Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Traðareitur vestari. Byggingaráform.

Málsnúmer: 2502435

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1321. fundur

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025 ásamt kynningu dags. 17. mars 2025 og drögum að sérteikningu lóðar dags. 30. apríl 2025.

Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.

Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma vorukynnt á fundinum.

Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.

Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.

Díana Berglind Valbergsdóttir og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Kolbeins Reginssonar, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.

02

Bæjarráð - 3216. fundur

Lögð fram að nýju í samræmi við skipulagsskilmála drög Nordic office of architecture f.h. lóðarhafa að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025 ásamt kynningu dags. 17. mars 2025 og drögum að sérteikningu lóðar dags. 30. apríl 2025.

Einnig eru lögð fram uppfærð drög að aðkomuáætlun dags. 15. maí 2025, uppfærð drög að merkingaáætlun dags. 22. apríl 2025, frum-framkvæmdaáætlun ódags., og minnisblað um framkvæmdafasa dags. 14. maí 2025, unnið af Örugg verkfræðistofu.

Drög að samskiptaáætlun um upplýsingagjöf til hagsmunaaðila á svæðinu á framkvæmdatíma vorukynnt á fundinum.

Grétar Snorrason og Hjalti Brynjarsson frá Nordic arkitektum, Elvar Ingi Jóhannesson frá Örugg verkfræðistofu, Jóhann Sindri Pétursson frá Landmótum og Eyrún Valþórsdóttir arkitekt gerðu grein fyrir erindinu.

Bergþóra Benediktsdóttir og Agnar Tr. Lemacks frá Aton, samskipta- og hönnunarstofu, gerðu grein fyrir drögum að samskiptaáætlun.

Díana Berglind Valbergsdóttir og Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

03

Skipulags- og umhverfisráð - 8. fundur

Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð drög að byggingaráformum dags. 9. janúar 2025. Afgreitt með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Andra Steins Hilmarssonar gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Leós Snæs Péturssonar.

Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:

„Fyrirhuguð afgreiðsla málsins fer ekki saman við bókanir minni- og meirihluta ráðsins við mál 2410796 frá 17. mars 2025 sem gerðu ráð fyrir samráði við hagsmunaaðila þegar byggingaráform lægju fyrir. Nú liggja áformin fyrir og til stendur að vísa til bæjarstjórnar til samþykktar en kynningarfundir hafa ekki enn verið haldnir. Standa ætti við bókanir frá 17. mars 2025 og halda fundina áður en málinu er vísað til bæjarstjórnar.“

Indriði Ingi Stefánsson, Leó Snær Pétursson, Helga Jónsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.

Bókun:

„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu í kring og öðrum hagaðilum eins og segir í bókun meirihlutans frá 17. mars. Þar ávarpaði meirihlutinn að ekki væri tilefni til að halda upplýsingafund fyrr en byggingaráform lægju fyrir, en reikna má með því að þau verði samþykkt og liggi fyrir eftir næsta fund bæjarstjórnar.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:

„Byggingaráform sem nú eru kynnt fyrir Fannborgarreit og Traðarreit vestur eru staðfesting á því hversu krefjandi deiliskipulag reitanna er í uppbyggingu. Byggingaráformin eru ekki tæk til afgreiðslu því enn hefur ekki tekist að tryggja aðgengi hreyfihamlaðra á byggingartíma. Ekkert samráð hefur verið við íbúa í nágrenni uppbyggingarinnar sem verða fyrir dæmafáu raski á uppbyggingartíma. Ekkert samráð hefur heldur verið við hagsmunaaðila, eins og kirkjuna og menningarstofnanirnar, sem munu búa við að bílastæðum í grenndinni fækkar um marga tugi á uppbyggingartímanum. Verst er þó að ekkert hefur verið rætt við íbúa í Fannborg 1-9 en einu lausnirnar sem lagðar eru til fyrir aðgengi hreyfihamlaðra íbúa í húsunum og til að tryggja brunavarnir byggjast á samkomulagi við þá.“

Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:

„Mjög hefur verið vandað til undirbúnings þessa verkefnis enda er gengið lengra en skipulagslög kveða á um með því að taka byggingaráformin til umfjöllunar hjá ráðinu. Umrædd byggingaráform sem við höfum fengið til umfjöllunar samræmast deiliskipulagi. Ekki er hægt að ráðast í jafn umfangsmikla uppbyggingu og er framundan á Fannborgarreit og Traðarreit vestur öðruvísi en að eitthvað rask verði á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur lagt ríka áherslu á að slíkt rask verði lágmarkað eins og kostur er og að tryggð verði vönduð upplýsingagjöf til íbúa og hagsmunaaðila á svæðinu. Í ljósi upptalningar minnihlutans á meintum ágöllum byggingaráformanna er meirihlutanum skylt að koma því á framfæri að framkvæmdaaðila er gert að uppfylla ströng skilyrði fyrir aðkomu- og merkingaráætlun og sýna fram á að þeim sé mætt. Öðruvísi fæst ekki útgefið byggingarleyfi á framkvæmdina.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

Bókun:

„Í þeim gögnum sem liggja fyrir þessum fundi eru skilyrði fyrir aðgengi hreyfihamlaða ekki uppfyllt.“

Bergljót Kristinsdóttir, Helga Jónsdóttir, Indriði Ingi Stefánsson og Leó Snær Pétursson.

Bókun:

„Byggingarfulltrúi mun ekki samþykkja byggingaráform nema lögum og skilyrðum sé fullnægt.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.

04

Skipulags- og umhverfisráð - 5. fundur

Með tilvísun í deiliskipulagsskilmála í deiliskipulagi Miðbæjar Kópavogs, Fannborgarreitur og Traðarreitur vestur, samþykkt dags. 14. desember 2021, eru lögð fram byggingaráform Nordic Office of Architecture dags. 9. janúar 2025 f.h. lóðarhafa. Í byggingaráformum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins fellur að viðmiðum í almennum ákvæðum í skipulagsskilmálum í gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2021 og birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 20. desember 2021.

Með áformunum fylgja yfirlitsmynd lóðar dags. 20. desember 2024, aðkomu- og merkingaráætlun dags. 6. mars 2025, kynning umhverfishönnunar án.dags., tímalína án dags., verkáætlun án dags., verkfasar og lokanir minnisblað dags. 15. janúar 2025, vindgreining dags. 9. janúar 2025 og klæðningar dags. 9. janúar 2025.

Eyrún Valþórsdóttir arkitekt frá Nordic Office of Architecture og Jóhann Sindri Pétursson landslagsarkitekt gera grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt.

Fundarhlé kl. 17:07, fundi fram haldið kl. 17:28.

Bókun:

„Undirrituð hvetja til þess að Kópavogsbær boði hið allra fyrsta til upplýsingafundar fyrir íbúa svæðisins um stöðu mála á Fannborgarreit og Traðarreit vestur. Farið er fram á að tillögur um byggingaráform á Fannborgarreit og Traðarreit vestur verði sendar til kynningar og umsagnar í öldungaráði og notendaráði í málefnum fatlaðra og umsagnir verði lagðar fyrir fund skipulagsráðs þegar þetta mál verður næst á dagskrá. Þá er þess óskað að kallað sé eftir ábendingum frá Alta í ljósi þess að ráðgjafar þeirra unnu forsendugreiningu fyrir aðliggjandi miðbæjarsvæði Kópavogs.“

Helga Jónsdóttir, Hákon Gunnarsson, Leó Snær Pétursson og Indriði Ingi Stefánsson.

Bókun:

„Lögð verður áhersla á góða kynningu gagnvart íbúum á svæðinu og í kring og öðrum hagaðilum, þar sem kynnt verða fyrirhuguð áform á Fannborgarreit og Traðarreit vestur. Slíkir fundir geta farið fram þegar áætlanir lóðarhafa liggja fyrir.“

Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Andri Steinn Hilmarsson og Gunnar Sær Ragnarsson.