Dalvegur 30 og 30A. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 26054047
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 37. fundur
Lögð fram að nýju umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 26. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun tenginga lóðarinnar við Dalveg. Fyrirhuguð er ný hægri handar inn-/útkeyrsla á Dalveg norðan við byggingarreit nr. 30A. Einnig er gert ráð breyttu fyrirkomulagi bílastæða ofanjarðar og breytingu á göngu/hjólatengingum innan lóðarinnar. Á fundi skipulags- og umhverfisraðs þann 15. júní 2026 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. október 2026 ásamt minnisblaði frá VSÓ Ráðgjöf dags. 22. september 2026 og uppfærðum uppdrætti dags. 25 maí 2026 með breytingum dags. 14. október 2026
Samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
02
Skipulags- og umhverfisráð - 30. fundur
Lögð fram umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 26. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst fjölgun tenginga lóðarinnar við Dalveg. Fyrirhuguð er ný hægri handar inn-/útkeyrsla á Dalveg norðan við byggingarreit nr. 30A. Einnig er gert ráð breyttu fyrirkomulagi bílastæða ofanjarðar og breytingu á göngutengingum.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26. maí 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs.
Vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
03
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 46. fundur
Lögð fram umsókn Andra Klausen arkitekts dags. 26. maí 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 30 og 30A við Dalveg um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst breytt aðkoma lóðarinnar og að ný 7 m breið aðkomuleið sem hægri handar inn-/útkeyrsla á Dalveg norðan við byggingarreit nr. 30A.
Vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá skv. samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.