viðbyggingu fyrir sex padelvelli á lóð Tennishallarinnar, þar sem nú eru bílastæði. Það er mikilvægt að málið skoðist í því ljósi enda komu hugmyndir um skipan starfshóps um skipulag Kópavogsdals í framhaldi af þeirri afgreiðslu skipulagsráðs, bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Nýjum tillögum um afnot af bæjarlandi í Kópavogsdal hefur verið slegið á frest eða hafnað, sbr. hugmyndum um hjólabrettaskál við Smárahvammsvöll, á þeim forsendum að bíða með ráðstafanir lands á svæðinu þar til niðurstaða liggur fyrir hjá starfshópnum. Önnur sjónarmið gilda um stækkun Tennishallarinnar að mati undirritaðra þar sem sú vinna var löngu hafin áður en tillaga um stofnun starfshópsins lá fyrir.“
Andri Steinn Hilmarsson, Hjördís Ýr Johnson, Kristinn D. Gissurarson, Sveinn Gíslason og Theódóra S. Þorsteinsdóttir.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 8 atkvæðum gegn atkvæði Hákons Gunnarssonar og hjásetu Orra V. Hlöðverssonar.



8.6 - 23092612 - Tónahvarf 12. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Gunnars Sigurðssonar arkitekts dags. 25. september 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Tónahvarf um breytt deiliskipulag. Í breytingunni felst stækkun lóðarinnar um 30 m til suðurs fyrir bílastæði og athafnasvæði, alls 2.100 m². Stærð lóðarinnar breytist úr 5.287 m² í 7.387 m². Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt. Nýtingarhlutfall lóðarinnar eykst úr 0,77 í 0,55.
Uppdrættir í mkv. 1:200 og 1:500 dags. 22. september 2023.

Skipulagsráð hafnar framlagðri umsókn um breytingu á deiliskipulagi.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum.


09

Ungmennaráð - 41. fundur frá 16.10.2023

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

10

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 03.10.2023

Fundargerð fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnafjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 03.10.2023.

Lagt fram.

11

Fundargerð 112. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 29.09.2023

Fundargerð 112. fundar stjórnar Markaðsstofu Kópavogs frá 29.09.2023.

Lagt fram.

12

Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.09.2023

Fundargerð 934. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 29.09.2023

Lagt fram.

13

Fundargerð 565. fundar stjórnar SSH frá 02.10.2023

Fundargerð 565. fundar stjórnar SSH frá 02.10.2023.

Lagt fram.

14

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Strætó frá 02.10.2023

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Strætó frá 02.10.2023.

Lagt fram.

15

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2023

Fundargerð 44. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 02.10.2023.

Bókun bæjarstjórnar Kópavogs:
"Bæjarstjórn Kópavogs óskar konum, kvárum og öllum þeim sem berjast fyrir hvers kyns jafnrétti og gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi, til hamingju með daginn."