Beint í efni
Til baka í yfirlit

Met­þátt­taka hjá Vinnu­skóla Kópa­vogs

Vinnuskóli Kópavogs hefur störf fyrir nemendur fædda 2010–2012 miðvikudaginn 10. júní. Aldrei hefur verið meiri aðsókn að starfi Vinnuskólans og hafa um 1.600 unglingar á aldrinum 13 til 17 ára sótt um starf í sumar.

Vinnuskólinn í Kópavogi
Vinnuskólinn í Kópavogi sinnir ýmsum verkefnum í bæjarlandi Kópavogs.

Vinnuskóli Kópavogs hefur störf fyrir nemendur fædda 2010–2012 miðvikudaginn 10. júní. Aldrei hefur verið meiri aðsókn að starfi Vinnuskólans og hafa um 1.600 unglingar á aldrinum 13 til 17 ára sótt um starf í sumar. Fram undan er því skemmtilegt sumar hjá stórum hópi ungmenna sem taka þátt í verkefnum víðs vegar um bæinn.

Nemendur Vinnuskólans sinna fjölmörgum og ólíkum verkefnum. Þar má nefna störf innan stofnana, félaga og fyrirtækja auk garðvinnu og vinnu við að halda bæjarlandinu snyrtilegu fyrir íbúa Kópavogs.

Starfsfólk Vinnuskólans býður alla nemendur velkomna til starfa í sumar og ekki síst 13 ára ungmenni sem eru að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Fyrir mörg þeirra er þetta fyrsta launaða starf þeirra og því mikilvægt tækifæri til að læra um ábyrgð, samstarf, stundvísi auk fjölda annars sem fylgir því að vera á vinnumarkaði.

Nýjung í starfi Vinnuskólans í ár er sérstakur viðburðarhópur sem starfar í samstarfi við menntasvið Kópavogsbæjar. Hlutverk hópsins verður að skipuleggja og koma að viðburðum fyrir nemendur Vinnuskólans auk þess að undirbúa stærri verkefni sem unnin verða yfir vetrartímann í samstarfi við félagsmiðstöðvar bæjarins.

Auk þeirra unglinga sem starfa í hefðbundnum flokkum Vinnuskólans eru um 450 nemendur starfandi á ýmsum námskeiðum og á stofnunum bæjarins.

"Í sumar er Vinnuskóli Kópavogs rekinn í 68. sinn og hefur starfsemin aldrei verið vinsælli. Mikill fjöldi umsækjenda segir okkur að okkar bíður öflugt og viðburðaríkt sumar þar sem hundruð ungmenna fá tækifæri til að gera Kópavog enn betri bæ.Við hlökkum til sumarsins og þess að taka á móti öllum þeim frábæru ungmennum sem munu starfa hjá okkur. Vinnuskólinn er mikilvægur vettvangur fyrir ungt fólk til að öðlast reynslu, eignast nýja vini og taka fyrstu skrefin á vinnumarkaði,“ segir Svavar Ólafur Pétursson verkefnastjóri Vinnaskóla Kópavogs.