Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3154. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Endurskoðun lóðarúthlutunarreglna Kópavogsbæjar

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um lóðarhúthlutanir. Lagt fram til kynningar.

Umræður.

Bæjarráð felur bæjarlögmanni að vinna málið áfram.

02

Mannauðsstefna Kópavogsbæjar

Lögð fram drög að mannauðsstefnu til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023.

Bæjarráð frestar málinu.

03

Stefna fjármálasviðs

Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs til samþykktar bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði málinu 30.11.2023.

Bæjarráð frestar málinu.

04

Fyrirspurn bæjarfulltrúa um kostnað vegna breytinga á starfsemi menningahúsanna í Kópavogi

Frá bæjarstjóra, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa um kostnað vegna breytinga á starfsemi menningahúsanna í Kópavogi.

Lagt fram.

05

Útboð - Umferðarljósabúnaður - Fífuhvammsvegur og Kársnesbraut

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 20.11.2023, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja útboð á umferðarljósabúnaði vegna Fífuhammsvegar og Kársnesbrautar. Bæjarráð frestaði erindinu 23.11.2023 og 30.11.2023.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna heimild til að hefja útboð á umferðarljósabúnaði vegna Fífuhvammsvegar og Kársnesbrautar.

06

Kleifakór 2 nýbygging framkvæmdir

Þann 24. nóvember 2023 voru opnuð tilboð í uppbyggingu á íbúðarkjarna við Kleifakór 2. Tilboð bárust frá Sérverk ehf. kt. 571091-1279, Fortis ehf. kt. 470617-1360 og Land og verk ehf. kt. 5109140230. Kostnaðaráætlun fyrir framkvæmdina er 458.051.226 kr. Lægsta boð var tilboð Sérverks ehf. að upphæð 489.623.603 kr. sem nemur um 107% af kostnaðaráætlun. Með vísan í ofangreint leggur framkvæmdadeild Kópavogsbæjar til við bæjarráð að tilboði Sérverk að upphæð 489.623.603 kr. verði samþykkt og undirrituðum verði falið að tilkynna bjóðendum þess efnis og um leið leggja drög að verksamning fyrir bæjarráð þegar slíkt liggur fyrir.

Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdadeild heimild til að taka tilboði Sérverks að upphæð kr. 489.623.603,- jafnframt veitir bæjarráð framkvæmdadeild heimild til að gera drög að verksamningi og leggja fyrir bæjarráð.

07

Aðstöðumál frjálsíþróttadeildar Breiðabliks

Frá Breiðablik, lagt fram erindi þar sem þess er óskað að aðstöðumál deildarinnar verði tekin til skoðunar hjá bæjarstjórn Kópavogs.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs.

08

Skipulagsráð - 154. fundur frá 04.12.2023

Fundargerð í 16 liðum.

Lagt fram.


8.10 - 23082655 - Aflakór 20. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Aflakór um breytt deiliskipulag. Í gildi er deiliskipulagið Rjúpnahæð- austurhluti samþykkt í bæjarráði 7. september 2006. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit að hluta, breyting á stærð og afstöðu sorpskýlis og yfirbyggðu hjólaskýli komið fyrir. Nýtingarhlutfall er 0.42 en verður 0.44 með tillögu að breytingu. Byggingarmagn eykst um 19.94m², það fer úr 380m² í 399.94m². Á fundi skipulagsráðs 16. október 2023 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna. Kynningartíma lauk 1. desember 2023, engar athugasemdir bárust.
Uppdráttur í mkv. 1:100, 1:200, 1:500 og 1: 1000 dags. 12. október 2023. Einnig lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 13. október 2023.

Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



8.13 - 23041419 - Kópavogsbraut 12. Kynning á byggingarleyfisumsókn.

Lagt fram að nýju erindi byggingarfulltrúa dags. 14. apríl 2023 þar sem byggingarleyfisumsókn Ellerts Hreinssonar arkitekts dags. 14. mars 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 12 við Kópavogsbraut er vísað til skipulagsráðs. Á lóðinni er 257,4 m² einbýlishús og stakstæð bílageymsla. Sótt er um leyfi fyrir byggingu annars einbýlishúss með bílageymslu á lóðinni, norðan núverandi húss, alls 255 m² á tveimur hæðum. Aðkoma að núverandi húsi á lóðinni er á austurhluta lóðarinnar frá Meðalbraut og gert er ráð fyrir að aðkoma að nýbyggingunni verði á norðurhluta lóðarinnar frá Meðalbraut. Bílastæðum fjölgar úr tveimur í fjögur. Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,18 í 0,35. Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 2, 4, 6, 8, 10, 14, 16, 18, 20 og 22 við Kópavogsbraut og nr. 2, 4, 6, 8, 10, 12, 14, 16, 18, 20, 22, 24 og 26 við Meðalbraut. Tillagan var grenndarkynnt og frestur til að gera athugasemd var til kl. 12:00 föstudaginn 11. ágúst 2023. Athugasemdir bárust. Á fundi skipulagsráðs 21. ágúst 2023 var erindið lagt fram að nýju ásamt innsendum athugasemdum. Skipulagsráð frestaði erindinu og vísaði til umsagnar skipulagsdeildar.
Á fundi skipulagsráðs 20. nóvember sl. var lögð fram breytt tillaga lóðarhafa dags. 13. nóvember 2023 þar sem komið er til móts við sjónarmið athugasemdaaðila. Í breytingunni fólst að fyrirhuguð nýbygging á lóðinni er minnkuð um 30 m2 á vesturhluta lóðarinnar og fyrirhugað nýtt nýtingarhlutfall lækkað úr 0,35 í 0,33.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023. Jafnframt er lögð fram greinargerð lóðarhafa dags. 12. ágúst 2022.

Skipulagsráð hafnar framlagðri tillögu með vísan til umsagnar skipulagsdeildar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun skipulagsráðs:
„Skipulagsráð tekur jákvætt í hugmyndir um þéttingu byggðar á svæðinu sem afmarkast af Skjólbraut í vestri, Kópavogsbraut í suðri og Meðalbraut í norðri. Eðlilegt væri að horfa til bæjarlands við Kópavogsbraut við slík áform. Að því leyti er tekið undir umsögn skipulagssviðs um að svo viðamiklar breytingar sem hér er sótt um kalli á að stærra svæði sé undir við deiliskipulagsgerð. Tækifæri eru til þéttingar á svæðinu til bæði norðurs og suðurs."

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.



8.9 - 23081198 - Kársnesbraut 102, 102A og 104. Deiliskipulag.

Lagt fram erindi Helga Steinars Helgasonar arkitekts dags. 12. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðanna nr. 102, 102A og 104 við Kársnesbraut þar sem óskað er eftir heimild skipulagsráðs til að hefja deiliskipulagsvinnu á lóðunum. Áform lóðarhafa eru að lóðirnar verði sameinaðar í tvær fjölbýlishúsalóðir og að nýtingarhlutfall hvorrar lóðar verði 2,0. Hæðir húsa að Kársnesbraut verði 3 hæðir og 5 hæðir við Vesturvör. Efsta hæð verði inndregin. Jafnframt er gert ráð fyrir niðurgröfnum bílageymslum á lóðunum. Fyrirhugaður fjöldi íbúða verði um 120-140 samtals á báðum lóðunum og að meðalstærð íbúða verði 80 m². Erindið var lagt fyrir skipulagsráð 6. nóvember 2023. afgreiðslu var frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023.

Skipulagsráð hafnar erindinu með vísan til umsagnar skipulagsdeildar dags. 1. desember 2023 með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Kristins D. Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Gunnar Sær Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


09

Fundargerð 45. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023

Fundargerð 45. fundar framkvæmdaráðs almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 03.11.2023.

Lagt fram.

10

Fundargerð 938. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 24.11.2023

Fundargerð 938. fundar frá 24.11.2023.

Lagt fram.

11

Fundargerð 377. fundar stjórnar Strætó frá 01.11.2023

Fundargerð 377. fundar stjórnar Strætó frá 01.11.2023.

Lagt fram.

12

Fundargerð 378. fundar stjórnar Strætó frá 08.11.2023

Fundargerð 378. fundar stjórnar Strætó frá 08.11.2023.

Lagt fram.

13

Fundargerð 379. fundar stjórnar Strætó 15.11.2023

Fundargerð 379. fundar stjórnar Strætó 15.11.2023.

Lagt fram.

14

Fundargerð 380. fundar stjórnar Strætó frá 24.11.2023

Fundargerð 380. fundar stjórnar Strætó 15.11.2023.

Lagt fram.

Ásdís Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 11:14.

15

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 22.11.2023

Fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 22.11.2023.

Lagt fram.

16

Menntaráð - 123. fundur frá 05.12.2023

Fundargerð í sex liðum.

Lagt fram.

17

Tillaga bæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um stöðu á birtingu fylgiskjala með fundargerð

Frá bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, lögð fram svohljóðandi tillaga:

"Þegar verið er að kynna mál í nefndum ætti að gera það að vinnureglu að séu fylgiskjöl mörg þá þyrfti að setja fram með skilmerkilegum hætti hvaða skjöl nefndarmenn þurfa að kynna sér og hver innihaldi ítarupplýsingar."

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara.

18

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar varðandi ráðstafnir gagnvart framkvæmdum þriðja aðila

Frá bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, lögð fram svohljóðandi fyrispurn:

"Mun bærinn gera ráðstafanir gagnvart framkvæmdum þriðja aðila í bænum til að koma í veg fyrir óþægindi íbúa og annarra vegfarenda þegar framkvæmdir tefjast óhóflega? Dæmi um þetta eru nýlegar framkvæmdir á Kársnesbraut sem töfðust mánuðum saman, í því tilfelli varð lítill framgangur mánuðum saman án þess að götulokanir yrðu afnumdar sem gerði nokkrar stoppistöðvar Strætó óvirkar mánuðum saman ásamt miklu raski fyrir íbúa og vegfarendur."

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

19

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um framkvæmdaáætlun hjólastíga

Frá bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, lögð fram svohljóðandi fyrispurn:

"Hver er aðkoma íbúa og hagsmunaaðila að því að skilgreina og forgangsraða framkvæmdum?"

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi kl. 11:35

20

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Indriða Inga Stefánssonar um vinnureglur varðandi fylgiskjöl funda

Frá bæjarfulltrúa Indriða I. Stefánssyni, lögð fram svohljóðandi fyrispurn:

"Hver er staðan á því að fylgiskjöl séu gerð aðgengileg með fundargerð?"

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara.