Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Askalind 2. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 26032451

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 32. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni ásamt því að bæta við stigahúsi með lyftu norðan megin við húsið og fjölga bílastæðum. Tillagan var auglýst frá 28. maí til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026.

Ester Anna Ármannsdóttir verkefnastjóri gerði grein fyrir erindinu.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2026. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu á tillaga Guðmundar Gunnleifssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni, auk lyftustokks á bakhlið hússins. Tillagan var auglýst frá 28. maí 2026 til 12. júlí 2026, athugasemdir bárust.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.

03

Bæjarstjórn - 1340. fundur

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulags- og umhverfisráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Kolbeins Reginsonar, Jóhönnu Pálsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur.

04

Bæjarráð - 3256. fundur

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

05

Skipulags- og umhverfisráð - 29. fundur

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann þann 11. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2026.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi dags. 16. mars 2026 verð auglýst með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Andrés Pétursson, Helga Jónsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

06

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lögð fram að nýju umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 5. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 25. mars 2026 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra.

Vísað til skipulags- og umhverfisráðs.

07

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 42. fundur

Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts dags. 16. mars 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Askalind um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að byggja auka hæð ofan á núverandi verslunarhúsnæði á lóðinni. Uppdrættir dags. 3. mars 2026.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.