Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. júní sl. var lögð fram tillaga Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. dags. 31. maí 2022 að breyttu deiliskipulagi Lundar. Í deiliskipulagi Lundar eru sýnd leiksvæði, körfuboltavellir og sparkvellir á opnum svæðum. 3 lítil leiksvæði hafa verið gerð en enginn boltavöllur. Í tillögunni er gert ráð fyrir að gert verði einskonar garðsvæði á opnu svæði norðan við Lund 90, sjá meðfylgjandi uppdrátt. Svæðið samanstendur af fjölbreyttara leiksvæði en þeim sem þegar eru komin í hverfinu, þrek- og útiæfingartækjum, púttvelli, lítilli sleðabrekku og dvalarsvæði umluktu gróðri. Hugmyndin er að þetta svæði komi í stað fyrrnefndra boltavalla.
Kynningaruppdráttur í mkv. 1:250, dags. 2. júní 2022.
Embætti skipulagsfulltrúa samþykkti með tilvísan í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir lóðarhöfum í Lundi.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 miðvikudaginn 6. júlí 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.