Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3270. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Andri Steinn Hilmarsson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Orri Vignir Hlöðversson - varaformaður
  • Jónas Már Torfason - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Eydís Inga Valsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Einar Jóhannes Guðnason - aðalfulltrúi
  • María Ellen Steingrímsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Hæðarhvarf 12. Beiðni um heimild til framsals.

Frá umhverfissviði, dags. 27.10.2026, lögð fram beiðni um heimild til framsals lóðarinnar að Hæðarhvarfi 12. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 29.10.2026.

Umræður.

Gestur vék af fundi kl.8:23.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila framsal á lóðinni Hæðarhvarfi 12 til Þingverks ehf. með þeim skilyrðum að báðir lóðarhafar standi að beiðninni.


Bókun:

"Undirrituð greiðir atkvæði með heimild til framsals lóðarinnar að Hæðarhvarfi 12 til Þingverks ehf., í samræmi við afgreiðslu sambærilegra beiðna. Undirrituð vísar þó til bókunar bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, Jónasar Más Torfasonar, á fundi bæjarráðs 11. júní 2026. Þar var bent á að sömu kvaðir og gilda um framsal lóðar gilda ekki um framsal hlutafjár í því félagi sem tekur við lóðinni. Í þessu máli er lóð framseld til félags í 100% eigu lóðarhafa. Ekkert kemur í veg fyrir að hlutir í félaginu verði síðar seldir og lóðin þannig í reynd framseld án samþykkis bæjarráðs.

Þessi glufa er enn opin. Undirrituð ítrekar mikilvægi þess að brugðist verði við henni með almennum hætti, til dæmis með því að áskilja samþykki bæjarráðs vegna eigendaskipta á félagi sem tekur við lóð frá upphaflegum lóðarhafa. Undirrituð óskar eftir upplýsingum um hvort og hvernig unnið hafi verið að slíkum breytingum á úthlutunarskilmálum frá því í júní."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Undirritaður skilur vel aðstæður að baki fyrirliggjandi beiðni og er ekki alfarið á móti samþykkt hennar. Undirritaður gerir þó athugasemd við að bæjarráð afgreiði enn eina beiðni um framsal lóðarréttinda í Vatnsendahvarfi án þess að reglur um framsal liggi fyrir.

Í svari umhverfissviðs við fyrirspurn Miðflokksins, sem lagt var fram í bæjarráði 1. október 2026, kom fram að af 36 lögaðilum sem fengið hafa úthlutað lóðum hafa fjórir sótt um framsal. Bæjarráð samþykkti þrjár beiðnanna og synjaði einni. Auk þess var samþykkt framsal lóðarréttinda tveggja einstaklinga til eigin félaga. Hver beiðni er metin sérstaklega og hvergi kemur fram hvenær framsal er heimilað og hvenær ekki. Ekkert hindrar heldur að félag sem tekur við lóðarréttindum sé selt áfram.

Lóðum er úthlutað samkvæmt skilmálum sem eiga að gilda jafnt fyrir alla. Ef framsal er í raun viðtekin vinnuregla á það að koma fram í skilmálunum.

Undirritaður endurtekur því beiðni sína um að umhverfissvið leggi fyrir bæjarráð drög að verklagsreglum um framsal lóðarréttinda sem fyrst og að frekari beiðnir verði ekki afgreiddar fyrr en þær liggja fyrir."

Einar Jóhannes Guðnason


Bókun:

"Meirihlutinn telur mikilvægt að halda því til haga að framsal lóðaréttinda fer fram á grundvelli gildandi úthlutunarreglna Kópavogsbæjar en þar er kveðið á um að framsal byggingarréttar sé óheimilt fyrir tiltekið byggingarstig nema með samþykki bæjarráðs. Reglurnar gera því beinlínis ráð fyrir því að bæjarráð geti heimilað framsal að undangengnu mati á hverju tilfelli fyrir sig.

Í því máli sem hér er til umfjöllunar er óskað eftir að færa lóðarréttindi til félags sem er að fullu í eigu annars núverandi lóðarhafa. Ekki er því um að ræða sölu byggingarréttar til ótengds þriðja aðila og telur meirihlutinn eðlilegt er að lóðarhafar hafi ákveðið svigrúm til að haga félagaformi sínu og framkvæmdum með þessum hætti, enda sé áfram tryggt að staðið verði við þær skyldur og skilmála sem fylgja úthlutuninni.

Meirihlutinn tekur eigi að síður undir að mikilvægt sé að gæta þess að úthlutunarskilmálar nái tilgangi sínum og að ekki sé hægt að fara í kringum þá með breytingum á eignarhaldi félaga og telur rétt að skoða til framtíðar hvort þörf sé á nánari útfærslu reglna um framsal, m.a. hvað varðar breytingar á yfirráðum í félögum sem fara með lóðarréttindi.

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Gestir

  • Guðrún Edda Finnbogadóttir, skrifstofustjóri umhverfissviðs - mæting: 08:15
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar varðandi félagslegt húsnæði

Frá sviðsstjóra velferðarsviðs, dags. 02.11.2026, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi nýtingu félagslegs húsnæðis.

Gestur vék af fundi kl.9:40.

Bæjarráð vísar erindinu til frekari vinnslu á velferðarsviði.


Gestir

  • Hlín Sigþórsdóttir - mæting: 09:37
  • Jóhanna Lilja Ólafsdóttir skrifstofustjóri velferðarsviðs - mæting: 09:37
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Tillaga bæjarstjóra - aðgerðir til að draga úr veikindafjarvistum

Frá bæjarstjóra, dags. 03.11.2026, lagðar fram til umræðu í bæjarráði, viðbótartillögur fyrir aðgerðir til að draga úr veikindafjarvistum. Samhliða lagt fram minnisblað frá mannauðsstjóra, dags. 03.11.2026.

Lagt fram og kynnt.

Gestur vék af fundi kl. 9:31

Umræður.


Bókun:

"Eftir tveggja ára átak gegn veikindafjarvistum er heildarveikindahlutfall starfsfólks hærra en þegar það hófst. Í grunnskólum hafa skammtímaveikindi jafnframt aukist á hverju ári. Engin töluleg markmið koma fram í gögnunum og ekki er gerð grein fyrir kostnaði við átakið sjálft. Samt er lagt til að halda áfram með sömu aðgerðir og bæta auk þess við aðgerðum sem snúa einkum að auknu eftirliti með veiku starfsfólki.

Undirrituð óskar eftir að áður en unnið verður eftir fyrirlögðum tillögum um aðgerðir ársins 2027 verði lagt fram mat á árangri og kostnaði átaksins og sett fram skýr töluleg markmið. Jafnframt kallar undirrituð eftir skýru kostnaðarmati á því aukna eftirliti sem lagt er til að ráðist verði í. Þegar árangurinn er hingað til takmarkaður geldur Samfylkingin varhug við að gengið sé enn harðar fram gagnvart veiku starfsfólki bæjarins. Frekar ætti að leita annarra lausna í samráði við starfsfólk og stjórnendur til að bregðast við veikindum starfsmanna, sem sannarlega er tilefni til að bregðast við."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Átak Kópavogsbæjar til að draga úr veikindafjarvistum hefur fyrst og fremst beinst að því að fækka skammtímaveikindum og hafa aðgerðirnar þegar skilað mælanlegum árangri. Meirihlutinn telur mikilvægt að halda þeim árangri til haga og byggja áfram á þeirri markvissu vinnu sem þegar hefur verið ráðist í. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafa Bradford-stig lækkað um 17%, veikindadögum vegna skammtímaveikinda fækkað um 8,6% og veikindalotum um 2,5% á fyrstu átta mánuðum ársins 2026, miðað við sama tímabil árið áður.

Mikilvægt er að greina á milli heildarveikinda og skammtímaveikinda, enda hefur sérstök áhersla í aðgerðum bæjarins verið lögð á að draga úr þeim síðarnefndu. Viðbótaraðgerðir fyrir árið 2027 snúast ekki eingöngu um áframhaldandi eftirfylgni, heldur einnig um aukinn stuðning við starfsfólk, snemmtæka íhlutun, öflugri forvarnir og markvissa heilsueflingu.

Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að árangur og kostnaður aðgerðanna verði áfram metinn með reglubundnum hætti og að sett verði skýr og mælanleg markmið. Sá árangur sem þegar hefur náðst sýnir að markvissar aðgerðir geta skilað árangri og gefur fullt tilefni til að halda áfram á sömu braut, þróa úrræðin áfram og efla þá vinnu sem þegar er hafin.

Tillaga bæjarstjóra er jafnframt skynsamlegt næsta skref í þessari vinnu. Með henni er brugðist markvissar við endurteknum skammtímafjarvistum og lögð áhersla á skýrari viðmið og reglur um eftirfylgni þegar slíkar fjarvistir verða tíðar. Þannig má styrkja enn frekar þann árangur sem náðst hefur, um leið og stuðningur við starfsfólk og forvarnir eru áfram í forgrunni."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Gestir

  • Sigríður Þrúður Stefánsdóttir mannauðsstjóri - mæting: 08:40
Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Sameiginlegt átak um verðstöðugleika

Frá bæjarstjóra, lagt fram erindi varðandi sameignlegt átak sveitarfélaga um verðstöðugleika.

Lagt fram.

Umræður.

Ýmis erindi

05

Styrkbeiðni vegna Herrakvölds Lionsklúbbs Kópavogs 2026

Frá Lionsklúbbi Kópavogs, dags. 29.10.2025, lögð fram beiðni um styrk vegna árlegs Herrakvölds. Að þessu sinni mun ágóði Herrakvölds Lionsklúbbs Kópavogs renna til uppbyggingar á Eljunni, nýrri dagþjónustu á vegum Heilahjálpar fyrir einstaklinga með

nýgreinda heilabilun á fyrstu stigum sjúkdómsins.

Vísað til afgreiðslu bæjarritara.

Fundargerðir nefnda

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 455. fundur frá 26.10.2026

Fundargerð í 18 liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Fundargerðir nefnda

07

Innkaupanefnd - 22. fundur frá 28.10.2026

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

08

Menningar- og mannlífsnefnd - 17. fundur frá 28.10.2026

Fundargerð í 64 liðum.

Lagt fram.


Bókun:

"Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar tekur undir bókun fulltrúa flokksins í Menningar- og mannlífsnefnd. Reglur menningarsjóðs eiga að gilda jafnt um alla umsækjendur, líka bæinn sjálfan. Tillagan um bæjarhátíð 2027 uppfyllti ekki þær kröfur, hvorki um dagskrá né fjárhagsáætlun.

Með þessari ráðstöfun fer stór hluti takmarkaðs sjóðs til eins verkefnis og minna verður eftir fyrir listafólk, félagasamtök og grasrótina í bænum, sem menningarsjóðnum er ætlað að styðja. Sjóðurinn var skorinn niður eftir hrun og hefur aldrei náð því framlagi sem reglur hans gera ráð fyrir. Ef meirihlutinn vill halda bæjarhátíð á að fjármagna hana sérstaklega í fjárhagsáætlun 2027, ekki taka féð af sjóði sem á að þjóna almennum umsækjendum. Samfylkingin mun jafnframt leggja áherslu á leiðréttingu sjóðsins við gerð fjárhagsáætlunar."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Samkvæmt erindisbréfi menningar- og mannlífsnefndar fer nefndin, í umboði bæjarstjórnar, með lista-, menningar- og mannlífsmál Kópavogsbæjar og er veiting styrkja úr lista- og menningarsjóði meðal verkefna hennar.

Meirihlutinn fagnar því að ráðstafa eigi sjö milljónum króna úr sjóðnum til bæjarhátíðar Kópavogs árið 2027. Hátíðinni er ætlað að efla menningar- og mannlíf í bænum og skapa sameiginlegan vettvang fyrir íbúa, félagasamtök, listafólk og menningarstofnanir. Markmiðið er að tengja saman þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem þegar fer fram í Kópavogi, auka sýnileika hennar og skapa ný tækifæri til þátttöku bæjarbúa í fjölbreyttum viðburðum."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson


Bókun:

"Undirrituð áréttar að Samfylkingin setur sig ekki upp á móti stofnun bæjarhátíðar Kópavogs, en gerir athugasemdir við að hún sé fjármögnuð úr menningarsjóð bæjarins. Betur færi að fjármunir úr sjóðnum færu í að styrkja sjálfstætt og frjálst menningarlíf, eins og sjóðnum er ætlað, en ekki menningarviðburði á vegum hins opinbera."

Eydís Inga Valsdóttir


Bókun:

"Í reglum lista- og menningarsjóðs Kópavogs segir að tekjum sjóðsins skuli m.a. varið til almennrar lista- og menningarstarfsemi í bæjarfélaginu. Þessi ráðstöfun er því að öllu leyti í samræmi við hlutverk sjóðsins."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Orri Vignir Hlöðversson

Fundargerðir nefnda

09

Menntaráð - 168. fundur frá 03.11.2026

Fundargerð í 22 liðum.

Lagt fram.

Bókun:

"Undirrituð vill koma á framfæri til frekari skýringar á heiti dagskrárliðar 5 í fundargerð menntaráðs, að framlögð tillaga felur í sér að skora á mennta- og barnamálaráðherra að fresta innleiðingu nýs námsmatskvarða."

María Ellen Steingrímsdóttir

Fundargerðir nefnda

10

Ungmennaráð - 59. fundur frá 05.10.2026

Fundargerð í tveimur liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Ungmennaráð - 60. fundur frá 26.10.2026

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Skipulags- og umhverfisráð - 38. fundur frá 02.11.2026

Fundargerð í tíu liðum.


12.7 - 26081545 - Brekkuhvarf 5. Breytt deiliskipulag.

Lögð fram umsókn Kristrúnar Lárusdóttur Hunter arkitekts dags. 21. ágúst 2026 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 5 við Brekkuhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst að lóðinni verði skipt upp í sex lóðir fyrir þrjú parhús á tveimur hæðum í stað einbýlishúss. Nýtingarhlutfall lóða verður frá 0.2 til 0,33. Tvö bílastæði verða á hverri lóð. Uppbyggingu á lóð verður áfangaskipt, núverandi hús mun víkja við uppbyggingu seinni áfanga. Uppdrættir dags. 28. október 2026. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. október 2026.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um breytingu á deiliskipulagi verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

13

Fundargerð 49. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.10.26

Fundargerð 49. fundar Heilbrigðisnefndar Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness frá 27.10.26.

Lagt fram.