Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3141. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Mánaðarskýrslur 2023

Deildarstjóri hagdeildar fer yfir mánaðarskýrslur fyrir tímabilið janúar - júní 2023.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Staða uppbyggingar nýs Kársnesskóla

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lagt fram uppfært skipurit um verkið uppbygging nýs Kársnesskóla. Einnig lagt fram minnisblað lögmanns dags. 04.09.2023 ásamt mánaðarskýrslu fyrir ágúst.

Lagt fram og rætt.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Starfshópur - heildarsýn fyrir Kópavogsdal

Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að erindisbréfi starfshópsins.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum stofnun starfshópsins, ásamt framlögðum drögum að erindisbréfi svo breyttum.

Skipun hópsins er vísað til næsta fundar bæjarráðs.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Álfhólsvegur 70. Kæra nr. 542023 vegna ákvörðunar byggingafulltrúa

Lagður fram til kynningar úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála í kærumáli nr. 54/2023.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Engihjalli 8. Umsagnarbeiðni um geymslustað ökutækja

Frá lögfræðideild, dags. 05.09.2023, lögð fram umsögn um staðsetningu ökutækaleigu að Engihjalla 8.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan í minnisblað lögfræðideildar.

Ýmis erindi

06

Beiðni um styrk fyrir rekstur Stígamóta 2024

Frá Stígamótum, dags. 30.08.2023, lögð fram umsókn um styrk.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra velferðarsviðs.

Ýmis erindi

07

Styrkbeiðni Bjarkarhlíð fyrir árið 2023

Frá Bjarkarhlíð, dags. 29.08.2023, lögð fram umsókn um styrk.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra velferðarsviðs.

Ýmis erindi

08

Framlag vegna barna með fjölþættan vanda og-eða miklar þroska- og geðraskanir og eru vistuð utan heimilis 2023

Frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, dags. 01.09.2023, lagt fram erindi varðandi áform um að veita framlag úr ríkissjóði til að standa straum af hluta kostnaðar sveitarfélaga vegna barna með fjölþættan vanda og/eða miklar þroska- og geðraskanir sem vistuð hafa verið utan heimilis árið 2023 á grundvelli laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þann 16. júní 2022 skipaði mennta- og barnamálaráðherra stýrihóp um fyrirkomulag þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem hafði það hlutverk að kortleggja og greina þjónustuþörf þessa hóps og endurskoða fyrirkomulag úrræða og þjónustu í þessum málaflokki, með réttindi barna og aðgengi þeirra að fullnægjandi þjónustu að leiðarljósi. Einnig átti stýrihópurinn að leggja til verka- og kostnaðarskiptingu vegna þeirrar þjónustu á milli sveitarfélaga og ríkisins. Stýrihópurinn skilaði formlega skýrslu sinni til ráðherra nú í ágúst.

Frestað til næsta fundar.

Ýmis erindi

09

Óskað eftir samræðum um byggingu sjálfstæðra eignaríbúða fyrir aldraða

Frá Samtökum aldraðra, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samræðum um byggingu sjálfstæðra eingaíbúða fyrir aldraða.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra velferðarsviðs og bæjarstjóra.

Fundargerðir nefnda

10

Lista- og menningarráð - 156. fundur frá 05.09.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Menntaráð - 117. fundur frá 05.09.2023

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Íþróttaráð - 134. fundur frá 30.08.2023

Fundargerð í tíu liðum.

Lagt fram.


12.1 - 23052191 - Merkingar á íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar

Deildarstjóri íþróttadeildar lagði fram og kynnti drög að merkingum á íþróttamannvirkjum ásamt drögum að reglum um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar sem unnin voru af vinnuhópi sem skipaður var á 130. fundi íþróttaráðs.

Íþróttaráð lýsir ánægju sinni með þá vinnu sem fram hefur farið varðandi merkingar og auglýsingar á íþróttamannvirkjum bæjarins. Með þessu er verið að skapa heildstæða umgjörð um merkingar og auglýsingamál íþróttamannvirkja og skapa félögunum aukna tekjumöguleika.
Íþróttaráð samþykkir því tillögurnar með fyrirvara um þær breytingar sem fram komu á fundinum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa drögum að reglum um auglýsingar í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.


Fundargerðir nefnda

13

Skipulagsráð - 148. fundur frá 04.09.2023

Fundargerð í 12 liðum.

Lagt fram.


13.10 - 23061946 - Borgarholtsbraut 34. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 23. júní 2023 þar sem umsókn Pálmars Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvisti á suður- og norðurhlið hússins ásamt breytingum á innra skipulagi og brunavörnum. Við breytinguna stækkar húsið um 2,7 m².
Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 15. ágúst 2022 og skráningartafla dags. 9. júní 2022. Á fundi skipulagsráðs 3. júlí 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna, kynningartíma lauk 25. ágúst 2023. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



13.11 - 23052116 - Fífuhvammur 45. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 26. maí 2023 þar sem umsókn TAG teiknistofu ehf. um byggingarleyfi f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 45 við Fífuhvamm er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að byggja 68 m² bílskúr við lóðarmörk að Fífuhvammi 43. Skv. gildandi mæliblaði er bílastæði á lóðinni Reynihvamms megin. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar liggur fyrir.
Þá lagðir fram uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 17. febrúar 2023. Á fundi skipulagsráðs 16. júní 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna og kynningartíma lauk 25. ágúst 2023. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



13.2 - 23083060 - Leikskóli við Skólatröð. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Guðrúnar Rögnu Yngvadóttur arkitekts dags. 1. september 2023 f.h. umhverfissviðs Kópavogsbæjar vegna lóðarinnar nr. 12A við Vallartröð að breyttu deiliskipulagi. Í breytingunni felst breyting á formi byggingarreits á lóðinni. Byggingarreitur verði breikkaður um tvo metra til suðurs að hluta og færist um tvo metra til vesturs að hluta. Byggingarmagn og mænishæð helst óbreytt.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 dags. 24. ágúst 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



13.3 - 23062242 - Nónhæð. Nónsmári 1-7 og 9-15. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn lóðarhafa dags. 29. júní 2023 um breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 1-7 (lóð C) og 9-15 (lóð B) við Nónsmára. Í breytingunni felst að íbúðum fjölgar um 5, úr 55 í 60 á lóð C ásamt því byggingarreitur hækkar úr fjórum hæðum og kjallara í fimm hæðir og kjallara á suðurhluta lóðarinnar og úr tveimur hæðum og kjallara í þrjár hæðir og kjallara á norðurhluta lóðarinnar. Hámark byggingarmagns án kjallara eykst úr 5.960 m² í 7.600 m² og nýtingarhlutfall án kjallara hækkar úr 0,94 í 1,18. Jafnframt er óskað eftir stækkun lóðarinnar um 1 m til austurs að göngustíg samhliða Smárahvammsvegi. Á lóð B fjölgar íbúðum um 2 úr 45 í 47 íbúðir ásamt því að byggingarreitur hækkar úr tveimur hæðum og kjallara í þrjár hæðir og kjallara á norðurhluta lóðarinnar. Hámark byggingarmagns án kjallara eykst úr 4.840 m² í 5.200 m² og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,92 í 0,99. Þá er salarhæð fjórðu hæðar hækkuð úr 2,8 m í 3,2 m á báðum lóðum.
Uppdráttur í mkv. 1:2000 dags. 29. júní 2023.
Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 31. ágúst 2023.

Tillaga Kristins Dags Gissurarsonar að afgreiðslu málsins:
Skipulagsráð lítur jákvætt á framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Skipulagsdeildinni falið að vinna að endanlegri útfærslu.

Skipulagsráð hafnar tillögu Kristins Dags Gissurarsonar með þremur atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur gegn atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar.
Hákon Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu tillögunnar.

Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu að breyttu deiliskipulagi dags. 29. júní 2023 með þremur atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur gegn atkvæðum Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Hákon Gunnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bókun:
„Framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi, dags. 29. júní 2023, er í meginatriðum sambærileg fyrri tillögu, dags. 11. janúar 2022, sem hafnað var í skipulagsráði 17. apríl 2023. Þó svo að í ofangreindri tillögu sé óskað eftir færri íbúðum en áður er ennþá verið að leggja til aukið byggingarmagn og hækkun húsa. Tillagan gengur jafnframt gegn fyrri ákvörðun skipulagsráðs, dags. 4. desember 2017, sem byggði á víðtæku samráði við hagsmunaaðila. Íbúar eiga að geta treyst því að ekki sé ráðist í breytingar á skipulagi nema veigamiklar ástæður eða skipulagsrök standi til þess, sbr. markmið skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati skipulagsráðs ber sú tillaga sem nú er lögð fyrir ekki slíkar efnislegar breytingar að veigamiklar ástæður né málefnaleg sjónarmið séu til staðar sem kalli á breytingar á gildandi deiliskipulagi."
Hjördís Ýr Johnson, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Helga Jónsdóttir og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.

Bókun:
"Það er ótrúlegt að enn á ný skuli „meirihluti" skipulagsráðs leggjast gegn breytingu á deiliskipulagi Nónhæðar. Breytingarnar eru skynsamlegar og að öllu leyti í samræmi við markmið Aðalskipulags Kópavogs. Þar fyrir utan hafa breytingarnar engin áhrif á aðliggjandi byggð. Skylt og rétt er að taka fram að breytingar þessar eru í fullu samræmi við markmið skipulagslaga nr. 123/2010. Hvernig „meirihluti" skipulagsráðs getur notað þessi sömu lög til að réttlæta ákvörðun sína er undirrituðum hulin ráðgáta."
Kristinn Dagur Gissurarson.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



13.8 - 2304668 - Vallakór 4. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Helga Más Halldórssonar arkitekts dags. 4. apríl 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Vallakór að breyttu deiliskipulagi. Í breytingunni felst heimild fyrir 23 bílastæðum á norðvestur horni lóðarinnar. Þá yrði fyrirhuguð grenndarstöð færð nær Vatnsendavegi og stækkuð í samræmi við stefnu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar samræmda flokkun á úrgangi. Í Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 er svæðið skilgreint sem hverfiskjarni. Á fundi skipulagsráðs 15. maí 2023 var samþykkt að auglýsa tillöguna. Kynningartíma lauk 22. ágúst. Á kynningartíma barst ábending frá Veitum dags. 11. ágúst 2023 um lagnir undir fyrirhugaðri grenndarstöð.
Þá er lögð fram breytt tillaga dags. 4. apríl 2023 og uppfærð 31. ágúst 2023 þar sem staðsetning lagna er sýnd á uppdrætti og skilmálum þær varðandi bætt við í greinargerð í samræmi við ofangreinda ábendingu frá Veitum.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi dags. 4. apríl 2023 með áorðnum breytingum dags. 31. ágúst 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



13.9 - 23061397 - Fornahvarf 10. Breytt deiliskipulag

Lagt fram að nýju erindi Haraldar Ingvarssonar arkitekts dags. 16. júní 2023 þar sem óskað er eftir f.h. lóðarhafa, breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Fornahvarf. Á lóðinni í dag er íbúðarhús 144,6 m², geymsla 42,6 m² og hesthús 144 m². Samtals byggingarmagn á lóðinni 331,2 m². Í breytingunni felst að stækka íbúðarhúsið um 467 m² til norðurs á tveimur hæðum og kjallara ásamt úti vaðlaug að sunnanverðu og áorðinna breytinga þar með talið nýtt gufubað og stækkun á sólskála. Áætlað er einnig að byggja 185,5 m² vinnustofu á norð-austur hluta lóðarinnar, tvöfaldan 56,3 m² bílskúr á suð-vestur hluta lóðarinnar og að breyta geymslu að hluta til í gestahús og stækka það um 5,4 m². Byggingarmagn á lóðinni eykst um 714,2 m² og mun því eftir breytinguna verða um 1050 m². Lóðin er 4800 m² mun því nýtingarhlutfall á lóðinni hækka úr 0,07 í 0,22 við breytinguna. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 10. janúar 2023 og 31. mars 2023.
Á fundi skipulagsráðs 19. júní 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillögu að breyttu deiliskipulagi. Kynningartíma lauk 3. ágúst 2023. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2023 voru athugasemdir lagðar fram, skipulagsráð vísaði þeim til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 30. ágúst 2023 ásamt breyttum deiliskipulagsuppdrætti dags. 26. júní 2023 og uppfærður 30. ágúst 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi dags. 26. júní 2023 með áorðnum breytingum dags. 30. ágúst 2023. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

14

Fundargerð 373. fundar stjórnar Strætó frá 25.08.2023

Fundargerð 373. fundar stjórnar Strætó frá 25.08.2023.

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

15

Tillaga bæjarfulltrúa Viðreisnar, Pírata, Vinum Kópavogs og Samfylkingar um sameiginlegt tilraunaverkefni um rekstur næturstrætó

Lögð fram tillaga Pírata, Viðreisnar, Vina Kópavogs og Samfylkingar um sameiginlegt tilraunaverkefni um rekstur næturstrætó.

Umræður.

Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur.

Bókun:

"Það er mat meirihlutans að áherslan eigi að liggja í grunnþjónustu Strætó en í dag koma upp tilfelli þar sem yfirfullir vagnar keyra fram hjá strætisvagnaskýlum og ekki eru fjárhagslegir burðir til þess að bæta við vögnum eða auka tíðni á þeim leiðum. Þá er mikilvægt að það komi fram að næturstrætó sem stoppar í Hamraborg þjónustar aðeins lítinn hóp Kópavogsbúa og ljóst að tugi milljóna þyrfti til að þjónusta allan Kópavog með almenningssamgöngum á nóttunni. Rekstur strætó er ósjálfbær og ljóst að öðru óbreyttu þurfi sveitarfélög að koma með aukin framlög inn í reksturinn til að sinna grunnþjónustu Strætó. Í þessu ljósi þykir meirihlutanum það röng forgangsröðun að hefja næturakstur."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Bókun:

"Strætó mun, á leið sinni til Hafnarfjarðar, stoppa í Hamraborg en það þjónustar aðeins lítinn hóp Kópavogsbúa. Undirritaðar harma að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hafi ekki áhuga á að skoða kosti þess að jafna tækifæri íbúa í öðrum bæjarhlutum, með því að fara af stað í tilraunaverkefni með Hafnarfjarðarbæ um akstur næturstrætó að vetri. Almenningssamgöngur eru mikilvæg og loftslagsvæn þjónusta sem gerir fólki kleift að komast leiða sinna á bæði öruggan og áreiðanlegan hátt. Akstur næturstrætó stuðlar að skaðaminnkun og bætir öryggi þeirra sem þurfa að komast leiða sinna en geta ekki ekið bíl."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Andri S. Hilmarsson vék af fundi kl. 11:45.

Bókun:

"Hafnarfjörður er að fara í gang með tilraunaverkefni um næturakstur á leið eitt sem mun einugis þjóna litlum hluta Kópavogsbúa. Víðtæk þjónusta til handa öllum Kópavogsbúum er varðar næturstrætó er of kostnaðarsöm að mati meirihluta"

Orri V. Hlöðversson

Hjördis Ýr Johnson

Erindi frá bæjarfulltrúum

16

Tillaga bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttir og Bergljótar Kristinsdóttur um stofnun starfshóps til að hafa eftirlit með innleiðingu breytinga á þjónustu leikskóla

Mál tekið inn með afbrigðum.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til frekari vinnslu hjá bæjarstjóra til undirbúnings frekari umræðu í bæjarráði.