Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
- Íbúar
- Börn og ungmenni
- Íþróttir & útivist
- Velferð
- Þjónusta
- Skipulagsmál
- Byggingarmál
- Samgöngur
- Umhverfi
- Menning
- Íbúaverkefni
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
- þjónustugátt
- Ábendingar
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 9. maí 2023 að auglýsa í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftirfarandi tillögur að breyttu deiliskipulagi.
Í tillögunni felst að breyta mörkum skipulagssvæðis Vatnsendi-norðursvæði í samræmi við nýtt deiliskipulag fyrir Vatnsendahvarf/Vatnsendahæð. Þar er gert ráð fyrir nýrri 500 íbúða byggð á 29 hektara svæði með tvær akstursaðkomur innan Kópavogs, um Kambaveg og Turnahvarf. Mörk deiliskipulagsins Vatnsendi-norðursvæði munu flytjast að gönguleiðinni sem aðskilur skipulagssvæðið við nýja deiliskipulagið á Vatnsendahæð.
Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:3000 ásamt greinargerð dags. 14. apríl 2023 og uppfært 17. maí 2023. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengilegar á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 13:00. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar.
Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 14. júlí 2023.
Takk fyrir! Ábending þín er móttekin
Íbúafjöldi í Kópavogi þann 1. ágúst 2023 var 40.288 íbúar.
Álfhóll við Álfhólsveg er jökulsorfinn klapparhóll sem nýtur bæjarverndar sem bústaður álfa.
Myndavefur Kópavogsbæjar birtir einnig gömul myndbönd úr Kópavogi. Sjáðu gömul myndbönd úr Kópavogi.
Kópavogshreppur var stofnaður árið 1948 og voru íbúar þá rúmlega 900.
Vissir þú af opnu bókhaldi Kópavogsbæjar? Þarna getur þú skoðað hvert og í hvað peningarnir fara.