Deiliskipulag
Deiliskipulag er unnið fyrir afmörkuð svæði og byggir á stefnu aðalskipulags.
Stefnan er útfærð nánar fyrir hvert svæði með það að markmiði að skapa heildstætt yfirbragð byggðar og landslags.
Hvað felst í deiliskipulagi?
Deiliskipulag skapar ramma um þróun einstakra svæða og tryggir að uppbygging taki mið af umhverfi, innviðum og heildaryfirbragði hverfisins. Skipulagið sýnir fyrirhugaða þróun svæðisins og veitir íbúum, lóðarhöfum og framkvæmdaraðilum skýra mynd af uppbyggingunni.
Deiliskipulag setur bindandi skilmála um:
- Lóðir og lóðanotkun.
- Byggingarreiti og byggðarmynstur.
- Nýtingarhlutfall.
- Útlit og form mannvirkja.
Slíkar forsendur þurfa að liggja fyrir áður en hægt er að veita byggingar- eða framkvæmdaleyfi.
Hönnunargögn og leiðbeiningar
Hér má nálgast sniðmát og leiðbeiningar vegna grenndarkynninga.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar er að finna á vef Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Ef óskað er eftir frekari hönnunargögnum er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.
Deiliskipulag Vatnsendahvarfs
Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi mun nýtt íbúðahverfi rísa á Vatnsenda með um 500 íbúðum í sérbýli og fjölbýli.
Markmið skipulagsins er að móta vistvænt og fjölbreytt íbúðahverfi í samræmi við Aðalskipulag Kópavogs 2019–2040.
Skipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að Arnarnesvegi, Kórahverfi og Hvörfum.
Gert er ráð fyrir:
- Um 500 íbúðum.
- Blöndu af einbýli, raðhúsum/parhúsum og fjölbýlishúsum.
- Byggingum á 2–3 hæðum, auk kjallara.
- Leikskóla eða skóla.
- Útivistarsvæðum.
- Möguleika á verslun og þjónustu.
Deiliskipulag Vatnsendahvarfs var samþykkt í bæjarstjórn 14. nóvember 2023 að undangengnu samráði og kynningu.
Árið 2024 var samþykkt breyting á deiliskipulagi sem fól í sér breytingu á staðsetningu dreifistöðva rafmagns. Stöðvunum var fækkað úr sex í fjórar og staðsetning þeirra endurskoðuð.
Skipulagsráð samþykkti breytinguna 15. apríl 2024 og bæjarstjórn staðfesti hana 23. apríl 2024.
Skipulagsvinna og útgáfu framkvæmdaleyfis
Gjaldskrá uppfærð í október 2026
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gjald v. vinnu skipulagsfulltrúa við gerð lýsingar skipulagsáætlunar/yfirlestur og yfirferð
255.913 kr.
Umsýslugjald vegna fyrirspurna /umsagna
23.068 kr.
Aðalskipulag
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Breytingar skv. 1 mgr 36 gr
424.121 kr.
Breytingar skv 2 mgr 36 gr
265.525 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Deiliskipulag verulegar breytingar
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gerð deiliskipulag- og kynningaruppdrátta
skv. reikningi
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar
334.010 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Deiliskipulag óverulegar breytingar
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Gerð deiliskipulag- og kynningaruppdrátta
424.121 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 2. mgr.
102.125 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar skv. 3. mgr.
84.103 kr.
Auglýsingakostnaður
skv. reikningi
Grenndarkynning á byggingarleyfi skv. 44 gr
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Umsýslukostnaður vegna málsmeðferðar
102.125 kr.
Framkvæmdarleyfi
Þjónusta
Upphæð
Afgreiðslugjald
17.782 kr.
Útgáfa framkvæmdarleyfis skv. 13 gr
110.536 kr.
Útgáfa framkvæmdarleyfis skv. 14 gr (matsskyld framkvæmd)
259.518 kr.
Gjald vegna auglýsingar á framkvæmdarleyfi
skv. reikningi
Allar gjaldskrár Kópavogsbæjar eru birtar með fyrirvara um villur.
Skipulagsskilmálar
Skipulagsskilmálar eru almenn ákvæði fyrir húsbyggingar á deiliskipulögðum svæðum, varðandi stærð og gerð bygginga, þakform, frágang lóða og fleira sem hönnuðum ber að fara eftir.
Þeir skipulagsskilmálar sem til eru á tölvutæku formi eru þessir, aðra þarf að nálgast á skrifstofu Umhverfissviðs, Digranesvegi 1.
Hörðukór - 2 og 5 - Skipulagsskilmálar
Hörðuvellir - Reitur 1 - Skipulagsskilmálar
Hörðuvellir - Reitur 2 - Skipulagsskilmálar
Hörðuvellir - Reitur 3 - Skipulagsskilmálar
Hörðuvellir - Reitur 2, breyting 1 - Flesjakór
Hörðuvellir - Reitur 2, breyting 2 - Flesjakór
Vatnsendahlíð - Þing - Reitur 1
Vatnsendahlíð - Þing - Reitur 2
Vatnsendahlíð - Þing - Reitur 3
Vatnsendahlíð - Þing - Reitur 4
Vatnsendi - Skipulagsskilmálar júlí 1996
Vatnsendi - Skipulagsskilmálar október 1992
Vatnsendi - Norðursvæði - Reitur 1
Fífuhvammsland - Blásalir - Reitur 1
Fífuhvammsland - Salir - Reitur 1
Fífuhvammsland - Lindir II - Reitur 16, greinargerð
Fífuhvammsland - Lindir II - Reitur 16, skilmálar
Fífuhvammsland - Vesturhluti - Atvinnusvæði sunnan Fífuhvammsvegar - Reitur 1
Fífuhvammsland - Vesturhluti - Atvinnusvæði sunnan Fífuhvammsvegar
Fífuhvammsland - Vesturhluti - Íbúðarsvæði norðan Fífuhvammsvegar, Lindir II - III
Fífuhvammsland - Vesturhluti - Íbúðarsvæði sunnan Fífuhvammsvegar
Hnoðraholt - Smalaholt - Skipulagsskilmálar
Salahverfi - Reitur II og VII (1)
Nánari upplýsingar
Fyrirspurnir og ábendingar má senda í gegnum ábendingakerfi bæjarins eða á skipulag@kopavogur.is