Aflakór 20

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 16. október 2023 var lögð fram umsókn Jens Arnars Árnasonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 20 við Aflakór um tillögu að breyttu deiliskipulagi. Í gildi er deiliskipulagið Rjúpnahæð- austurhluti samþykkt í bæjarráði 7. september 2006. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit að hluta, breyting á stærð og afstöðu sorpskýlis og yfirbyggðu hjólaskýli komið fyrir. Nýtingarhlutfall er 0.42 en verður 0.44 með tillögu að breytingu. Byggingarmagn eykst um 19.94m², það fer úr 380m² í 399.94m². Kynningaruppdráttur í mkv. 1:100, 1:200, 1:500 og 1: 1000 dags. 12. október 2023 ásamt minnisblaði skipulagsdeildar dags. 13. október 2023.

Skiplagsráð samþykkti með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 16, 17, 18, 19, 21 og 23 við Aflakór.

Athugasemdum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 790/2023, eigi síðar en föstudaginn 1. desember kl. 12:00.

Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is.

Umhverfissvið, skipulagsdeild Kópavogs, notar þær persónugreinanlegu upplýsingar sem settar eru fram vegna athugasemda við skipulag, s.s. kennitölu, nafn og netfang í þeim tilgangi að vinna úr athugasemdum og auðkenna borgarbúa. Að auglýsingarferli loknu eru gögn varðveitt í 30 ár og flytjast að þeim tíma liðnum til Þjóðskjalasafns Íslands skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn.

Vakin er athygli á því að athugasemdir teljast til opinberra gagna í allri skipulagsmeðferð og birtast meðal annars nöfn bæjarbúa í fundargerðum skipulags- og samgönguráðs á netinu.

Aflakór 20
Tímabil
1. nóvember - 1. desember 2023