Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Skipulags- og umhverfisráð - 35. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Eydís Inga Valsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - formaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - varaformaður
  • Árnína Steinunn Kristjánsdóttir - aðalfulltrúi
  • Guðmundur Jóhann Jónsson - aðalfulltrúi
  • Orri Thor Eggertsson - aðalfulltrúi
  • Kristinn Dagur Gissurarson - aðalfulltrúi
  • Beitir Ólafsson - áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Björgvin Sveinsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Auður Dagný Kristinsdóttir - skipulagsfulltrúi
  • Andrea Kristinsdóttir - verkefnastjóri
  • Karlotta Helgadóttir - fulltrúi skipulagsdeildar
  • Harri Ormarsson - lögfræðingur
  • Guðrún Edda Finnbogadóttir - skrifstofustjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Karlotta Helgadóttir

Dagskrá fundar

Afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar

01

Bæjarráð - 3264. fundur frá 10.09.2026

Skipulags- og umhverfisráð - 34. fundur frá 07.09.2026

26051989 - Sunnubraut 29. Byggingarleyfisumsókn.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar

26061073 - Dimmuhvarf 9. Breytt deiliskipulag.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar

26011426 - Vatnsendablettur 1B. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, gegn atkvæðum Jónasar Más Torfasonar og Einar Jóhannesar Guðnasonar að vísa afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Almenn erindi

02

Silfursmári 1-7. Breytt aðalskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Lögð fram tillaga að sameiginlegri skipulags- og matslýsingu dags. 15. september 2026 vegna breytinga á Aðalskipulagi Kópavogs 2019-2040 og breytinga á deiliskipulagi Silfursmára 1-7 í samræmi við 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulags- og matslýsing fjallar um fyrirhugaða breytingu á aðalskipulagi þar sem til stendur að hækka hámarks hæðir húsa í allt að 10 hæðir, efsta inndregin, og breytingar á deiliskipulagi þar sem fyrirhugað er að fjölga íbúðum, auka við heimilt byggingarmagn, breyta fyrirkomulagi og hæðum bygginga og bæta torgsvæði og tengingar við og um svæðið.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 15. september 2026 verði auglýst með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Andra Steins Hilmarssonar, Árnínu Steinunnar Kristjánsdóttur, Guðmundar Jóhanns Jónssonar, Kristins Dags Gissurarsonar gegn atkvæðum Eydísar Ingu Valsdóttur og Orra Thors Eggertssonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja hóflega og vandaða þéttingu byggðar, en telja fyrirliggjandi áform um allt að 10 hæða byggingar við Silfursmára ganga of langt. Þétting byggðar þarf að vera í samhengi við nærumhverfið og taka eðlilegt tillit til hagsmuna og væntinga þeirra íbúa sem þar búa, en ekki hafa verið færð knýjandi rök fyrir nauðsyn á aukningu byggingarmagns. Fyrir liggur að breytingarnar eru ekki gerðar í sátt við íbúa á svæðinu sem fjárfestu í íbúðum sínum á grundvelli gildandi skipulags sem er annars nýtt af nálinni. Núverandi deiliskipulag gerir ráð fyrir 2-4 hæða húsum á sama svæði og telja undirrituð ekki rök liggja fyrir í málinu til að bregða frá því, þótt að breytt deiliskipulag kunni að vera til bóta að öðru leyti.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Bókun:

„Fulltrúi Viðreisnar styður við markmið skipulagsbreytinga í Silfursmára 1-7 þar sem, meðal annars, grænu og lifandi svæði er gert hærra undir höfði, en lýsir áhyggjum af aukningu á byggingarmagni í fyrirhuguðum breytingum og áhrifum þeirra á nærliggjandi byggð. Mikilvægt er að hafa í huga að íbúar hafa keypt húsnæði á svæðinu í góðri trú út frá gildandi skipulagi og mikilvægt er að tekið sé tillit til þeirra forsendna við áframhaldandi vinnslu málsins. Leggja þarf sérstaka áherslu á vandaða auglýsingu og kynningu þar sem skýrt kemur fram hvernig tillagan víkur frá gildandi skipulagi og hvaða áhrif breytingarnar hafa á nærumhverfið. Tryggja þarf samráð við íbúa, taka athugasemdir þeirra til efnislegrar skoðunar og gera grein fyrir því hvernig brugðist er við þeim áður en skipulag er samþykkt.“

Pétur Björgvin Sveinsson.

Bókun:

„Við teljum að þær breytingar sem hér eru lagðar til á aðal- og deiliskipulagi séu til þess fallnar að styðja enn frekar svæðiskjarnann í Smáranum og tengja hverfið betur við Smáralindina með byggð og torgsvæðum. Það er mikilvægt að við áframhaldandi vinnu og kynningu sé gerður skýr samanburður bæði við gildandi skipulag og þá tillögu sem áður var kynnt. Gert er ráð fyrir að aukning byggingarmagns sé minna en var gert ráð fyrir þegar bæjarstjórn samþykkti skipulagslýsinguna í ágúst 2025 en á kynningartímanum bárust 59 athugasemdir og hafa verið gerðar breytingar á tillögunni sem snúa beint að mörgum þeirra athugasemda sem þar komu fram. Þannig er byggingarmagn dregið saman um 2.500 m² frá fyrri útfærslu, sem er um fjórðungi minni aukning í byggingarmagni en fyrri tillaga gerði ráð fyrir, og gert ráð fyrir lækkun húsa, bæði næst byggð og í hærri húsunum tveimur, bæði með fækkun hæða en einnig með lækkun lofthæða þannig að hámarkshæð húsanna lækkar enn frekar. Við teljum að við áframhaldandi útfærslu þurfi sérstaklega að rýna bílastæðamál, m.a. með það að markmiði að fjölga bílastæðum í bílakjallara.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

03

Silfursmári 1-7. Breytt deiliskipulag. Skipulags- og matslýsing.

Ingvi Jónasson framkvæmdastjóri Klasa og Halldór Eiríksson arkitekt hjá T.ark gerðu grein fyrir tillögunni. Sólveig Jóhannsdóttir, þróunarstjóri hjá Klasa, tók einnig sæti á fundinum undir þessum lið.

04

Framkvæmd við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku

Lagt fram erindi bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar dags. 15. september 2026 þar sem óskað er eftir því að á fundi bæjarráðs fari fram umræða um framkvæmdir við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku. Á fundi bæjarráðs þann 17. september 2026 var erindinu vísað til skipulags- og umhverfisráðs til kynningar.

Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Cecilía Þórðardóttir verkefnastjóri frá Vegagerðinni tóku sæti á fundinum undir þessum lið.

Lagt fram. Umræður.

Bókun:

„Miðflokkurinn setur sig ekki upp á móti nauðsynlegu viðhaldi við gatnamótin en lýsir sig mótfallinn fyrirhugaðri framkvæmd og telur hana með öllu óþarfa. Það er fráleitt að Kópavogsbær leiti en leiða til þess að þrengja að bílaumferð og Reykjavíkurvæða umferðarskipulag í bænum. Með því að fjarlægja beygjuvasa mun það skerða umferðarflæði inn og út úr hverfinu og skapa óþarfa biðraðir upp Þverbrekku og niður Ástún. Slíkt mun óhjákvæmilega leiða til þess að umferð frá aðliggjandi götum innan hverfisins munu eiga í miklum erfiðleikum með að komast inn á bæði Þverbrekku og Ástún á háannatíma. Reynsla af lokun beygjuvasa er varðar umferðaröryggi óvarðra vegfarenda hefur þegar sýnt sig í Kópavogi, en slysum á þeim hefur fjölgað við Smáralind eftir að beygjuvasar voru fjarlægðir þar. Viðbragðsaðilar hafa einnig bent á að gatnamót þar sem beygjuvasar hafa verið afnumdir valdi erfiðleikum í útköllum. Þá eiga stærri ökutæki sem notuð eru við björgunarstarf, svo sem slökkvi- og körfubílar, erfitt með að athafna sig á gatnamótum þar sem beygjur og beygjuradíus inn í hverfin hafa verið þrengd. Einnig ber að hlusta á íbúa svæðisins sem eru alfarið á móti framkvæmdinni og þeirri aðferðafræði sem átti að viðhafa við hana. Miðflokkurinn kallar eftir skýru verklagi við framkvæmdir sem þessar, það á að vera skipulags- og umhverfisráð sem setji sýnina, sem embættismenn framfylgja síðan.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Málið hefur ekki fengið efnislega umfjöllun hjá ráðinu en það verður þegar umsókn um framkvæmdaleyfi kemur fyrir skipulags- og umhverfisráð.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

05

Dalvegur 1. Breyting á aðal- og deiliskipulagi.

Lögð fram skipulags- og matslýsing unnin af Kópavogsbæ dags. 17. september 2026 fyrir breytingu á aðal- og deiliskipulagi fyrir Dalveg 1. Fyrirhugað er að byggja upp verslunar- og þjónustuhúsnæði í góðum tengslum við Kópavogsdal í samræmi við tillögur Klasa þróunarfélags og Tendra arkitekta.

Samþykkt með vísan til 1. mgr. 30 gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð skipulags- og matslýsing dags. 17. september 2026 verði auglýst. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Almenn erindi

06

Gunnarshólmi. Breytt svæðisskipulag. Vaxtarmörk.

Lagt fram að nýju erindi svæðisskipulagsstjóra f.h. svæðisskipulagsnefndar dags. 28. apríl 2025 ásamt minnisblaði dags. 9. apríl 2025 varðandi afgreiðslu nefndarinnar á beiðni Kópavogsbæjar um að hafin verði vinna við breytingu á vaxtarmörkum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Í erindinu er kallað eftir frekari gögnum frá Kópavogsbæ.

Þá er lögð fram uppfærð greinargerð með samantekt dags. 18. september 2026 ásamt uppfærðu áhættumati vegna vatnsverndar dags. 6. nóvember 2025. Einnig eru lagðar fram umsagnir Veitna dags. 30. september 2025, Heilbrigðiseftirlits dags. 25. október 2025, 4. desember 2025 og 5. febrúar 2026, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu dags. 15. janúar 2026, Vegagerðarinnar dags. 4. febrúar 2026, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 27. janúar 2026, Strætó bs. dags. 29. janúar 2026 og Sorpu dags. 5. febrúar 2026. Einnig minnisblað Verkís dags. 2. október 2025 varðandi náttúruvá, sameinað skjal með ítargögnum varðandi áhættumat, minnisblað HMS dags. 18. september 2025 og drög að skipulagslýsingu dags. 21. janúar 2025. Einnig drög að erindi skipulagsfulltrúa til svæðisskipulagsnefndar dags. 18. september 2026.

Sigurður Stefánsson frá Aflvaka þróunarfélagi og Stefán Gunnar Thors frá VSÓ ráðgjöf kynntu verkefnið um lífsgæðakjarna í Gunnarshólma og Geirlandi.

Lagt fram.

Almenn erindi

07

Gatnamót Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.

Lagt fram að nýju erindi Ásdísar Auðar Ómarsdóttur dags. 24. ágúst 2026 um breytingu á ljósastýringu gatnamóta Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 7. september 2026 var erindinu vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 18. september 2026.

Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Lagt fram.

Bókun:

„Miðflokkurinn fagnar því að unnið sé að úrbótum og að farið verði í nauðsynlegar lagfæringar á gatnamótunum. Fyrirhuguð brú fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur mun létta á götuþverun,auðvelda ljósastýringu og auka umferðaflæði. Hins vegar telur Miðflokkurinn að hugmyndir um skásetta þverun muni hægja verulega á umferðaflæði og að þess háttar ljósastýring sé með öllu óþörf. Kópavogsbær á ekki að stuðla að því að þrengja að bílaumferð. Markmiðið á ávallt að vera að finna lausnir sem greiða fyrir umferð, án þess þó að það komi niður á öryggi óvarinna vegfarenda.“

Beitir Ólafsson

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingarinnar telja að umsögn gatnadeildar staðfesti þörfina á úrbótum á gatnamótunum, sérstaklega með tilliti til öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda. Við teljum of langt að bíða fram á næsta sumar með úrbætur og óskum eftir að gatnadeild meti hvaða aðgerða sé hægt að grípa til strax til að bæta öryggi á gatnamótunum. Að öðrum kosti leggjum við til að kannað verði hvort hægt sé að flýta fyrirhuguðum framkvæmdum.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Bókun:

„Meirihlutinn tekur undir mikilvægi þess að ráðast í framkvæmdir á gatnamótum Ásbrautar, Sæbólsbrautar og Kársnesbrautar til þess að tryggja umferðaröryggi. Það er fyrirhugað að tengja Ásbraut og Sæbólshverfi með göngu- og hjólabrú og verða gatnamótin tekin samhliða. Vegna bókunar fulltrúa Miðflokksins er rétt að taka fram að í umsögn Gatnadeildar kemur fram að hugmyndir um skásetta þverun séu óþarfar vegna göngu- og hjólabrúarinnar. Það er ekki tímabært að tala sig niður á endanlegar útfærslur á meðan málið er til skoðunar.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

08

Tillaga áheyrnarfulltrúa í skipulags- og umhverfisráði Beitis Ólafssonar um gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar.

Lögð fram að nýju tillaga Beitis Ólafssonar áheyrnarfulltrúa dags. 12. ágúst 2026 að endurskoðun á umferðarstýringu á ljósastýrðum gatnamótum Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar, svokallaðri X-stýringu, með hliðsjón af umferðarflæði, biðtíma vegfarenda og ábendingum íbúa.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 17. ágúst 2026 var erindinu vísað til umsagnar deildarstjóra gatnadeildar. Einnig er lögð fram umsögn deildarstjóra gatnadeildar dags. 18. september 2026.

Birkir Rútsson, deildarstjóri gatnadeildar, tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Synjað.

Bókun:

„Miðflokkurinn harmar þá niðurstöðu að kjörnir fulltrúar, bæði í meirihluta og minnihluta, treysti sér ekki til að taka afstöðu til málsins og afgreiða það án frekari tafa. Nú er það ljóst að ljósastýring X við gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar er ekki vanstillt, heldur er hún augljóst vandamál sem hindrar eðlilegt umferðarflæði inn og út úr Kársnesi. Samkvæmt gögnum úr kortasjá Kópavogsbæjar fyrir árin 2014 ? 2020 áður en ljósastýring X var sett upp, var ekkert slys tilkynnt þar sem ekið hafði verið á gangandi eða hjólandi vegfarendur. Rök fyrir ljósastýringunni falla því um sjálf sig þegar kemur að umferðaröryggi þessara hópa. Það er hulin ráðgáta hvers vegna fjögurra arma gatnamót með þungri umferð skulu vera miðpunktur götuþverunar fyrir gangandi og hjólandi. Með öllu óþarft er að beina þeim sem gangandi og hjólandi eru þangað inn, og á það sérstaklega við um börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í umferðinni og hafa ekki fullan skilning á þessháttar ljósastýrðum gatnamótum. Í innan við 90 metra fjarlægð frá gatnamótunum eru hefðbundnar gangbrautir og væri réttara að stýra gangandi og hjólandi vegfarendum þangað. Þar er bílaumferð mun minni og götuþverun með stysta móti yfir götur með 30 km/klst. hámarkshraða. Ljóst er að þessi tegund ljósastýringar mun þurfa að víkja með tilkomu Borgarlínunnar. Miðflokkurinn telur brýnt að hefja þegar í stað hugmyndarvinnu um hvernig tryggja megi örugga og greiðfarna leið um svæðið á stöðum í nálægð við gatnamótin þar sem bílaumferð er ekki eins þung. Umferðarþungi inn og út úr Kársnesi mun aukast samhliða því sem óhófleg þétting byggðar eða Reykjavíkurvæðing í boði meirihlutans tekur á sig raunverulega mynd á nesinu.“

Beitir Ólafsson.

Bókun:

„Gatnamót Borgarholtsbrautar og Urðarbrautar eru fjölfarin af skólabörnum á Kársnesinu. Afnám x-ljósastýringar kallar á mótvægisaðgerðir vegna umferðaröryggis barna og teljum við að það sé eðlilegt að skoða gatnamótin samhliða þeirri skipulagsvinnu sem stendur yfir vegna Borgarlínu um Borgarholtsbraut.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Almenn erindi

09

Tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar að aðgerðaáætlun fyrir Kópavogslæk.

Lögð fram tillaga bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Orra Thors Eggertssonar um forgangsröðun aðgerða vegna hreinsunar Kópavogslækjar.

Karen Jónasdóttir, verkefnastjóri umhverfismála, tók sæti á fundinum undir þessum lið.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra umhverfismála.

Almenn erindi

10

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur um upplýsingagjöf vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.

Lögð fram að nýju fyrirspurn bæjarfulltrúa Eydísar Ingu Valsdóttur og varabæjarfulltrúa Sólveigar Skaftadóttur dags. 2. júlí 2026 um upplýsingagjöf og stuðning við íbúa vegna framkvæmda í miðbæ Kópavogs.

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. júlí 2026 var erindinu vísað til umsagnar umhverfissviðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs dags. 10. september 2026.

Lagt fram.

Bókun:

„Fulltrúar Samfylkingarinnar telja svörin staðfesta að upplýsingagjöf og samráð við íbúa vegna framkvæmdanna hafi ekki verið fullnægjandi. Þrátt fyrir umfang og langan framkvæmdatíma liggur ekki fyrir sérstök samskipta- og upplýsingaáætlun og ekki er fyrirhugað að gera slíka áætlun þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Íbúar hafa ítrekað lýst óöryggi, skorti á upplýsingum og óvissu vegna framkvæmdanna. Þá hafa komið upp alvarleg atvik sem skapað hafa hættu fyrir íbúa og eignir og tímaáætlanir og upplýsingar um framkvæmdartíma ekki alltaf staðist. Það er ekki nóg að verkferlar séu til á pappír ef íbúar upplifa ekki öryggi í yfirstandandi ástandi. Tillaga Samfylkingarinnar um formlegan samráðsvettvang með íbúum var felld í bæjarráði. Í ljósi reynslunnar teljum við enn ríka ástæðu til að tryggja reglulegt samráð og eftirfylgni. Fulltrúar Samfylkingarinnar munu því óska eftir reglulegri stöðugjöf um framkvæmdirnar í bæjarráði.“

Eydís Inga Valsdóttir og Orri Thor Eggertsson.

Bókun:

„Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa og hagaðila hafa fengið töluverða umfjöllun í bæjarráði, nú síðast sl. fimmtudag og meirihlutinn tekur undir hvatningu fulltrúa Samfylkingarinnar um að bæjarráð sé uppfært reglulega um stöðu mála. Þó er mikilvægt að halda því til haga að upplýsingaflæði vegna framkvæmdanna, meðal annars með skilgreindum tengiliðum, upplýsingasíðum, póstlista, sérstöku netfangi og upplýsingafundum, hefur verið umtalsvert og starfsfólk Kópavogsbæjar hefur lagt sig fram um að stuðla að sem bestri upplýsingagjöf. Við teljum mikilvægt að byggja áfram á því starfi og þeim samskiptaleiðum sem þegar eru til staðar og efla þær eftir því sem verkefninu vindur fram. Áfram verði lögð áhersla á öfluga upplýsingagjöf, virkt samtal og að brugðist sé við ábendingum íbúa og annarra hagaðila.“

Hjördís Ýr Johnson, Andri Steinn Hilmarsson, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Guðmundur Jóhann Jónsson og Kristinn Dagur Gissurarson.

Fundarhlé hófst kl. 18:39, fundi fram haldið kl. 19:07.