Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Athygli er vakin á því að skipulagsráð samþykkti á fundi sínum þann 16. janúar 2023 að auglýsa breytt deiliskipulag fyrir Gilsbakka. Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit að stærð 16.5 x 8.35m fyrir vinnustofu/gestahús á norðvesturhluta lóðarinnar. Núverandi skúr sem þar er í dag verður rifinn. Fyrirhuguð vinnustofa/ gestahús mun vera á einni hæð og stærð þess um 107m². 4 bílastæðum verði komið fyrir innan lóðarmarka og breyta þarf innkeyrslu á lóð. Aðkoma á lóðinni verði í samræmi við núverandi fyrirkomulag á lóð. Við breytinguna eykst fermetrafjöldi á lóð úr 175.5m² í 282.5m². Nýtingarhlutfall eftir breytingu verður um 0.11. Í breytingunni felst jafnframt að staðfang lóðarinnar verði Gilsbakki 1.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:2000, 1:1000 og 1:200 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 29. desember 2022. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar, https://www.kopavogur.is/is/ibuar/skipulagsmal/skipulag-i-kynningu. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 16:00 miðvikudaginn 26. apríl 2023.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.