Bæjarstjórn - 1308. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - aðalmaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
- Orri Vignir Hlöðversson - aðalmaður
- Björg Baldursdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Kolbeinn Reginsson - aðalmaðurBoðaði forföllKolbeinn Reginsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarráði, lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2025 til fyrri umræðu.
Fundarhlé hófst kl. 18:15, fundi fram haldið kl. 18:40
Lagðar fram breytingartillögur fulltrúa minnihluta ásamt greinargerð. Tillögunum vísað til bæjarstjóra til undirbúnings fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlun.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2025 til síðari umræðu með 11 atkvæðum.
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2026-2028 til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2026-2028 til síðari umræðu með 11 atkvæðum.
Fundargerð í sex liðum.
Orri V. Hlöðversson vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir með 10 atkvæðum afgreiðslur byggingarfulltrúa.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
4.4 - 24101626 - Endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2024
Frá Brú lífeyrissjóði, dags. 17.10.2024, lagt fram erindi varðandi endurgreiðsluhlutfall vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Lagt er til að endurgreiðsluhlutfall launagreiðenda á greiddum lífeyri í réttindasafni Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar fyrir árið 2025 verði óbreytt frá fyrra ári, eða 71%. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir að tillögu að endurgreiðsluhlutfalli vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar og vísar erindinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir með 11 atkvæðum tillögu að endurgreiðsluhlutfalli vegna réttindasafns Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.
Fundargerð í 34 liðum.
Lagt fram.
5.10 - 24102671 - Bókun 588. fundar SHH. Fjárhagsáætlun skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Frá SSH, dags. 30.10.2024, lögð fram bókun varðandi fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2025. Vísað til umræðu og afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2025.
5.11 - 24101944 - Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. 2025 til samþykktar
Frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, dags. 21.10.2024, lögð fram til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar, gjaldskrá fyrir árið 2025. Málinu var frestað 31.10.2024.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. fyrir árið 2025.
5.3 - 2201231 - Urðarhvarf 12, afturköllun lóðar
Tillaga bæjarlögmanns 4. nóvember um að úthutun lóðar, Urðarhvarf 12, verði afturkölluð.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum afturköllun lóðarinnar Urðarhvarf 12 og leggur til að hún verði auglýst að nýju. Málinu vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn frestar erindinu til næsta fundar.
- Umsögn lögfræðideildar vegna afturköllunar á úthlutun lóðar við Urðarhvarf 12
- Birtingarvottorð
- Tilkynning um fyrirhugaða afturköllun lóðarúthlutunar, Urðarhvarf 12, Kópavogi.
- RE: Urðarhvarf 12
- Umsögn lögfræðideildar undirrituð
- Bréf til Bæjarlögmanns - Módís - 21022022 (002)
- RE: Urðarhvarf 12
- RE: Urðarhvarf 12
- 22000AS-Urðarhvarf 12 Kóp 241024 TL
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
8.11 - 2406338 - Melgerði 11. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 31. maí 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Hauks Ásgeirssonar byggingarverkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 11 við Melgerði er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir viðbyggingu með einni íbúð á tveimur hæðum við vesturhlið íbúðarhússins samtals 126,5 m² að flatarmáli. Bílastæðum á lóðinni fjölgar úr einu í tvö. Fyrir er á lóðinni steinsteypt 160 m² einbýlishús á tveimur hæðum byggt 1954 auk 40,2 m² bílgeymslu, byggðri 1972. Byggingarmagn á lóðinni hækkar úr 200,2 m² í 326,7 m² við breytinguna og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,26 í 0,42. Fjöldi íbúða eykst úr einni í tvær. Stöðuskýrsla eftir skoðun byggingarfulltrúa 1. október 2024 er lögð fram. Þá er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 28/2024 þar sem ákvörðun byggingarfulltrúa Kópavogsbæjar frá 8. mars 2024 um að hafna veitingu byggingarleyfis er felld úr gildi. Þá er jafnframt lagt fram minnisblað lögfræðideildar dags. 21. maí 2024 og minnisblað skipulagsdeildar dags. 5 júlí 2024. Á fundi skipulagsráðs þann 7. október 2024 var afgreiðslu málsins frestað.
Þá lögð fram greinargerð skipulagsdeildar dags. 17. október 2024.
Fundarhlé kl. 17:20, fundi fram haldið kl. 17:53.
Bókun:
„Í 37.gr. skipulagslaga kemur fram sú meginregla að gera skuli deiliskipulag fyrir svæði eða reiti þar sem framkvæmdir eru fyrirhugaðar. Heimild skipulagsnefndar til að veita undanþágu frá meginreglunni um deiliskipulagsskyldu í 44.gr. laganna er bundin þröngum skilyrðum. Fyrir nefndina hafa komið fram upplýsingar um margháttaðar óleyfisframkvæmdir víða við Melgerði og óleyfisframkvæmdir í fasteigninni, sem sótt er um breytingu á. Þá liggur fyrir þessum fundi greinargerð skipulagsdeildar um fjölda afgreiðslna beiðna um breytingar og aukið byggingarmagn víðs vegar í Kópavogi o.fl. Allt þetta varpar ljósi á hversu mikilvægt er að byggð þróist í samræmi við heildstæða og samþætta stefnumörkun í formi deiliskipulags.
Í úrskurði ÚUA nr. 17/2003 er niðurstaðan eftirfarandi og vísað í álit umboðsmanns Alþingis: „Þegar til afgreiðslu kemur hvort veita eigi byggingarleyfi í þegar byggðu hverfi, sem ekki hefur verið deiliskipulagt, og búast má við frekari umsóknum um framkvæmdir á reitnum, er almennt rétt að gera fyrst deiliskipulag fyrir reitinn áður en byggingarleyfi er veitt. Sú hætta fylgir, þegar veitt er eitt byggingarleyfi í einu, án þess að fyrir liggi deiliskipulag, að tvö eða fleiri byggingarleyfi á reit hafi í för með sér verulegar breytingar á byggðamynstri reitsins enda þótt hvert byggingarleyfi eitt og sér hafi ekki slík áhrif. Þegar svo stendur á þróast byggð ekki í samræmi við heildstæða og samþætta stefnumörkun í formi deiliskipulags, sem grundvalla ber á fjölmörgum lögmæltum sjónarmiðum, auk þess sem íbúar hlutaðeigandi hverfis eru sviptir lögboðnum rétti sínum til þess að fá færi á því að koma að sjónarmiðum sínum og hafa áhrif við gerð deiliskipulags. Slík byggðaþróun verður að teljast í andstöðu við markmið skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.“
Undirrituð telja í ljósi ofanritaðs ábyrgðarlaust, og stangast á við hagsmuni íbúa almennt, að fallast á þá beiðni sem hér liggur fyrir.“
Helga Jónsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Hákon Gunnarsson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.
Bókun:
„Með þau gögn í huga sem hafa komið fram í þessu máli telur meirihluti skipulagsráðs rétt að samþykkja framkomna beiðni. Bókun minnihlutans breytir þar engu um.“
Hjördís Ýr Johnson, Kristinn Dagur Gissurarson, Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Gunnar Sær Ragnarsson.
Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 25. janúar 2024 og úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 28/2024 með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttir og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Telmu Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
- Melgerði 11 - yfirlit yfir sambærilegar umsóknir dags. 17. október 2024.
- Erindi byggingarfulltrúa dags. 31. maí 2024
- Umsögn skipulagsdeildar 25. janúar 2024
- Uppdráttur og byggingarlýsing, dags. í janúar 2024.
- Uppdrættir, götumynd og skuggavarp dags. 29. júní 2023.
- Úrskurður ÚUA
- Melgerði 11. Skoðun byggingarfulltrúa.
- Glærur af 172. fundi skipulagsráðs þann 21. október 2024.
8.12 - 24051460 - Álfhólsvegur 68. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 3. maí 2024 þar sem umsókn Valgeirs Berg Steindórssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 68 við Álfhólsveg um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að byggja 20,4 m² útigeymslu á suðurhluta lóðar. Nýtingarhlutfall lóðarinnar eykst úr 0,26 í 0,29 með tilkomu útigeymslunnar.
Á fundi skipulagsráðs þann 7. október 2024 var erindið lagt fram að lokinni kynningu ásamt athugasemdum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu var frestað og erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 18. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Sveinsbjörns Sveinbjörnssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Telmu Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
- Erindi byggingarfulltrúa dags. 3. maí 2024
- Uppdrættir dags. 17. mars 2024
- Minnisblað Álfhólsvegur 68, dags. 11 júlí 2024
- Viðbótargögn frá lögmanni dags júlí 2024
- Aths. við byggingarleyfisumsókn - Álfhólsvegur 68 sign.
- 2. Umsögn - Brynja Helgadóttir
- Umsögn skipulagsdeildar við fyrri umsókn dags. 30. júní 2023.
- Umsögn skipulagsdeildar dags. 18. október 2024.
- Glærur af 172. fundi skipulagsráðs þann 21. október 2024.
8.13 - 24012320 - Álfhólsvegur 62. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 26. janúar 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg er vísað til skipulagsráðs. Í breyttum gögnum er óskað eftir heimild til að reisa 158,2 m² tveggja hæða nýbyggingu með tengingu við vesturgafl núverandi íbúðarhúss á lóðinni og fjölgun íbúða úr einni í tvær. Nýju bílastæði er komið fyrir við hlið núverandi bílastæða á lóðinni og þeim fjölgar úr tveimur í þrjú stæði. Fallið er frá áformum um að fjölga innkeyrslum að lóð. Lóðin er 998 m² að stærð og byggingarmagn eykst úr 183 m² í 341,2 m². Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,34 í stað 0,18. Kynningartíma lauk 11. október 2024, engar athugasemdir bárust.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 18. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Sveinsbjörns Sveinbjörnssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Helga Jónsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Telmu Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
8.14 - 2406336 - Skólagerði 47. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 31. maí 2024 þar sem umsókn Árna Þórs Helgasonar f.h. lóðarhafa nr. 47 við Skólagerði er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst stækkun á íbúðarhúsi um 16,1 m² og reistur nýr bílskúr 52.8 m² að stærð. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,49 í 0,65. Á fundi skipulagsráðs þann 19. ágúst 2024 var samþykkt að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina. Kynningartíma lauk 14. október 2024, athugasemdir bárust.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 15. október 2024.
Skipulagsráð samþykkir erindið með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Sveinsbjörns Sveinbjörnssonar, og Gunnars Sæs Ragnarssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Helga Jónsdóttir og Hákon Gunnarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Telmu Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
9.10 - 24082060 - Brekkuhvarf 24. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 24 við Brekkuhvarf dags. 23. ágúst 2024 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að í stað stakstæðs hesthúss sem heimilt er að reisa á lóðinni skv. gildandi deiliskipulagi verði heimilað að reisa vinnustofu. Byggingarmagn á lóðinni og nýtingarhlutfall er óbreytt. Kynningartíma lauk 23. október 2024. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um breytingu á deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.11 - 2408518 - Skálaheiði 1. Kynning á byggingarleyfisumsókn
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 26. júlí 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Guðjóns Þ. Sigfússonar verkfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 1 við Skálaheiði er vísað til skipulagsráðs. Í breytingunni felst 30 m² viðbygging út á þak núverandi bílgeymslu á norðurhluta lóðarinnar. Kynningartíma lauk 23. október 2024. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.12 - 24082548 - Lyngbrekka 20. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi byggingarfulltrúa dags. 23. ágúst 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn Mardísar M. Andersen byggingarfræðings dags. 14. maí 2024 er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um að koma fyrir þaksvölum á þaki sambyggðrar bílageymslu á vesturhluta lóðarinnar. Kynningartíma lauk 23. október 2024. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.13 - 2410520 - Brekkuhvarf 1A. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 1A við Brekkuhvarf dags. 5. október 2024 um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst niðurtekt kansteins, breytt fyrirkomulag og fjölgun bílastæða. Á fundi skipulagsráðs þann 21. október 2024 var afgreiðslu frestað og erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um lækkun kantsteins og fjölgun bílastæða með fjórum atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar og Gunnars Sæs Ragnarssonar gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar. Kostnaður vegna framkvæmdarinnar greiðist af lóðarhafa. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Undirrituð taka undir umsögn skipulagsdeildar dags. 1.nóvember 2024 og hafna fjölgun bílastæða en samþykkja breytt fyrirkomulag bílastæðis á lóðinni og lækkun kantsteins fyrir eitt bílastæði.“
Hákon Gunnarsson, Helga Jónsdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Telmu Árnadóttur, Helgu Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.
9.2 - 23111612 - Göngu- og hjólastígar um Kópavogsháls. Deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 18. júlí 2024 að deiliskipulagi göngu- og hjólastíga um Kópavogsháls. Megintilgangur deiliskipulagstillögunnar er að mæla fyrir um legu og fyrirkomulag stofnstígs hjólreiða um Kópavogsháls. Kynningartíma lauk 23. september 2024. Á fundi skipulagsráðs þann 21. október sl. var erindið lagt fram að lokinni kynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í umsögn skipulagdeildar dags. 1. nóvember 2024. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.3 - 24053112 - Kópavogstún. Breytt deiliskipulagsmörk.
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs að breyttu deiliskipulagi Kópavogstúns dags. 15. júlí 2024. Í breytingunni felst að mörk deiliskipulagssvæðisins færast til suðurs og vestur og munu liggja að deiliskipulagssvæði nýs deiliskipulags göngu- og hjólastíga um Kópavogsháls. Ekki eru gerðar aðrar breytingar á deiliskipulaginu. Kynningartíma lauk 23. september 2024. Á fundi skipulagsráðs þann 21. október sl. var erindið lagt fram að lokinni kynningu ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Afgreiðslu var frestað og athugasemdum vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu með tilvísun í umsögn skipulagdeildar dags. 1. nóvember 2024. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
9.4 - 24101828 - Lundur, leiksvæði. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir leik- og útivistarsvæði norðan Lundar 88-90 og vestan Lundar 60. 66 og 72 dags. 15. október 2024.
Uppdrættir í mkv. 1:1500 og 1:150 dags. 15. október 2024 ásamt greinargerð og skýringarmyndum.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi með tilvísun í umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
- Umsókn um framkvæmdaleyfi dags. 15. október 2024.
- Umsögn skipulagsdeildar dags. 1. nóvember 2024.
- lundur_breytt deiliskipulag_14 nóv 2023
- Umsókn um framkvæmdaleyfi útivistar og leiksvæði Lundur Kópavogi
- LUNDUR YFIRLISTSMYND LEIK OG ÚTIVISTARSVÆÐI TEIKN. 100
- LUNDUR YFIRLISTSMYND LEIK OG ÚTIVISTARSVÆÐI TEIKN. 99
- Leiksvæði neðan Lundar, umsókn um framkvæmdarleyfi
- Glærur af 173. fundi skipulagsráðs þann 4. nóvember 2024.
9.8 - 2411062 - Nýbýlavegur 10. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Mílu hf. dags. 1. nóvember 2024 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 10 við Nýbýlaveg. Í breytingunni felst að heimild til uppsetningar farsímaloftnets á norðurvegg lyftustokks á þaki byggingarinnar á lóðinni. Hæð loftnetsins er að hámarki 3,2 metrar uppfyrir núverandi hæsta hluta hússins.
Samþykki húsfélags að Nýbýlavegi 10C liggur fyrir.
Uppdrættir í mkv. 1:500-1:100 dags. 11. júní 2024.
Skipulagsráð samþykkir framlagða umsókn um breytingu á deiliskipulagi með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 16 liðum.
Lagt fram.
18
Fundargerð 28. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaress frá 28.10.2024
Fundargerð 28. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnaress frá 28.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 953. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 587. fundar stjórnar SSH frá 21.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 588. fundar stjórnar SSH frá 28.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 48. aðalfundar stjórnar SSH frá 01.11.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 130. fundar Svæðisskipulagsnefndar frá 25.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 51. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 25.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 504. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 25.09.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 425. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 16.10.2024.
Lagt fram.
Fundargerð 265. fundar stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20.09.2024.
Lagt fram.