Álfhólsvegur 62

Grenndarkynning.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 19. febrúar 2024 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 26. janúar 2024 þar sem byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi fyrir tveggja hæða viðbyggingu við vesturhlið núverandi húss á lóðinni og fjölgun íbúða úr einni í tvær. Núverandi byggingarmagn á lóðinni eykst úr 187,5 m² í 331,3 m². Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður 0,33.

Uppdrættir í mkv. 1:500 og 1:100 dags. 12. nóvember 2023 og uppfærðir 16. febrúar 2024 ásamt fylgiskjölum dags. 4. febrúar 2024.

Bókun skipulagsráðs: 
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr 52, 54, 56, 58, 60, 64, 64A, 65 - 95 við Álfhólsveg og nr. 13, 16, 17, 17A, 18, 19, 20, 21, 22, 24, 26 við Bjarnhólastíg.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdum og ábendingum við ofangreinda tillögu skal skila í gegnum skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 288/2024, eigi síðar en 17. apríl 2024. Ef óskað er eftir frekari upplýsingum um tillöguna er hægt að hafa samband við starfsfólk skipulagsdeildar með því að senda tölvupóst á skipulag@kopavogur.is

Vakin er athygli á að athugasemdir teljast til opinberra ganga í allri skipulagsmeðferð. Skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar notar upplýsingar sem eru settar fram vegna athugasemda við skipulag til úrvinnslu og auðkenningar. Kópavogsbær er afhendingaskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn nr. 77/2014 og afhendir gögn til varðveislu til Þjóðskjalasafns Íslands.

Vakin er athygli á textavillu í bréfi um grenndarkynningu á byggingarleyfisumsókn lóðarhafa lóðarinnar nr. 62 við Álfhólsveg dags. 13. mars 2024 og er hér með leiðrétt.

Tillagan sýnir fyrirhugaða viðbyggingu á lóðinni við vesturhlið núverandi húss, ekki á austurhlið núverandi húss eins og áður var kynnt í bréfi um grenndarkynningu.

Vegna þessa verður kynningartíminn framlengdur til 24. apríl 2024.