Bæjarráð - 3057. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - aðalmaðurBoðaði forföllBirkir Jón Jónsson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllTheódóra S Þorsteinsdóttir - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá lögfræðideild, dags. 06.09.2021, lögð fram drög að tillögu að reglum um stofnframlög fyrir Kópavogsbæ.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bókun:
"Mikilvægt er að uppfæra húsnæðisáætlun bæjarins í kjölfar samþykktar á þessum reglum"
Frá fjármálastjóra, dags. 06.09.2021, lögð fram beiðni um heimild til sölu íbúðar 228-1814 í Ásakór 5.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2021. Viðaukinn er lagður fram út af málum númer 2106583 og 2105166 sem tekin voru fyrir á 3055. fundi bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til bæjarstjórnar.
Lögð fram drög að stefnu fjármálasviðs og stjórnsýslusviðs.
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 06.09.2021, lagður fram starfsmannalisti undirkjörstjórna vegna Alþingiskosninga 2021.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
06
Lækjarbotnarskíðaskáli 117015 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 02.09. 2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármanns um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr. 1.455.976,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 1.456.975,-
07
Ögurhvarf 6 - Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá lögfræðideild, dags. 27.08.2021, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Ás styrktarfélags, um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til að styrkumsókn að upphæð kr.7.957.110,- verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 7.957.110,-
Frá Arthúri Björgvini Bollasyni, dags. 27.08.2021, lögð fram styrkbeiðni vegna gerðar heimildarmyndar um Wilhelm Beckmann. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 2. september sl.
Bæjarráð samþykkir að styrkja verkefnið að hluta og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarritara.
09
Drög að breytingum á leiðbeiningum um ritun fundargerða nr. 22-2013 og notkun fjarfundarbúnaðar nr 1140-2013
Frá samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneyti, dags. 01.09.2021, lögð fram til umsagnar og kynningar drög að breytingum á leiðbeiningum um ritun fundargerða nr. 22/2013 og notkun fjarfundarbúnaðar nr. 1140/2013.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til forsætisnefndar.
Frá Reykvískum lögmönnum, lagt fram erindi varðandi Vatnsendablett 69a.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar lögfræðideildar.
Fundargerð í 19 liðum.
Lagt fram.
11.12 - 2106157 - Skemmuvegur 2A, skrifstofur Byko, breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga Jóhanns Sigurðssonar arkitekts dags. 20. maí 2021 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi við Skemmuveg 2-4.
Í breytingunni felst breytt afmörkun byggingarreits og aukning á byggingarmagni skrifstofuhúsnæðisins úr 2.450 m² í 3.450 m².
Byggingarmagn núverandi vöruafgreiðslu og afgreiðslu á 1. hæð verður óbreytt 6.547 m²
Við breytinguna verða bílastæði á svæðinu 627 talsins sem er fækkun um 8 stæði frá gildandi deiliskipulagi. Að öðru leyti er vísað í gildandi deiliskipulagsskilmála. Uppdrættir í mkv. 1:1.000 og 1:500 dags. 20. maí 2021. Á fundi skipulagsráðs 7. júní 2021 var ákveðið að auglýsa framlagða tillögu. Kynningartíma lauk 10. ágúst 2021. Athugasemd barst á kynningartíma. Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 3. sept. 2021.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.19 - 2109065 - Breytt lega jarðstrengs frá Vesturvör að Fossvogsbrú.
Lagt fram erindi Verkís fyrir hönd Veitna þar sem sótt er um leyfi til að breyta legu jarðstrengs frá Vesturvör að fyrirhugaðri brú yfir Fossvog og að sveitarfélagamörkum Kópavogs og Reykjavíkur. Núverandi jarðstrengur liggur meðfram vesturlóðamörkum fjölbýlishússins að Hafnarbraut nr. 14. og að dælustöð við Hafnarbraut nr. 20 og í sjó fram. Ný lega jarðstrengjar mun liggja frá lóðarmörkum Vesturvarar nr. 12, eftir Vesturvör til vesturs og eftir Bakkabraut til norðurs, framhjá Bakkabraut 25 þar sem strengur þverar Bakkabraut og liggur meðfram austurlóðamörkum Vesturvarar nr. 30b, 34 og 38 þar sem strengur beygir til norðvesturs að sjó og áfram að sveitarfélagsmörkum. Gert verður ráð fyrir 3m helgunarsvæði fyrir umræddan streng þar sem sett er fram krafa um graftarrétt á bæjarlandi og innan lóðanna við Bakkabraut 25 og Vesturvör 30, 34 og 38 þó svo að strengur liggi ekki innan umræddra lóða. Uppdráttur í mkv. 1:200.
Skipulagsráð samþykkir framlagt erindi. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.5 - 210616547 - Suðurlandsvegur, lagning strengja. Beiðni um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu umsókn Verkís fh. Veitna ohf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu á 11 kV rafstrengs, Lögbergslínu, nærri Suðurlandsvegi um Hellisheiði. Strengnum er ætlað að taka við hlutverki núverandi loftlínu sem áætlað er að tekin verði niður í kjölfarið. Framkvæmdin er á um 16,5 km löngum kafla og nær yfir land Kópavogsbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus. Þar af er leiðin 10 km löng innan Kópavogsbæjar. Umsókninni fylgir greinargerð og uppdrættir í mkv. 1:35000 og 1:5000 dags. 25. júní 2021. Kynningartíma lauk 18. ágúst. Þá lagðar fram umsagnir sem bárust á kynningartíma.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Framkvæmdaleyfi-Kópavogsbær (ID 225340)
- 21144-150.VRK.0001-A (ID 218235)
- 21144-155.VRK.0006-A (ID 224885)
- 21144-155.VRK.0009-A (ID 218938)
- 21144-155.VRK.0010-A (ID 227169)
- 21144-155.VRK.0007-A (ID 224886)
- 21144-155.VRK.0008-A (ID 224887)
- 21144-155.VRK.0011-A (ID 227170)
- Rafrænt svarbréf skipulagsnefndar m. haus
- Umsögn MI 2 september 2021
- Umsögn Umhverfisstofnunar
- Svar vegna lagningar rafstrengs ágúst 2021
- Lögbergslína - Framkvæmdaleyfi
- 210616547 - Suðurlandsvegur, lagning strengja. Fundur skipulagsráðs nr. 104. Glærur.
11.6 - 2108294 - Melgerði 17, kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram erindi Gunnars Boga Borgarssonar arkitekt dags. 7. júlí 2021 fyrir hönd lóðarhafa Melgerðis 17 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu á einni hæð, samtals 179 m². Núverandi íbúðarhús er skráð 167,7 m² skv. þjóðskrá. Lóðarstærð er 776 m². Núverandi nýtingarhlutfall er 0,22. Heildarbyggingarmagn á lóð eftir breytingu verður 346,7 m² sem mun gera nýtingarhlutfallið 0,45. Meðaltalsnýtingarhlutfall á lóðum Melgerði 15, 16, 18 og 19 er 0,23 (minnst 0,18 og mest 0,30). Uppdráttur í mkv: 1:100 dags. 7. júlí 2021, skráningartafla dags. 7. júlí 2021, útlit og snið í mkv: 1:100 dags. 7. júlí 2021, byggingarlýsing í mkv: 1:500 dags. 7. júlí 2021 og skýrsla ASK arkitekta dags. 3. júlí 2021.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.7 - 2106563 - Álfaheiði 1D, kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Luigis Bartolozzis arkitekts, dags. 9. febrúar 2021 fyrir hönd lóðarhafa að Álfaheiðar 1d. Óskað er eftir að byggja 12.6 m² sólstofu við vesturhlið fjölbýlishúss sem mun verða hluti af 80 m² íbúð á jarðhæð. Samþykki meðeigenda liggur fyrir að hluta. Uppdrættir dags. 8. febrúar 2021 í mkv. 1:100 og 1:500. Kynningartíma líkur 6. september 2021.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.9 - 210616349 - Hvannhólmi 24, kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju erindi lóðarhafa Hvannhólma 24 dags. 23. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta íbúðarhúsnæði 1. hæðar (010101) í atvinnuhúsnæði. Um er að ræða starfsemi sem felur í sér nuddmeðferðir, námskeiðahald og litla verslun með smávörur tengdar starfseminni. Breytingar á húsnæðinu hafa í för með sér tilfærslu á eldhúsi og þvottahúsi og uppsetningu á meðferðarrýmum í lokuðum herbergjum. Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:500.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerð í 1. líð.
Lagt fram.
Bókun:
"Bæjarráð beinir því til forsætisnefndar að taka til skoðunar fyrirkomulag viðurkenninga af hálfu bæjarins."
Fundargerð í 4. líðum.
Lagt fram.
13.1 - 1901481 - Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040
Lögð fram að nýju tillaga að nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti 9. mars 2021 að auglýsa tillögu að nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 - dags. 24. nóvember 2021, uppfærð í febrúar 2021 - í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um auglýsingu aðalskipulagstillögu. Tillagan var uppfærð í febrúar 2021 með vísan til athugasemda Skipulagsstofnunar dags. 8. febrúar 2021. Í tillögunni kemur m.a. fram stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál innan lögsögu Kópavogs til næstu 20 ára. Enn fremur er kynnt umhverfismat aðalskipulagsins sem sett er fram í umhverfisskýrslu. Matið er unnið í samræmi við lög nr. 105 frá 2006 en markmið laganna er að stuðla að sjálfbærri þróun og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum og jafnframt stuðla að því að við áætlanagerð sé tekið tillit til umhverfissjónarmiða. Kynningartími var framlengdur um þrjár vikur til 27. maí 2021.
Kynningartíma lauk þann 27. maí 2021. Athugasemdir, ábendingar og umsagnir bárust á kynningartíma. Á fundi skipulagsráðs 7. júní 2021 var afgreiðslu málsins frestað og vísað til umsagnar skipulagsdeildar. Lögð er fram umsögn skipulagsdeildar dags. 2. júlí 2021 ásamt minnisblaði dags. 2. júlí 2021. Jafnframt er lögð fram uppfærð tillaga að nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 ásamt landnotkunaruppdrætti dags. 2. júlí 2021. Á 142. fundi Umhverfis- og samgöngunefndar 29. júní var erindið kynnt og lagt fram.
Umhverfis og samgöngunefndar samþykkir fyrir sitt leyti með tilvísan í 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 framlagða tillögu að nýju Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 með áorðnum breytingum dags. 2. júlí 2021 ásamt umsögnum í greinargerð dags. 2. júlí 2021. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
- A_ASK-KOP-2019-40_TILLAGA-2jul2021-b_GREINARG-umhv.sk.-viðau-lok
- nýtt-ASK-KÓP-tillaga_Athugas_nr0-39( fskj)_ALLAR-athugs_20210609
- nýtt-ASK-KÓP-tillaga_innkomnar-athugas_YFIRLIT_3júní2021
- D_Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040_Umsögn Skipulagsstofnunar-8feb2021
- D_202102_25-28-frh_ASK-KÓP-2019-2040_Minnisbl-Kóp_svör_við-umsögn-Skipulagsst
- 20200512-0518_Fornleifaskrá-Kópavogs_lok
- B_AÐALSK-KÓPAV_2019-2040_UPPDR-tillaga-2júl2021-b_A3
- C_20201.03.11_Vegaskrá-Uppland_uppf-feb-2021
- 20200610_Fornleifaskrá-upplönd_Kóp_lok
- Umferðarspá_tillaga að nýju aðalskipulagi Kópavogs
- Heimild til frestunar á gildistöku aðalskipulags undirritað_frá ráðherra_20210611
- UMSOGN-skip.d_athugs_Ask-Kópav_2juli2021-b
- nr.38_tillaga-Kópav-aðalsk_2019-2040_umsögn MinjastofnunarIslands_20310602_
- Ask-Kóp-tillaga-2019-40_minnisbl_18júní2021-lagf
13.3 - 21081201 - Kársnesbraut, færsla á gangbraut
Lögð fram tillaga frá gatnadeild að færslu á gangbraut á Kársnesbraut til vesturs.
Umhverfis- og samgöngunefnd tekur undir með tillögu um þörf að bæta umferðaröryggi á Kársnesbraut. Vísað til umhverfissviðs að kynna fyrir nefndinni útfærslur á Kársnesbraut frá Vesturvör að Sæbólsbraut.
13.4 - 21081290 - Álfhólsvegur, breyting á aðkomu á hliðargötu
Frá gatnadeild lögð fram tillaga að breytingu á þverun og aðkomu á hliðarveg við Álfhólsveg 43
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að útfærslu á hliðargötu við Álfhólsveg. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 06.09.2021, lögð fram beiðni um að fá umræðu um Okkar Kópavog í bæjarráði.
Bæjarráð felur bæjarritara að athuga með fundarstaði í nærumhverfi íbúa.