Afgreiðslur byggingarfulltrúa

377. fundur 29. september 2023 kl. 11:00 - 11:49 á Digranesvegi 1, Fífuhvammur 1. hæð
Fundinn sátu:
  • Guðrún Hauksdóttir starfsmaður nefndar
  • Valdimar Gunnarsson byggingarfulltrúi
  • Jens Karl Bernharðsson starfsmaður tæknisviðs
  • Sigurbjartur Halldórsson aðstoðarbyggingarfulltrúi
  • Þórólfur Óskarsson starfsmaður nefndar
Fundargerð ritaði: Guðrún Hauksdóttir
Dagskrá

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

1.2309193 - Geirland I - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Dyljá Erna Eyjólfsdóttir, Geirland 1, Kópavogi sækir um leyfi til að byggja smáhýsi að Geirland 1.

Teikning: Kristján Bjarnason.
Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 30. september 2023 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

2.2307728 - Gilsbakki, byggingarleyfi.

Margrét Pála Ólafsdóttir og Lilja Svanbjörg Sigurðardóttir, Gilsbakki, Kópavogi sækir um leyfi til að byggja vinnustofu að Gilsbakka.

Teikning: Guðni Sigurbjörn Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 30. september 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

3.2308078 - Kópavogsbraut 1A,B,C - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Ríkissjóður Íslands, Katrínartúni 6, Reykjavík sækir um leyfi til að fjölga gluggum á austurhlið að Kópavogsbraut 1C

Teikning: Oddur Kristján Finnbjarnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 30. september 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Afgreiðsla byggingarfulltrúa

4.22114572 - Nýbýlavegur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

JÁVERK ehf., Gagnheiði 28, Selfoss sækir um leyfi til að gera breytingar á brunahönnun að Nýbýlavegi 10.

Teikning: Kristinn Ragnarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 30. september 2023. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Fundi slitið - kl. 11:49.