Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Málsnúmer: 26043172

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur

Lögð fram til kynningar tillaga Klasa sem var hlutskörpust í samkeppni um þróun lóðarinnar við Dalveg 1, unnin af Tendra arkitektum dags. 30. júní 2025, vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni.

Sólveig Jóhannsdóttir þróunarstjóri Klasa og Jóhann Sigurðsson arkitekt frá Tendra arkitektum gerðu grein fyrir erindinu.

Freyr Snorrason verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Lagt fram og kynnt.

Bókun:

„Undirritaður þakkar fyrir góða kynningu á fyrirhugaðri uppbyggingu við Dalveg 1. Við áframhaldandi vinnu telur Miðflokkurinn mikilvægt að horft verði sérstaklega til tengingar við þá verslun og þjónustu sem þegar er hinum megin við veginn, þannig að uppbyggingin styrki heildarsvæðið. Líkt og við aðra uppbyggingu í Kópavogi er ekki gert ráð fyrir að Kópavogsbúar ferðist um á bílum. Því væri gagnlegt að sjá þarfagreiningu á fjölda bílastæða út frá fyrirhugaðri aðsókn, sérstaklega í ljósi þeirrar þjónustu og viðburða sem verða á svæðinu. Miðflokkurinn setur spurningarmerki við kröfu um umhverfisvottun bygginga á svæðinu. Kröfur ættu frekar að snúa að gæðum og líftíma bygginga en að skora stig í grænu bókhaldi. Meta þarf áhrif slíkra kvaða á byggingar- og rekstrarkostnað og hvort þær skili raunverulegu virði. Meginmarkmiðið ætti fyrst og fremst að vera vandað og hagkvæmt húsnæði sem stenst tímans tönn. Vaxandi vandamál vegna myglu í byggingum ættu jafnframt að kalla á vandaðri vinnubrögð, ekki meint grænni vinnubrögð.“

Einar Jóhannes Guðnason.

Bókun:

„Kópavogsbær gerði ekki kröfu um umhverfisvottun bygginga á svæðinu heldur er það ákvörðun þróunaraðila verkefnisins. Kröfur um gæði og líftíma bygginga eru mikilvægar en meirihlutinn setur spurningamerki við bókun sem finnur að því að uppbyggingaraðili í Kópavogi vinni markvisst að því að minnka umhverfisáhrif framkvæmdanna, meðal annars með kröfum um lága orkunotkun húsa, gæði byggingarefna og byggingavörunotkun, eins og Svansvottun felur í sér.

Varðandi bílastæðafjölda skoðast það síðar í skipulagsferlinu en mikilvægt er að bílastæða- og aðkomumál séu með þeim hætti að þau anni umferð húsanna og valdi ekki álagi á bílastæði í nágrenninu.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Kristinn Dagur Gissurarson, Guðmundur Jóhann Jónsson og Árnína Steinunn Kristjánsdóttir