Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 26051989
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 51. fundur
Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hæð hússins helst óbreytt og ekki er verið að breyta hæð lóðarmarka. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 16. júní til 17. júlí 2026, athugasemd barst.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 48. fundur
Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hæð hússins helst óbreytt og ekki er verið að breyta hæð lóðarmarka. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til umsagnar. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2026.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2026 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum á lóðum nr. 27 og 31 við Sunnubraut.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 8. maí 2026 þar sem byggingarleyfisumsókn Helgu Guðrúnar Vilmundardóttur arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Sunnubraut er vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Sótt er um að 29,9 m² ósamþykkt bátaskýli verði breytt í íbúðarrými og verði hluti af núverandi húsnæði. Ytra byrði hússins breytist, gluggum fjölgar, núverandi gluggar stækkaðir og hurðum bætt við. Hluti lóðar lækkar svo hægt sé að bæta við gólfsíðum gluggum og hurðum og auka birtuskilyrði neðri hæðar. Grafa þarf út botnplötu bátaskýlis til að ná 2,5 m lofthæð. Komið er fyrir heitum potti á suðvesturhluta lóðar. Fyrirhugað er að skipta út ónýtu þaki. Hæð hússins helst óbreytt og ekki er verið að breyta hæð lóðarmarka. Byggingarmagn eykst úr 356,2 m² í 386,1 m². Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,62 í 0,67. Uppdrættir dags. 5. febrúar 2026, uppfærðir 26. maí 2026.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.