Leikskólinn Arnarsmári
- LeikskólastjóriÁgústa Dröfn Kristleifsdóttir
- HeimilisfangArnarsmári 34
- Símanúmer4415300
- Opnunartími7.30-16.30

Um skólann
Leikskólinn Arnarsmári var opnaður 7. janúar 1998. Skólinn er 622 fm að stærð og í honum eru 84 börn á aldrinum eins árs til sex ára. Arnarsmári er opinn skóli, þ.e. að deildirnar eru ekki mjög stórar en stór svæði um skólann eru samnýtt af öllum deildunum.
Deildirnar heita Engi, Bakki, Brekka og Akur.
Deildirnar samnýta fjögur svæði í skólanum:
- Í Leiksmiðju er boðið upp á hlutverkaleiki af ýmsu tagi.
- Í Holukubbum fara fram byggingarleikir og oft er boðið upp á auka efnivið.
- Í Listasmiðju er boðið upp á skapandi starf af ýmsum toga, bæði skipulagt og frjálst.
- Í Hreyfisal fara fram skipulagðir leikfimitímar og utan þess er salurinn einnig nýttur í margs konar hreyfingu.
Fjöldi starfsfólks ræðst af aldri barnanna og sérkennsluþörf hverju sinni en oftast eru u.þ.b. 30 starfmenn við skólann. Leikskólinn stendur á Nónhæð, lóðin er stór og góð og útsýni frá skólanum er mikið og fagurt.
Leikskólastjóri er Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir í fjarveru Bryndísar Baldvinsdóttur sem er í veikindaleyfi.
Frumkvæði | Vinátta | Gleði
Frumkvæði, vinátta og gleði eru einkunnarorð skólans. Frumkvæði ýtir undir skapandi hugsun og gerir börnunum kleift að leita sjálf lausna í þeim verkefnum sem þau fást við hverju sinni. Það hjálpar þeim að leysa sjálf deilur á jákvæðan hátt. Vinátta, samkennd, góð samskipti, samhjálp og samvinna eru þættir sem ýtt er undir og lögð er áhersla á. Gleði er þriðja einkunnarorð skólans. Börn eru í eðli sínu glöð. Með áherslu á frumkvæði og vináttu, skýrar reglur og aga er skapað öruggt umhverfi, sem eykur vellíðan og ánægju einstaklingsins og hópsins í heild. Í tengslum við einkunnarorð skólans er lögð áhersla á iðkun dyggða. Unnið er sérstaklega með hverja dyggð u.þ.b. sex vikur í senn þar sem börn og kennarar tileinka sér þær. Þau ræða saman um dyggðirnar, syngja lög og lesa bækur sem tengjast þeim.
Í Arnarsmára hafa kennarar og börn iðkað dyggðir frá árinu 2000. Einkunnarorð skólans eru frumkvæði, vinátta og gleði og leiðir til að vinna að þessum einkunnarorðum eru m.a. að iðka þessar dyggðir. Dyggðirnar eru: Fyrigefning, agi-hlýðni, heiðarleiki, tillitsemi, iðjusemi, kurteisi og virðing. Hver dyggð er iðkuð 5-7 vikur í senn.
Í Arnarsmára er mikið lagt upp úr öryggismálum og forvörnum bæði hvað varðar börn, starfsfólk, húsnæði og lóð.
Ferðir
Mikið er um að börnin fari í ýmsar lengri og skemmri vettvangsferðir, bæði í litlum og stórum hópum. Börnin nota alltaf endurskinsvesti í gönguferðum og þegar farið er með rútu er skilyrði að í henni séu öryggisbelti.
Öryggisnefnd
Öryggisnefnd er starfandi við skólann. Hlutverk hennar er að fylgjast með því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi starfsmanna sé í lagi. Ef forráðamenn sjá eitthvað sem betur mætti fara, eru þeir vinsamlegast beðnir að hafa samband við leikskólastjóra eða deildarstjóra.
Eftirlit úti og inni
Deildir leikskólans skiptast á að sinna inni - og útieftirliti til að tryggja öryggi barnanna og er leikskólalóðin yfirfarin á hverjum morgni. Heilbrigðiseftirlit hefur eftirlit með að þrif og viðhald á húsnæði sé í lagi og Gámesáætlun í eldhúsi sé virk. Kópavogsbær er með starfsmann sem tekur út lóð hvers leikskóla og leiktæki nokkrum sinnum á ári. Einnig fer fram skoðun viðurkenndra úttektaraðila á lóð og leiktækjum árlega.
Áfallaráð
Lögð er áhersla á að starfsfólk leikskólans bregðist rétt við ef áfall eða náttúruvá ber að höndum. Áfallaráð leikskólans skipa leikskólastjóri og þrír kennarar. Mikilvægt er að forráðamenn láti deildarstjóra vita ef alvarleg veikindi eða dauðsfall verður í fjölskyldu barnsins.
Skyndihjálp og brunaæfing
Í skólanum er til ítarleg vinnulýsing um hvernig skal bregðast við ef barn verður fyrir slysi, allir starfsmenn fara á skyndihjálparnámskeið á þriggja ára fresti. Einnig er til neyðaráætlun ef eldur kemur upp. Á hverju hausti er farið yfir þessar vinnulýsingar og einu sinni á ári er brunaæfing á skólatíma.
Uppbyggingarstefna
Í Arnarsmára er unnið eftir aðferðum Uppbyggingarstefnunnar sem einnig gengur undir nafninu Uppeldi til ábyrgðar.
Félagið Uppbygging sjálfsagaNámið
Uppeldi og menntun leikskólabarna er samvinnuverkefni allra kennara í Arnarsmára þar sem velferð og hagur barna á að vera leiðarljós í öllu starfi. Veita á börnum umönnun og menntun, búa þeim hollt og hvetjandi uppeldisumhverfi og örugg náms- og leikskilyrði. Nám í leikskóla er samþætt og fer fram í leik, umönnun, samskiptum, skapandi starfi og hugsun þar sem hverju barni er mætt þar sem það er statt í námi og þroska.
Leikur er nám.
Vantar fyrir 2026-2027
Útikennsla gefur börnum tækifæri til að kynnast náttúru og nærumhverfi með beinni reynslu. Börnin læra um náttúruna í náttúrunni og samfélagið í samfélaginu með því að skoða, rannsaka og leysa fjölbreytt verkefni.
Kennslan fer gjarnan fram í litlum hópum og ýtir undir sjálfstæði, samvinnu og virkni. Börnin fá tækifæri til að nýta ólíka hæfileika, efla hreyfingu og þrek og auka skilning sinn á náttúru, umhverfi og menningu.
Markmið útikennslunnar er að víkka sjóndeildarhring barnanna og stuðla að alhliða þroska þeirra. Markmið skólans um frumkvæði, vináttu og gleði eru höfð að leiðarljósi.
Hver árgangur á ákveðinn stað í náttúrunni þar sem börnin velja sér tré og heimsækja það reglulega. Þannig fylgjast þau með árstíðabundnum breytingum og byggja smám saman upp þekkingu og reynslu af náttúrunni.
Arnarsmári er heilsueflandi leikskóli
Starfi Heilsueflandi leikskóla á vegum Embættis landlæknis er ætlað að styðja leikskóla í að vinna markvisst að heilsueflingu. Meginmarkmiðið er að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilsusamlegum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra. Í því felst að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan barna og starfsfólks. Samkvæmt aðalnámsskrá leikskóla (2011) er Heilsa og velferð nú einn af sex grunnþáttum menntunar en þátttaka í Heilsueflandi leikskóla styður skóla í að innleiða þennan grunnþátt í öllu sínu starfi.
Heilsueflandi leikskóli leggur sérstaka áherslu á að vinna með átta lykilþætti sem tengjast skólastarfinu. Þeir eru: hreyfing, mataræði, geðrækt, öryggi, tannheilsa, fjölskylda, nærsamfélag og starfsfólk.
Umhverfissáttmáli Arnarsmára:
Við berum öll virðingu fyrir sjálfum okkur og náttúrunni og sýnum það í verki!Kynni barna af náttúrunni eru mikilvæg fyrir þroska þeirra. Í Arnarsmára fá börnin fjölbreytt tækifæri til að upplifa náttúruna, veðrið og árstíðirnar af eigin raun. Með útinámi læra þau að skoða, rannsaka og skilja umhverfi sitt og jafnframt að bera virðingu fyrir náttúrunni og ganga vel um hana.
Á vorin og haustin er unnið sérstaklega með árstíðirnar. Hver árgangur á ákveðinn stað í náttúrunni, velur sér tré og heimsækir það reglulega til að fylgjast með breytingum árstíðanna.
Á skólalóðinni er matjurtagarður þar sem börnin fylgjast með ræktun og uppskeru og útieldstæði sem nýtt er til útieldunar og varðelda. Einnig er farið í vettvangsferðir, meðal annars í Náttúrufræðistofu og sveitaferð.
Umhverfisvernd er samofin starfinu og börnin hvött til að sýna náttúrunni virðingu í verki.
Lubbi er stór þáttur í námi barnanna í Arnarsmára. Í hverri viku er tekið fyrir nýtt málhljóð sem börnin læra, hvernig þau eru táknuð og svo finna þau orð sem innihalda það málhljóð sem tekið er fyrir hverju sinni. Hvert málhljóð á sér sinn söng:
Söngvar í Arnarsmára
Haust
Lög mánaðarins
-September-
Gulur, rauður, grænn og blár 100
Hjólin á strætó 19
Krummi krunkar úti 54
Lagið um það sem er bannað 123
Gamli Nói
Litli Óli í skógi ( sætan hund, stóran skógarbjörn, feita kú, sæta mjaltarstelpu, sterkan skógarhöggsmann). 62
Dúkkan hennar Dóru 106
Kalli litli kónguló 45
Upp, upp á fjall 71
Í leikskóla er gaman 14
Datt í kolakassa 71
Emil í kattholti 24
Skúraský 93
Fuglinn segir bí, bí, bí 77
Dyggðarlagið: Tillitssemi 13
-Október-
Það var einu sinni api 68
Allir krakkar 16
Arnarsmáravinir 11
Faðir Abraham 115
Stóra brúin 19
Ef sólin væri á bragðið... 33
Meistari Jakob 100
Nú er úti norðanvindur 135
Lína langsokkur 24
Skýin 93
Fimm litlir apar 69
Hey, baluba71
Litirnir 100
Söngvasveinar 38
Dyggðarlög: Tillitssemi og Agi/hlýðni 13
Vetur
Lög mánaðarins
-Nóvember-
Afi minn og amma mín 77
Sigga litla systir mín 77
Tilfinningablús 114
Vinalagið 11
Höfuð, herðar, hné og tær 115
Hreyfa litla fingur 112
Fingravísur 117
Datt í kolakassa 71
Klappa saman lófunum 116
Sértu glaður 113
Frost er úti fuglinn minn 50
Litli Óli í skógi 62
Lagið um það sem er bannað 123
Krummi svaf í klettagjá 53
Bátasmiðurinn 20
Aravísur 25
Dyggðarlagið : Agi/hlýðni og Heiðarleiki 13
-Desember-
Jólasveinar einn og átta 141
Aðventukertin 137
Heims um ból 157
Jólasveinar ganga um gólf 141
Ég sá mömmu kyssa jólasvein 141
Skreytum hús með greinum grænum 147
Jólastjarnan 154
Nú skal segja 151
Jólaklukkur klingja 155
Snæfinnur snjókarl 144
Bráðum koma blessuð jólin 149
Gekk ég yfir sjó og land 148
Adam átti syni sjö 142
Í skóginum stóð kofi einn 142
Skín í rauðar skotthúfur 146
Folaldið mitt hann Fákur 148
Göngum við í kringum 150
Nú er Gunna á nýju skónum 153
Jólasveinninn minn 138
Þá nýfæddur Jesú 137
Babbi segir, babbi segir 149
Dyggðarlag: Heiðarleiki 13
-Janúar-
Dyggðarlag: Heiðarleiki/Fyrirgefning 13
Faðir Abraham 115
Ef sólin væri á bragðið... 33
Datt í kolakassann 71
Það var einu sinni api 68
Dýrin í Afríku 63
Sagan af Gutta 35
Sprettur 60
Það er leikur að læra 37
Á Sprengisandi 58
Nú er úti norðanvindur 135
Fimm litlir apar 69
Gráðug kerling 31
Emil í Kattholti 24
Frost er úti fuglinn minn 50
Krummi svaf í klettagjá 53
Klappa saman lófunum 116
Lagið um það sem er bannað 123
Tveir kettir 55
Tröllavísur 74
Hey Baluba 71
Ding Dong sagði... 64
Lína langsokkur 24
Þorramatur 133
-Febrúar-
Dyggðarlag: Fyrirgefning/Iðjusemi 13
Meistari Jakob 100
Stóra brúin 19
Lína langsokkur 24
Söngvasveinar 38
Litli Óli í skógi 62
Rokkabilli rokk 23
Afi minn og amma mín 77
Bátasmiðurinn 20
Dansað á pallinum 71
Hó hó! 74
Bangsi lúrir 83
Gráðug kerling 31
Emil í Kattholti 24
Fatavísur 18
Ég heiti Keli káti karl 98
Frost er úti fuglinn minn 50
Krumminn á skjánum 54
Hani, krummi, hundur, svín 54
Mánuðirnir 125
Aravísur 25
Þorraþræll 1866 131
Upp, upp, upp á fjall 71
Þorramatur 133
Vor
Lög mánaðarins
-Mars-
Dyggðarlag: Iðjusemi/Kurteisi 13
Þula: Heyrði ég í Hamrinum
Á sprengisandi 58
Uppi á grænum… 72
Það búa litlir dvergar 76
Afi minn fór á honum Rauð 77
Arnarsmáravinir 11
Berta bakarísterta 39
Dansi, dansi dúkkan mín 106
Ding dong 64
Dvel ég í draumahöll 83
Ég skal mála allan heiminn 109
Ein stutt, ein löng 34
Höfuð, herðar, hné og tær 115
Krummi krunkar úti 54
Klappa saman lófunum 116
Lítið lasið skrímsli
Litla flugan 60
Litlu andarungarnir 49
Skúraský 93
Söngvasveinar 38
Hjólin á strætó 19
Það var einu sinni api 68
Ég sendi þér fingurkoss 11
-Apríl-
Dyggðarlag: Kurteisi 13
Sá ég Spóa 50
Lóan er komin 119
Sigling 21
Fimm litlir apar 69
Lagið um það sem er bannað 123
Bí,bí og blaka 83
Dýrin í Afríku 63
Úti um mela og móa 61
Sólin skín og skellihlær 89
Með sól í hjarta 90
Nammilagið 33
Bátasmiðurinn 20
Fuglinn segir 77
Bangsi lúrir 83
Fílalagið 67
Keli káti karl 98
Sól, sól skín á mig 89
Litlu andarungarnir 49
Hani, krummi, hundur, svín 54
Siggi var úti 40
Uppi á grænum, grænum 72
Vorvindar glaðir 85
Vorvísa 87
Sumar
Lög mánaðarins
-Sumar-
Dyggðarlag: Virðing 13
Sá ég Spóa 50
Lóan 84
Sumarkveðja
Ef þú ert súr
Strætisvagninn 19
Skýin 93
Litirnir 100
Úti um mela og móa 61
Sólin skín og skellihlær 89
Með sól í hjarta 90
Nammilagið33
Dvel ég í draumahöll 83
Fuglinn segir bí, bí, bí 77
Fagur fiskur í sjó 118
Dansað á pallinum 71
Kolakassinn 71
Sól, sól skín á mig 89
Litlu andarungarnir 49
Stökur 77
Sofðu unga ástin mín 83
Uppi á grænum, grænum 72
Vorvindar glaðir 85
Vorvísa 87
Þula mánaðarins
Janúar:
Þula um dagana
Sunnudagur sagði:
“Þorið þið að mæta mér?
Mánudagur flýtti sér.
Þriðjudagur þagði.
Miðvikudagur fór svo flatt,
að fimmtudagur um hann datt.
En föstudagur hljóp svo hratt
að hendur á hann lagði
laugardagur, byrstur mjög í bragði.
En þá var vikan liðin
og kyssti litlu börnin,
sem lásu og voru iðin,
Þetta er alveg satt.
Svo kemur næsta vika,
þá gengur það nú glatt.
Febrúar:
Nú koma kýrnar
Nú koma kýrnar
og klóra á sér brýrnar.
Nú koma ærnar
og klóra á sér tærnar.
Nú koma lömbin,
svöng er í þeim vömbin.
Nú kemur féð,
klórar á sér hnéð.
Nú koma nautin,
þau éta grautinn.
Nú koma hestarnir
og vel ríða prestarnir!
Mars:
Sviðaþula
Karl tók til orða,
mál væri að borða,
þá kom inn diskur,
var á blautur fiskur,
hákarl og rætur
og fjórir sviðafætur.
Upp tók hann einn,
ekki var hann seinn,
gerði sér úr mann,
Grettir heitir hann.
Hvað kann Grettir vel að vinna?
Hann fór út í eyjar
Svæfði þar meyjar
Kýr og kálfa
Og keisarann sjálfan.
Lambið beit í fingur minn
Spói féll í áragil
Tittlingur í mýri
Setti upp á sig stýri
Úti er ævintýri.
Apríl:
Fagur fiskur í sjó
Fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda,
gættu þinna handa.
Vingur, slingur,
vara þína fingur.
Fetta, bretta,
svo skal högg á hendi detta.
Maí:
Græn eru laufin
Græn eru laufin
og grasið sem grær.
Glóðin er rauð
og eldurinn skær.
Fífill og sóley
eru fagurgul að sjá.
Fjöllin og vötnin
og loftin eru blá.
Hvítur er svanur
sem syndir á tjörn.
Svartur er hann krummi
og öll hans börn.
Júní:
Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni
hann fór að slá.
Þá kom Lóa lipurtá
og fór að raka ljá.
Hann gaf henni hnappa þrjá
og bannaði henni að segja frá
en hann spói spíssnefur
hann sagði frá,
prakkarinn sá.
Þó var ljáin ekki nema
hálft annað puntstrá.
Ágúst:
Talnaþula
Einn og tveir
inn komu þeir,
þrír og fjórir,
furðustórir,
fimm, sex, sjö og átta,
svo fóru þeir að hátta.
Níu, tíu, ellefu og tólf,
lögðu plöggin sín á gólf,
svo fóru þeir að sofa
og sína drauma lofa.
En um miðjan morgun
hún mamma vakti þá,
þrettán, fjórtán, fimmtán, sextán,
fætur stukku á.
Svo fóru þeir að smala
suður fyrir á,
sautján, átján lambærnar
sáu þeir þá,
nítján voru tvílembdar
torfunum á,
tuttugu sauðirnir
suður við sel.
Teldu nú áfram
og teldu nú vel.
September:
Klukkurím
Klukkan eitt
eta feitt.
Klukkan tvö
baula bö.
Klukkan þrjú
mjólka kú.
Klukkan fjögur
kveða bögur.
Klukkan fimm
segja bimm.
Klukkan sex
borða kex.
Klukkan sjö
segja Ö.
Klukkan átta
fara að hátta.
Klukkan níu
veiða kríu.
Klukkan tíu
kyssa píu.
Klukkan ellefu
fleyta kellingu.
Klukkan tólf
ganga um gólf.
Október:
Andrés önd
Andrés önd
fór út í lönd
fékk sér eldrauð axlabönd.
Mikki mús
Mikki mús byggði sér hús.
Húsið brann og Mikki rann.
Mikki mús fékk á sig lús
og geymir hana í sultukrús.
Nóvember:
Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
“gef mér bita'af borði þínu,
bóndi minn!”
Bóndi svara býsna reiður:
“Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu'á tánum,
Krumminn á skjánum.”
Desember:
Grýla reið með garði
Grýla reið með garði,
gekk með henni Varði.
Hófar voru á henni,
hékk henni toppur úr enni.
Dró hún belg með læri,
börn trúi ég þar í færi.
Valka litla kom þar að
og klippti á gat með skæri,
tók hún band og hnýtti á hnút
og hleypti öllum börnum út.
Svo trúi ég það færi
Söngvar
Allir hafa eitthvað til að ganga á- bls 120
Amma og draugarnir- bls 103
Á Íslandi á ég heima- bls 79
Álfadrottningin- bls 162
Blátt lítið blóm eitt er- bls 88
Dýrin í Afríku- bls 63
Ef þig langar lífið að létta- bls 116
Ein stutt, ein löng- bls 34
Ég er stjórnandi- bls 38
Ég elska blómin- bls 88
Ég fór í dýrgarð í gær-bls 65
Ég langömmu á- bls 102
Fyndinn í framan- bls 42
Frost er úti fuglinn minn- bls 50
Grænmetisvísur-bls 30
Guttakvæði- bls 35
Hann Tumi fer á fætur- bls 47
Indjánalagið- bls 66
Kátir voru karlar- bls 21
Kirie-Kirio- bls 108
Krummi svaf í klettagjá- bls 53
Lína Langsokkur- bls 24
Litla flugan- bls 60
Lagið um það sem er bannað- bls 123
Lítill heimur- bls 14
Mánaðarvísur – bls 126- 130
Með sól í hjarta- bls 90
Myndin hennar Lísu- bls 82
Nú gaman, gaman er- bls 151
Nú skal syngja um…- bls 46
Óli Skans- bls 39
Palli er einn í heimi hér- bls 36
Pálína með prikið- bls 40
Piparkökusöngurinn- bls 29
Reyklagið- bls 34
Sigling- bls 21
Skýin- bls 94
Snati og Óli- bls 47
Snjókorn falla nú til jarðar (Lag: Det var brændivin i flaske)- bls 96
Sundlagið- bls 69
Tveir kettir- bls 55
Um landið bruna bifreiðar- bls 20
Það bjó einn karl á tunglinu- bls 32
Þvottasöngurinn (Lag: Það bjó einn karl á tunglinu)- bls 16
Þula mánaðarins
Janúar:
Þula um dagana
Sunnudagur sagði:
“Þorið þið að mæta mér?
Mánudagur flýtti sér.
Þriðjudagur þagði.
Miðvikudagur fór svo flatt,
að fimmtudagur um hann datt.
En föstudagur hljóp svo hratt
að hendur á hann lagði
laugardagur, byrstur mjög í bragði.
En þá var vikan liðin
og kyssti litlu börnin,
sem lásu og voru iðin,
Þetta er alveg satt.
Svo kemur næsta vika,
þá gengur það nú glatt.
Febrúar:
Nú koma kýrnar
Nú koma kýrnar
og klóra á sér brýrnar.
Nú koma ærnar
og klóra á sér tærnar.
Nú koma lömbin,
svöng er í þeim vömbin.
Nú kemur féð,
klórar á sér hnéð.
Nú koma nautin,
þau éta grautinn.
Nú koma hestarnir
og vel ríða prestarnir!
Mars:
Sviðaþula
Karl tók til orða,
mál væri að borða,
þá kom inn diskur,
var á blautur fiskur,
hákarl og rætur
og fjórir sviðafætur.
Upp tók hann einn,
ekki var hann seinn,
gerði sér úr mann,
Grettir heitir hann.
Hvað kann Grettir vel að vinna?
Hann fór út í eyjar
Svæfði þar meyjar
Kýr og kálfa
Og keisarann sjálfan.
Lambið beit í fingur minn
Spói féll í áragil
Tittlingur í mýri
Setti upp á sig stýri
Úti er ævintýri.
Apríl:
Fagur fiskur í sjó
Fagur fiskur í sjó,
brettist upp á halanum
með rauða kúlu á maganum.
Vanda, banda,
gættu þinna handa.
Vingur, slingur,
vara þína fingur.
Fetta, bretta,
svo skal högg á hendi detta.
Maí:
Græn eru laufin
Græn eru laufin
og grasið sem grær.
Glóðin er rauð
og eldurinn skær.
Fífill og sóley
eru fagurgul að sjá.
Fjöllin og vötnin
og loftin eru blá.
Hvítur er svanur
sem syndir á tjörn.
Svartur er hann krummi
og öll hans börn.
Júní:
Krumminn í hlíðinni
Krumminn í hlíðinni
hann fór að slá.
Þá kom Lóa lipurtá
og fór að raka ljá.
Hann gaf henni hnappa þrjá
og bannaði henni að segja frá
en hann spói spíssnefur
hann sagði frá,
prakkarinn sá.
Þó var ljáin ekki nema
hálft annað puntstrá.
Ágúst:
Talnaþula
Einn og tveir
inn komu þeir,
þrír og fjórir,
furðustórir,
fimm, sex, sjö og átta,
svo fóru þeir að hátta.
Níu, tíu, ellefu og tólf,
lögðu plöggin sín á gólf,
svo fóru þeir að sofa
og sína drauma lofa.
En um miðjan morgun
hún mamma vakti þá,
þrettán, fjórtán, fimmtán, sextán,
fætur stukku á.
Svo fóru þeir að smala
suður fyrir á,
sautján, átján lambærnar
sáu þeir þá,
nítján voru tvílembdar
torfunum á,
tuttugu sauðirnir
suður við sel.
Teldu nú áfram
og teldu nú vel.
September:
Klukkurím
Klukkan eitt
eta feitt.
Klukkan tvö
baula bö.
Klukkan þrjú
mjólka kú.
Klukkan fjögur
kveða bögur.
Klukkan fimm
segja bimm.
Klukkan sex
borða kex.
Klukkan sjö
segja Ö.
Klukkan átta
fara að hátta.
Klukkan níu
veiða kríu.
Klukkan tíu
kyssa píu.
Klukkan ellefu
fleyta kellingu.
Klukkan tólf
ganga um gólf.
Október:
Andrés önd
Andrés önd
fór út í lönd
fékk sér eldrauð axlabönd.
Mikki mús
Mikki mús byggði sér hús.
Húsið brann og Mikki rann.
Mikki mús fékk á sig lús
og geymir hana í sultukrús.
Nóvember:
Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánum,
kallar hann inn:
“gef mér bita'af borði þínu,
bóndi minn!”
Bóndi svara býsna reiður:
“Burtu farðu, krummi leiður.
Líst mér að þér lítill heiður,
ljótur ertu'á tánum,
Krumminn á skjánum.”
Desember:
Grýla reið með garði
Grýla reið með garði,
gekk með henni Varði.
Hófar voru á henni,
hékk henni toppur úr enni.
Dró hún belg með læri,
börn trúi ég þar í færi.
Valka litla kom þar að
og klippti á gat með skæri,
tók hún band og hnýtti á hnút
og hleypti öllum börnum út.
Svo trúi ég það færi
Bráðum koma blessuð jólin
Bráðum koma blessuð jólin
börnin fara að hlakka til.
Allir fá þá eitthvað fallegt
í það minnsta kerti´ og spil.Hvað það verður veit nú enginn,
vandi er um slíkt að spá.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega gaman þá.Máske þú fáir menn úr tini,
máske líka þetta kver.
Við skulum bíða og sjá hvað setur
seinna vitnast hvernig fer.En ef þú skyldir eignast kverið,
ætlar það að biðja þig
að fletta hægt og fara alltaf
fjaskalega vel með sig.Aðventukertin
Við kveikjum einu kerti á,
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og jesúbarnið er.Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans.
Því Drottin sjálfur soninn þá
mun senda í líking manns.Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.Við kveikjum fjórum kertum á;
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn.Adam átti syni sjö
Adam átti syni sjö,
sjö syni átti Adam.
Adam elskaði alla þá,
og allir elskuðu Adam.
Hann sáði, hann sáði.
Hann klappaði saman lófunum.
Hann stappaði niður fótunum.
Hann ruggaði sér í lendunum,
og snéri sér í hring.Á jólunum er gleði og gaman
:,: Á jólunum er gleði og gaman
fúm, fúm, fúm :,:
Þá koma allir krakkar með
í kringum jólatréð.
Þá mun ríkja gleði og gaman,
allir hlæja og syngja saman
fúm, fúm, fúm!:,: Og jólasveinn með sekk á baki
fúm, fúm, fúm :,:
Hann gægist inn um gættina
á góðu krakkana.
Þá mun ríkja gleði..... o.s.frv.:,: Á jólunum er gleði og gaman
fúm, fúm, fúm :,:
Þá klingja allar klukkur við
og kalla á gleði og frið.
Þá mun ríkja gleði..... o.s.frv.Babbi segir
Babbi segir, Babbi segir:
“Bráðum koma dýrðleg jól”
Mamma segir, mamma segir:
„Magga fær þá nýjan kjól.“
Hæ, hæ, ég hlakka til
hann að fá og gjafirnar,
bjart ljós og barnaspil,
borða sætu lummurnar.Babbi segir, babbi segir:
Blessuð Magga'ef stafar vel,
henni gef ég, henni gef ég
hörpudisk og gimburskel.“
Hæ, hæ, ég hlakka til
hann að fá og gjafirnar,
bjart ljós og barnaspil,
borða sætu lummurnar.Bjart er yfir Betlehem
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna.
Stjarnan mín og stjarnan þín,
stjarna allra barna.
Var hún áður vitringum
vegaljósið skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.
Víða höfðu vitringar
vegi kannað hljóðir
fundið sínum ferðum á
fjöldamargar þjóðir.
Barst þeim allt frá Betlehem
birtan undur skæra.
Barn í jötu borið var,
barnið ljúfa kæra.
Barni gjafir báru þeir.
Blítt þá englar sungu.
Lausnaranum lýstu þeir,
lofgjörð drottni sungu.
Bjart er yfir Betlehem
blikar jólastjarna,
Stjarnan mín og stjarnan þín
stjarna allra barna.
Ég sá mömmu kyssa jólasvein
Ég sá mömmu kyssa jólasvein,
við jólatréð í stofunni í gær.
Ég læddist létt á tá
til að líta gjafir á,
hún hélt ég væri steinsofandi
Stínu dúkku hjá,
og ég sá mömmu kitla jólasvein
og jólasveininn út um skeggið hlær.
Já sá hefði hlegið með
hann pabbi minn hefð'ann séð
mömmu kyssa jólasvein í gær.
Gefðu mér gott í skóinn
Gefðu mér gott í skóinn,
góði jólasveinn í nótt.
Úti þú arkar snjóinn,
inni sef ég vært og rótt.
Góði þú mátt ei gleyma,
glugganum er sef ég hjá.
Dásamlegt er að dreyma ,
dótið sem ég fæ þér frá
Góði sveinki gættu að skó
gluggakistum á.
Og þú mátt ei arka hjá
án þess að setja neitt í þá.
Gefðu mér eitthvað glingur,
góði jólasveinn í nótt,
meðan þú söngva syngur ,
sef ég bæði vært og rótt.
Gekk ég yfir sjó og land
Gekk ég yfir sjó og land
og hitti þar einn gamlan mann,
spurði hann og sagði svo:
Hvar áttu heima?
Ég á heima á Klapplandi, Klapplandi,
Klapplandi.
Ég á heima á Klapplandi,
Klapplandinu góða.
(Stapplandi, Grátlandi,Hnerrlandi
Hlælandi,Hvísllandi og Íslandi).
Göngum við í kringum...
Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn.
Göngum við í kringum einiberjarunn,
snemma á mánudagsmorgni.
Svona gerum við er við þvoum okkar þvott,
þvoum okkar þvott, þvoum okkar þvott,
svona gerum við þegar við þvoum okkar þvott,
snemma á mánudagsmorgni.
Þriðjud: Vindum okkar þvott
Miðvikud: Hengjum okkar þvott
Fimmtud: Teygjum okkar þvott
Föstud: Straujum okkar þvott
Laugard: Skúrum okkar gólf
Sunnud, snemma: Greiðum okkar hár
Sunnud, seint: Göngum kirkjugólf
Heims um ból
Heims um ból, helg eru jól,
signuð mær son Guðs ól,
frelsun mannanna, frelsisins lind,
frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkind
:,: meinvill í myrkrunum lá :,:
Heimi í hátíð er ný,
himneskt ljós lýsir ský,
liggur í jötunni lávarður heims,
lifandi brunnur hins andlega seims,
:,: konungur lífs vors og ljóss :,:
Heyra má himnum í frá
englasöng: “Allelújá”.
Friður á jörðu því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
:,: samastað syninum hjá :,:
Sveinbjörn Egilsson
Hvít jól
Ég man þau jólin, mild og góð
er mjallhvít jörð í ljóma stóð.
Stöfum stjörnum bláum,
frá himni háum
í fjarska kirkjuklukknahljóm.
Ég man þau jól, hinn milda frið
á mínum jólakortum bið
að æfinlega eignist þið
heiða daga, helgan jólafrið.
Í skóginum stóð kofi einn
Í skóginum stóð kofi einn,
sat við gluggann jólasveinn.
Þá kom lítið héraskinn
sem vildi komast inn.
"Jólasveinn, ég treysti á þig,
veiðimaður skýtur mig!
"Komdu litla héraskinn,
því ég er vinur þinn.
En veiðimaður kofann fann,
jólasveininn spurði hann
hefur þú séð héraskinn
hlaupa' um hagann þinn?
Hér er ekkert héraskott,
hypja þú þig héðan á brott.
Og veiðimaður burtu gekk,
og engan héra fékk.
Jólasveinar ganga um gólf
Jólasveinar ganga um gólf
með gylltan staf í hendi
móðir þeirra sópar gólf
og flengir þá með vendi
Upp á stól stendur mín kanna,
níu nóttum fyrir jól
þá kem ég til manna.
Jólin alls staðar
Jólin, jólin alls staðar
með jólagleði og gjafirnar.
Börnin stóreyg standa hjá
og stara jólaljósin á.
Jólaklukka boðskap ber
um bjarta framtíð handa þér
og brátt á himni hækkar sól,
við höldum heilög jól.
Nú er Gunna á nýju skónum
Nú er Gunna á nýju skónum,
nú eru að koma jól.
Siggi er á síðum buxum,
Solla á bláum kjól.
Solla á bláum kjól
Siggi er á síðum buxum,
Solla á bláum kjól.
Mamma er enn í eldhúsinu
eitthvað að fást við mat.
Indæla steik hún er að færa
upp á stærðar fat.
Pabbi enn í ógnarbasli
á með flibbann sinn.
"Fljótur, Siggi, finndu snöggvast
flibbahnappinn minn".
Kisu er eitthvað órótt líka,
út fer brokkandi.
Ilmurinn úr eldhúsinu
er svo lokkandi.
Jólatréð í stofu stendur,
stjörnuna glampar á.
Kertin standa á grænum greinum,
gul og rauð og blá.
Nú skal segja
Nú skal segja, nú skal segja
hvernig litlar telpur gera:
Vagga brúðu, vagga brúðu
og svo snúa þær sér í hring!
Litlir drengir: Sparka bolta
Ungar stúlkur: Þær sig hneigja
Ungir piltar: Taka ofan
Gamlar konur: Prjóna sokka
Gamlir karlar: Taka í nefið
aaatsjúú!!!
Skín í rauðar skotthúfur
Skín í rauðar skotthúfur
skuggalangan daginn,
jólasveinar sækja að
sjást um allan bæinn.
Ljúf í geði leika sér
lítil börn í desember,
inn í frið og ró, út í frost og snjó
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Uppi á lofti, inni í skáp
eru jólapakkar,
titra öll af tilhlökkun
tindilfættir krakkar.
Komi jólakötturinn
kemst hann ekki í bæinn inn,
inn í frið og ró, út í frost og snjó,
því að brátt koma björtu jólin,
bráðum koma jólin.
Stjörnur tindra stillt og rótt,
stafa geislum björtum.
Norðurljósin loga skær
leika á himni svörtum.
Jólahátíð höldum vér
hýr og glöð í desember
þó að feyki snjó þá í friði og ró
við höldum heilög jólin
heilög blessuð jólin.
Það á að gefa börnum brauð
Það á að gefa börnum brauð
að bíta í á jólunum,
kertaljós og klæðin rauð,
svo komist þau úr bólunum,.
Væna flís af feitum sauð,
sem fjalla gekk á hólunum.
Nú er hún gamla Grýla dauð,
gafst hún upp á rólunum.
Þá nýfæddur Jesús
Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
á jólunum fyrstu, var dýrlegt að sjá.
Þá sveimuðu englar frá himninum hans,
því hann var nú fæddur í líkingu manns.
Þeir sungu halelúja með hátíðarbrag.
Nú hlotnast guðsbörnunum friður í dag.
Og fagnandi hirðarnir fengu að sjá,
hvar frelsarinn okkar í jötunni lá.
Ég bið þig ó, Drottinn, að dvelja mér hjá,
að dýrðlinga þína ég fái að sjá.
Ó blessa þú Jesú, öll börnin þín hér,
að búa þau fái á himnum með þér.
A a
(Í skóginum stóð kofi einn)
A, a, a, hvað amma er góð,
afi er líka gæðablóð.
Afi segir a, a, a,
amma svarar: Ha?
Amma segir. Alli minn,
Alli, þú ert besta skinn.
Alli segir a,a, a,
amma svarar: Tja.Á á
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Á, á, hrópar Ási Sig,
á, á, þvílíkt bjástur.
Á, á, á, ég meiddi mig,
má ég þá fá plástur?B b
(Inn og út um gluggann)
Blása sápukúlur,
blása sápubólur.
Blása, mása og blása
b, b, b, b, b.
Sjá þær úti svífa
sjá þær hærra klífa.
Blása, mása og blása
b, b, b, b, b.D d
(Krummi svaf í klettagjá)
Úti drjúpa droparnir,
detta og sletta soparnir,
heyrist í þeim d, d, d,
þeir detta, sletta og skvetta.
Kiddi og Edda dansa dátt,
d, d, d, þau kalla hátt
þegar þau heyra þetta,
já, heyra dropa detta.Ð ð
(Lóan er komin)
Vitið þið það hvernig lúðunni líður?
Lúðunni góðu sem þið hafið séð.
Meðan hún niðri á botninum bíður,
böðuð í vaðandi ð-ð-ð-ð-ð.
Lúðan í stuðið er boðin og búin,
biður um eitthvað að dúða sig með.
Niður á púðann svo liðast hún lúin,
loðmælt og suðandi ð-ð-ð-ð-ð.E e
(Klappa saman lófunum)
Edda hugsar e, e, e,
e, e, e, ég held ég sé
ekki best í þessu,
ég er með flest í klessu.F f
(Kisa mín, kisa mín)
Fiðrildi, fiðrildi
flögrar úti í haga,
f, f, f – f, f, f,
flýgur alla daga.Fiðrildi, fiðrildi
fýkur úti í vindi,
f, f, f – f, f, f,
flýgur heim í skyndi.G g
(Þumalfingur, þumalfingur)
Hænan segir gagga gagg,
í gogginn fær
grjónagraut, grjónagraut
g, g, g, g, g, g, g.Haninn segir gaggalagó
og galar hátt:
gefðu mér, gefðu mér
g, g, g, g, g, g, g.H h
(Göngum, göngum)
Hott, hott á hesti,
hesturinn minn besti,
hlauptu og stökktu h, h, h.
Blesi og Skjóna
reka upp hrossahlátur:
Ho, ho, hah, h, h, h.I i * Y y
(Yfir kaldan eyðisand)
Illa hnýtir Indriði
á sig fína bindið.
Imba flissar i hi hi,
i hi, þetta er fyndið.Í í * Ý ý
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Íris kallar í, í, í,
í hvað þetta er gaman.
Ívar botnar ekkert í,
í öllu þessu saman.J j
(Í skóginum stóð kofi einn)
Jeppinn fór á jökulinn,
Jórunn hún var bílstjórinn,
j, j, spólar jeppinn þar,
í jökli fastur var.Jeppinn uppi á jökli sat,
j, j, spólar á sig gat.
Jórunn onaf jökli gekk,
jeppann vantar dekk.K k
(Kisa mín, kisa mín)
Kónguló, kónguló,
kann svo vel að spinna,
kraftaþráð, k, k, k,
klár er hún að tvinna.Kónguló, kónguló,
kenndu mér að vefa.
Komdu nú, k, k, k,
komdu og hættu að þrefa.L l
(Ríðum heim til Hóla)
Lubbi er að lita,
loftið blátt og gula sól,
lögguhúfu, lamb og stól,
l, l, l, l lita.Litar hann og litar
litar grænt og rautt og blátt,
litar dökkt og ljóst og grátt,
l, l, l, l litar.M m
(Þumalfingur, þumalfingur)
Músin mjúka
má hún fá
í magann sinn
meiri ost, meiri ost?
M, m, m, m, m, m.Músin maular
mjúkan ostinn.
Má ég fá
mjúkan ost, músarost
m, m, m, m, m, m.N n
(Ríðum heim til hóla)
Nudda á sér nefið
n, n, n, n, mig kitlar svo.
N, n, n, nebbanudd,
núna lagar kvefið.Nefið er með nasir,
nös og nös, þær eru tvær.
Spegilinn ég næ í nú,
nefið við mér blasir.O o
(Yfir kaldan eyðisand)
Oddur segir oho ho,
o, ég þarf að fara.
Olga svarar: So, so, so,
so, so, farðu bara.Ó ó
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Ótal sinnum ó, ó, ó,
Óli var að góla.
Heyrir enginn ó, ó, ó,
ó, ó, ó frá Óla?P p
(Hjólin á strætó)
Sjáið poppið poppa
p, p, p,
hoppi-popp
skoppi-popp
poppa, hoppa og skoppa
p, p, p,
pompa niðrá gólf.Popp úr poka og potti
p, p, p,
poka-popp
potta-popp
popp úr poka og potti
p, p, p,
poppar upp í loft.R r
(Hann Tumi fer á fætur)
Börnin renna sér og róla
og reyna að flýta sér
og þau rugga, rúlla og góla
í rigningunni hér.
Já, þau róla sér og renna,
renna á skautum hér.
Já, þau róla sér og renna
r-r-r-r-r-r-r.S s
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Sunna litla uss, uss, uss,
ekki þessi læti.
S, s, s, s, sussu suss,
sýndu minni kæti.Ef þú getur ekki hætt
allir sveia og fussa.
Reyndu nú að sofna sætt,
s, s, ussu sussa.T t
(Göngum, göngum)
Tomm-tomm tommu,
Tumi slær á trommu,
t, t, t, t
tromm, tromm,
tromm.Trumm, trumm, trumbu,
berjum fast á bumbu,
t, t, t, t
tromm, tromm,
tromm.U u
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Ef þú ferð að ulla á mig,
u, u, ljóti Tóti.
U, u, u ég ulla á þig,
ég ulla bara á móti.Ú ú
(Yfir kaldan eyðisand)
Úlla hrópar ú, ú, ú,
ú er skráð á spjöldin.
Uglan segir ú-hú-hú
úti seint á kvöldin.V v
(Inn og út um gluggann)
Viltu hlusta á vindinn,
varla er hann neitt fyndinn.
Vindurinn að vestan
v, v, v, v, v.Úti er vonskuveður,
veðrið engan gleður.
Úti væla vofur:
vú, vú, vú, vú, vá.Þ þ
(Stóra brúin fer upp og niður)
Uppi í lofti þotan þýtur,
þotan þýtur,
þotan þýtur.
Uppi í lofti þotan þýtur
þ, þ, þ, þ, þýtur.Þórður upp í loftið lítur,
loftið lítur,
loftið lítur.
Sér þar hvernig þotan þýtur
þ, þ, þ, þ, þýtur.Æ æ
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Þegar Ævar æjar sér
enginn fær að hlæja.
Æ, æ, segir Ævar hér,
æ, æ, æ - æ jæja.Ö ö
(Fljúga hvítu fiðrildin)
Ögn er bæði súr og svekkt,
sömuleiðis Össi.
Ö, hvað það er ömurlegt,
ö, ö, segir Bjössi.
Farsæld barna
Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Foreldrar og börn geta leitað sjálf beint til tengiliðar eða sent beiðni í gegnum Þjónustugátt Kópavogsbæjar.
Tengiliður í Arnarsmára er Hrafnhildur Steinþórsdóttir, sérkennslustjóri.
Þjónustugátt KópavogsbæjarForeldrar
Í Arnarsmára er lögð áhersla á gott samstarf heimilis og skóla sem byggir á gagnkvæmri virðingu, trausti og skilningi. Við upphaf leikskólagöngu er tekið vel á móti hverju barni og lögð áhersla á öryggi þess og góð tengsl milli foreldra og starfsfólks.
Fullur trúnaður ríkir um upplýsingar sem varða börn og fjölskyldur þeirra og starfsfólk er bundið þagnarskyldu. Starfsfólki ber jafnframt að tilkynna barnaverndaryfirvöldum ef ástæða er til að ætla að þörfum barns sé ekki sinnt.
Foreldrum er boðið í samtal sex til átta vikum eftir að barn byrjar í leikskólanum eða flyst milli deilda. Auk þess eru foreldrasamtöl tvisvar á ári og oftar eftir þörfum. Foreldrar geta einnig haft samband við kennara símleiðis eða með tölvupósti.
Foreldrafundur er haldinn að hausti þar sem skólastarfið, skólanámskrá og helstu áætlanir eru kynntar og ræddar.
Verkefni foreldrafélagsins eru margvísleg og getur félagið stutt mjög vel við starfið í leikskólunum og því er það hagur leikskólans að hafa öflugt og virkt foreldrafélag. Báðir foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt í starfi foreldrafélagsins.
***Vantar upplýsingar um stjórn foreldarfélags 2026-2027***
***Fundargerðir hafar ekki verið uppfærðar frá 2025***
Starfsreglur foreldraráðs leikskólans Arnarsmára
- Foreldraráð starfar eitt skólaár í senn þ.e. frá 1.október til og með 31. ágúst ár hvert og fundar tvisvar sinnum á önn eða eftir þörfum.
- Fulltrúar í ráðinu og starfsreglur þess skulu kynnt á heimasíðu leikskólans. Á fyrsta fundi skal formaður og ritari vera skipaðir. Leikskólastjóri skal upplýsa ráðið um hver þau mál sem snert geta starfsemi skólans og ráðið fjallar um. Ráðið skal halda fundargerðabók og sjá til þess að fundargerðir séu aðgengilegar á heimasíðu skólans.
- Leitast skal við að í ráðinu séu foreldrar barna á mismunandi aldursstigum, þannig að a.m.k. einn fulltrúi haldi áfram næsta ár á eftir til að tryggja samfellu í starfi ráðsins.
- Í upphafi hvers skólaárs óskar leikskólastjóri eftir nýjum framboðum. Skal það gert á foreldrafundi.
- Foreldraráð starfar með leikskólastjóra og skal vera tengiliður við aðra foreldra. Foreldraráð skal beita sér fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum í samskiptum við foreldra, leikskólastjóra og bæjaryfirvöld.
- Á fundi foreldraráðs við lok starfstímabilsins gerir formaður þess nýjum foreldraráðs meðlimum grein fyrir starfi ráðsins.
- Helstu verkefni: Ráðið skal vera umsagnaraðili um skólanámskrá, skóladagatal og áætlun vetrarins með leikskólastjóra. Bera skal skóladagatal saman við skóladagatöl grunnskólanna m.t.t. skörunar við starfsdaga og aðra frídaga. Ráðið skal einnig fjalla um ábendingar frá foreldrum, sumarlokanir leikskólanna og aðrar stórar ákvarðanir sem hafa áhrif á starf skólans.
- Leikskólastjóri skal upplýsa foreldraráð um öll meiriháttar mál sem hafa áhrif á starfsemi leikskólans og gefa þeim þannig kost á að fjalla um þau.
- Komi upp tilvik sem foreldraráð telur að þarfnist umræðu í öllum foreldrahópnum skal ráðið boða til fundar með foreldrum þar sem málin skulu rædd og lýðræðislegar ákvarðanir teknar. Foreldraráð fylgir þeim ákvörðunum síðan eftir.
- Fulltrúar í foreldraráði skulu gæta þagmælsku um atriði sem þeim er trúað fyrir út af setu þeirra í foreldraráði og varða fjölskylduaðstæður einstakra barna, hegðum þeirra og heilsufar eða önnur viðkvæm atriði sem eðlilegt er að fari leynt.
- Starfsreglur þessar skulu endurskoðaðar í lok hvers skólaárs. Til stuðnings sem og nánari útfærslu starfsreglna þessara er vísað í 11. grein laga um leikskóla.
***vantar að uppfæra stjórn og fundagerðir***