Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Málsnúmer: 26011426

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 16. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfissviðs dags. 1. júlí 2026 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.

Afgreiðslu frestað.

Bókun:

„Miðflokkurinn telur jákvætt að Kópavogsbær og hagsmunaaðilar eigi í samtali um uppbyggingu á svæðinu er varðar öryggismál, aukið aðgengi að útivistarsvæðum og hóflega þéttingu byggðar.

Verði niðurstaða málsins sú að bíða skuli heildstæðrar stefnumótunar fyrir svæðið við Elliðavatn, telur Miðflokkurinn nauðsynlegt að skýrt komi fram hvaða svæði slík stefnumótun tekur til, hvenær henni er ætlað að ljúka og hvernig að henni verður staðið. Frestun án skilgreinds tímaramma samrýmist illa málshraðareglu 9.gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, einkum í máli sem verið hefur í meðferð bæjarins frá janúar 2026 og varðar öryggi barna á skólaleið.

Miðflokkurinn telur að sjónarmið um heildstæða stefnumótun fyrir svæðið við Elliðavatn og afgreiðsla þessa erindis útiloki ekki hvað annað. Telur flokkurinn að fullt tilefni sé til þess að samþykkja fyrirliggjandi tillögur til auglýsinga, sbr.1. mgr. 36. gr. Skipulagslaga, og fela umhverfissviði að hefja vinnu við heildstæða stefnumótun samhliða því ferli.

Miðflokkurinn leggur ríka áherslu á gott og skilvirkt samtal á milli Kópavogsbæjar og hagsmunaaðila. Ljúka þarf áragömlum ágreiningi og hefja uppbyggilega samvinnu. Íbúar Kópavogsbæjar eru orðnir langþreyttir á þeim kostnaðarsömu málaferlum sem reglulega hafa blossað upp á milli bæjarins og landeiganda á Vatnsenda, en þar eru íbúar bæjarins sem á endanum þurfa að standa straum af þeim kostnaði.“

Beitir Ólafsson.

02

Skipulags- og umhverfisráð - 26. fundur

Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 1B og 510 við Vatnsendablett og landeiganda um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig eru lögð fram verklýsing dags. í mars 2026, skýringarhefti VBV um gatnagerð og lagnir dags. í mars 2026 og minnisblað VBV um gatnagerð, jarðvegsskipti og kennisnið gatna dags. 5. desember 2025.

Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 39. fundur

Lögð fram umsókn Kristins Ragnarssonar arkitekts dags. 16. janúar 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1B við Vatnsendablett um breytingu á aðal- og deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt landnotkun á opnu svæði skv. aðalskipulagi sem afmarkast af Elliðavatni til norðurs, lóðinni Kríunes til austurs, lóðunum við Vatnsendablett 1A og 716 til 718 til suðurs og lóðunum við Vatnsendablett 710 til 712 til vesturs í íbúðabyggð. Gert er ráð fyrir 18 nýjum einbýlishúsalóðum á svæðinu. Umsókninni fylgir greinargerð dags. 30. desember 2025, uppdráttur og skýringarmyndir dags. 11. desember 2024, hönnunaráætlun ódags. og framkvæmdaáætlun ódags.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.