Forsetakosningar 2024

Forsetakosningar 2024 fara fram 1.júní 2024.

Kjörfundur í Kópavogi stendur yfir frá 09.00 til 22.00.  Kjörstaðir í Kópavogi eru tveir, íþróttahúsið Smárinn og íþróttahúsið Kórinn

Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12. 

Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa kennivottorði eða nafnskírteini eða á annan fullnægjandi háttað mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhentir fulltrúi í kjörstjórn honum einn kjörseðil. 

Kjörstjórn

Yfirkjörstjórn í Kópavogi skipa: Helgi Magnússon, Jón Ögmundsson og Jón Guðlaugur Magnússon. Aðsetur kjörstjórnar á kjördag verður í íþróttahúsinu Smáranum, sími 441 8911.

Kjörskrá

Kjörskrá vegna forsetakosninga 1. júní 2024 liggur frammi í þjónustuveri á Bæjarskrifstofum Kópavogs, Digranesvegi 1. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrána ber að snúa sér með þær til Þjóðskrár Íslands.

Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á kosning.is

 

  • Utankjörfundaratkvæðagreiðsla

    Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu fer eingöngu fram í Holtagörðum á 1. hæð.

    Opnunartími:
    3. maí - 20. maí kl. 10:00 - 20:00
    21. maí – 31. maí kl. 10:00 - 22:00
    Lokað verður uppstigningardag 9. maí og hvítasunnudag 19. maí

    Á kjördag laugardaginn 1. júní verður opið frá kl. 10:00 - 17:00 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund.

Síðast uppfært 13. maí 2024