Saga Garðars og Konubörn á Kóp City Bitch

Saga Garðas og Kópavogskonur með uppistand í salnum
Saga Garðas og Kópavogskonur með uppistand í salnum

Steiney Skúladóttir heldur utan um  skemmtidagskrá í forsal Salarins, tónlistarhúsi Kópavogs, næstkomandi laugardag kl. 18:30 á  Menningarhátíð í Kópavogi. Steiney hefur fengið til liðs við sig hóp hæfileikafólks en meðal þeirra sem koma fram verða Saga Garðars og Karólína Jóhannsdóttir sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna. Þá munu stelpurnar úr Konubörn stíga á stokk og flytja atriði.  Kóp City Bitch er hluti af Menningarhátíð í Kópavogi en menningarhús Kópavogs við Hamraborgina, Safnaðarheimili Kópavogskirkju og gallerí listamanna víða um bæ munu iða af lífi og menningu laugardaginn 16. maí. Dagskrá verður í menningarhúsum bæjarins á milli kl. 11 og 20.

Í Bókasafni Kópavogs verður sögustund fyrir yngstu börnin og úti á túni munu Kópavogsskáld flytja ljóð. Nýuppstoppaðir fuglar verða afhjúpaðir í Náttúrufræðistofu Kópavogs og tónleikar og ljóðalestur fer fram í Tónlistarsafni Íslands. Þá stendur Héraðsskjalasafn Kópavogs og Sögufélag Kópavogs saman að fræðslugöngu um vöggu Kópavogs, Marbakkasvæðið.

Í Gerðarsafni er sýningin Birting þar sem samtímalistamenn vinna út frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur. Í tengslum við sýninguna mun Dodda Maggý ásamt Kvennakórnum Kötlu flytja vidjó- og tónlistargjörning í Kópavogskirkju kl. 16. Í safnaðarheimili kirkjunnar il sýnis verk eftir Gerði Helgadóttur. Meðal verka eru steindir gluggar sem tekist var að bjarga úr kirkju sem rifin var niður í Düsseldorf í Þýskalandi ásamt tillögum Gerðar að altaristöflu í Kópavogskirkju. 

Listamenn í Myndlistafélagi Kópavogs taka einnig þátt í Menningarhátíðinni og verða með opin hús víða um bæ. Samsýning verður opnuð að Auðbrekku 28-30, 3. hæð. En auk þess verða vinnustofur opnar upp á gátt að Auðbrekku 4, 6 og 28. Einnig tekur Gallerý Dalvegi 16C á móti gestum með opnum örmum. Til að komast á milli staða mun Myndlistafélagið bjóða rútuferðir og stoppar hún á hálftíma fresti við Gerðarsafn, Anarkía listasal og vinnustofu Bjarna Sigurbjörnssonar og Ragnheiðar Guðmundsdóttur, Kársnesbraut 102.

Allir eru hjartanlega velkomnir en frítt er inn á alla viðburði. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.