Borgarholtsbraut 34

Í samræmi við 44. gr skipulagslaga nr. 123/2010 er breyting á deiliskipulagi hér með grenndarkynnt.

Á fundi skipulagsráðs 3. júlí 2023 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 23. júní 2023 þar sem umsókn Pálmars Halldórssonar byggingarfræðings f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 34 við Borgarholtsbraut er vísað til skipulagsráðs. Sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvisti á suður- og norðurhlið hússins ásamt breytingum á innra skipulagi og brunavörnum. Við breytinguna stækkar húsið um 2,7 m².  Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 15. ágúst 2022 og skráningartafla dags. 9. júní 2022.
Skipulagsráð samþykkti með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð umsókn um byggingarleyfi verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 32, 33, 25 og 36 við Borgarholtsbraut og nr. 18 og 18A við Hófgerði. 

Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 25. ágúst 2023.

Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.

Borgarholtsbraut 34
Tímabil
24. júlí til 25. ágúst 2023.